Morgunblaðið - 24.09.2021, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 24.09.2021, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021 MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR Hafðu samband info@husavidgerdir.is - Sími 565-7070 Finndu okkur á ALHLIÐAMÚRVERK ÞAKVIÐGERÐIR GLUGGASKIPTI H ildur starfar einnig sem umhverfisfræð- ingur og er skipulagsfulltrúi Faxaflóa- hafna. Hún er framkvæmdaglöð áhuga- kona um pottaplöntur, sem elskar að deila fallegri hönnun og list á samfélags- miðlum. Hildur var að byrja að starfa aftur eftir eitt ár í barneignaleyfi. Auk starfa hennar sem skipulags- fulltrú starfar hún við sjálfstæð arkitektaverkefni, innanhússráðgjöf og annað því tengt. „Ég er með lítil börn og mann sem vinnur mikið þannig að ég þarf að velja verkefni sem ég fæst við gaumgæfilega. Skipulagsmál og vandað borg- arumhverfi er mér hjartans mál og ég fæ góða útrás fyrir það í vinnunni en það veitir mér líka mikla gleði þegar fólk treystir mér fyrir heimilinu sínu. Þar sem tími minn er af skornum skammti þá vel ég í þeim verkefnum að vinna með fólki sem er opið fyrir ein- hverju nýju og spennandi. Ég tek alltaf útgangspunkt í persónulegum stíl fólks og reyni alls ekki að troða mínum stíl inn á aðra. Ég er auk þess í sífelldum fram- kvæmdum heima fyrir og elska að deila því með öðrum á Instagram.“ Býr í 270 fermetrum Hvað getur þú sagt mér um heimilið þitt? „Heimilið mitt er 270 fermetra raðhús byggt um 1960. Það er þeim töfrum gætt að geta endalaust breyst og þróast með fjölskyldunni. Þegar við tókum við raðhúsinu var það búið að vera í herbergjaleigu og hafði séð fífil sinn fegurri en við erum búin að taka það mikið í gegn. Við rifum niður veggi þannig að birti til, settum gólfhita og ný gólfefni á allt, endurnýjuðum eldhúsið og stækkuðum það og ýmislegt annað. Eins og stendur erum við með auka íbúð í kjallaranum sem við leigjum út, sem er algjör draumur í dýrum fram- kvæmdum, en við sjáum fyrir okkur að geta síðar meir notað íbúðina sem athvarf fyrir elstu börnin okkar. Næstu skref hjá okkur eru að fara í miklar fram- kvæmdir í garðinum þar sem hver fermetri af litla garðinum okkar verður nýttur til hins fyllsta með per- gólu, heitum potti, útieldhúsi og ýmsu öðru. Auk þess sem við ætlum að fara að byggja yfir stórar vannýttar þaksvalir. Mig langar síðan til þess að opna inn í bíl- skúr í rými með aukinni lofthæð og útbúa þar bóka- stofu með arin og mögulega bíótjaldi en ég reyni að tala sem minnst um það svo það líði ekki yfir manninn minn en við erum misframkvæmdaglöð. Við höfum reynt að nýta fermetrana sem best en við tókum ný- verið í gagnið um 35 fermetra í kjallaranum sem höfðu farið í geymslu á ýmsu drasli. Í stað þess að vera með hrörlega geymslu þá erum við nú með rými sem ég kýs að kalla pastelhellinn sem hýsir ógrynnin öll af leikföngum, lítið hús fyrir þær yngstu, Playstation- horn með bleikum sófa, leikfimisrimla og ýmislegt annað. Rýmið nýtist fyrir bæði börn og í sumum til- vikum manninn minn og vini hans þegar þeir hittast. Þannig kemst ég líka hjá því, alla jafna, að vera með leikföng úti um allt hús og Playstation suðandi í sjón- varpinu. Þau sem fylgja mér á Instagram hafa fylgt „Er í sífelldum framkvæmdum heima fyrir“ Hildur Gunnlaugsdóttir arkitekt á raðhús sem byggt var árið 1960. Hún er alltaf að hanna og breyta en segir mikilvægast af öllu að vera þakklátur fyrir heimilið sitt. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Innréttingar úr Ikea. Borðplatan er Dekton-steinn frá Steinsmiðjunni Rein. Á veggnum eru hillur úr IKEA sem Hildur lakkaði og eru því í stíl við herbergið sjálft. Rósirnar á veggn- um pantaði hún á netinu. Hildur segir að liturinn á svefn- herberginu sé alger töfralitur. Það er mjög hátt til lofts og liturinn held- ur vel utan um þau hjónin. Á ganginum er upprunalegt hand- rið sem býr yfir miklum sjarma. Hildur setti þessi þrjú ljós upp til að skapa stemningu. Verk eftir Bjarka Bragason lista- mann prýðir stofuna á heimilinu. Ljósmyndir/Hildur Gunnlaugsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.