Morgunblaðið - 24.09.2021, Síða 45
FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021 MORGUNBLAÐIÐ 45
fyrir heimilið
Sendum
um
land
allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
Stóll á snúningsfæti í ítölsku nautsleðri
75 cm á breidd
Verð frá 139.000 kr.
Loksins fáanlegir aftur,
í mörgum litum
mér í þessu kjallaraævintýri mínu sem er reyndar
hvergi nærri lokið en það er svo æðislegt að fá „pepp“
frá ókunnugum þegar mér dettur sem dæmi í hug að
handmála allt gólfið í „terrazzo“-munstri eða byggja
hús fyrir litlurnar mínar í skoti undir stiganum.“
Vil gera hlutina vel heima
Það eru alls konar skemmtilegar útfærslur víða á
heimilinu, meðal annars lampi undir pottaplöntu. Hvað
getur þú sagt okkur um það?
„Ég sá að hún Skreytum hús-Soffía, sem er örugg-
lega jákvæðasta manneskjan á Instagram, var að gera
allt bilað með lugtum sem hún setti litla lampa inn í.
Ég var búin að hafa plöntuna ofan á körfu, sem ég
setti bakka ofan á, í þó nokkurn tíma en fékk þarna
innblástur og stakk litlum lampa inn í körfuna, flókn-
ara var það ekki, en það gefur af sér svo huggulega
birtu og stemningu.
Við höfum reynt að vanda til við það sem við höfum
gert hér heima og frekar geymt ákveðna pósta en að
gera þá af hálfum hug eða efnum. Undantekningin frá
þessu eru hins vegar baðherbergin en þau voru með
þessum ofurvenjulegu hvítu flísum sem alls staðar fást
og trufluðu mig lítið, klósettin og vaskarnir voru hins
vegar orðin svo lúin að ég gat með engu móti sætt mig
við þau, sér í lagi þegar ég var ólétt og lyktin af kló-
settunum sótti á mig. Þar ákvað ég að skipta bara út
klósettum og flísaleggja í kring með eins flísum og
skipta út vöskum, svo sáu málning og einhverjir
skrautmunir um rest. Við notuðum stóra flís sem borð-
plötu en það var mun ódýrara en að kaupa steinplötu
og við létum hana fara aðeins upp fyrir aftan vaskinn
til að fela ljót göt í flísunum eftir gamla innréttingu.
Stóri spegillinn felur síðan ansi mörg og stór göt sem
voru eftir veggskáp. Við gerðum áður ráð fyrir alls-
herjaryfirhalningu á baðherbergjunum innan nokk-
urra ára en með þessum ódýru og einföldu breytingum
liggur okkur ekkert á því neitt í bráð.“
Hvaða hlutverk leikur lýsing á heimilinu?
„Lýsingin leikur stórt hlutverk. Ljósgjafar þurfa að
vera fallegir, eins og fallegir skúlptúrar, þótt það sé
ekki einu sinni kveikt á þeim. Á Íslandi skiptir birtan
svo miklu máli því við þurfum að hanna hana til þess
að takast á við andstæðurnar, hina miklu sumarbirtu
og myrkrið. Ég vel að vera með marga ljósgjafa, í lofti,
á veggjum og á borðum og gólfi. Ég vil geta slökkt á
öllum loftljósum og haft kveikt á völdum lömpum eftir
birtu og tilefni. Ég er líka með dimmera á einhverjum
loftljósum en nota þá ekki mikið því mér finnst
skemmtilegra að birtan komi úr mörgum áttum í stað
þess að koma aðeins að ofan. Kerti og seríur á vissum
tíma árs gera líka mikið.“
Grái liturinn í svefnherberginu algjör töfralitur
Hvað með hjónaherbergið þar sem er dásamlegur
litur og ýmislegt áhugavert að sjá?
„Liturinn er algjör töfralitur en hann er stundum
grár, stundum blár og jafnvel fjólublár. Lofthæðin í
svefnherberginu okkar er mest um 320 sentimetrar
þannig að ég málaði allt rýmið í þessum lit og hef
hörgardínur frá lofti niður í gólf til þess að lofthæðin
sé samt sem áður áberandi. Mér finnst lifandi plöntur
og náttúruleg efni í svefnherberginu hafa róandi áhrif.
Nú erum við hins vegar flutt út úr stóra svefnherberg-
inu okkar og það verður nú herbergi fyrir þær tvær
yngstu. Það stendur til að smíða utan um kojur og út-
búa leskrók með rennibraut niður úr gömlum fataskáp
og smíða einhverjar sniðugar geymslulausnir fyrir
leikföngin þeirra. Það verður því nóg að gera hjá mér
á næstunni í einhvers konar smíðaævintýri. Við erum
hins vegar komin inn í frekar nett herbergi og bíðum
þess að geta farið að byggja yfir þaksvalirnar okkar
gott hjónaherbergi. Mig dreymir um að vera með gott
skápapláss þar og jafnvel kamínu en rýmið verður
með miklum gluggafletum, og verður einhvern tíma í
framtíðinni heimaskrifstofa fyrir mig, þannig að það
þarf einhverjar sniðugar lausnir til að geta nýst sem
svefnherbergi fyrstu árin.“
Litirnir í eldhúsinu koma einnig vel út og má segja
að eldhúsið sé ekki hefðbundin íslenskt eldhús eins og
við þekkjum það.
„Innréttingin er úr IKEA. Sem akritekt finnst mér
auðvelt að sjá fyrir mér hvernig rými mun koma út.
Ég teiknaði þetta upp og velti ýmsum möguleikum
fyrir mér. Eldhúsið varð að vera bæði praktískt og fal-
legt. Ég var búin að sjá að þessir frontar voru að fara
að koma hjá IKEA og ákvað því að bíða aðeins eftir
þeim.
Þeir eru úr endurunnum plastflöskum en það talaði
mjög til umhverfisfræðingsins í mér. Liturinn passaði
líka svo vel við mína persónulegu litapallettu. Ég er
mjög hrifin af því að stilla saman svipuðum litum í
mismunandi tónum og blanda saman lifandi efni eins
og við og fallegum litum.“
Velur heldur vandaða muni en tískuhúsgögn
Hildur segir flest húsgögnin heima hjá sér gömul.
„Eins og mér finnst gaman að fylgjast með tísku í
arkitektúr og innanhúshönnun þá eru flest húsgögnin
mín fjörgömul. Ég reyni að velja frekar vandaða muni
sem ég get átt lengur en tískuhúsgögn sem duga í
skemmri tíma. Það er gaman að reyna að spotta til-
vonandi klassík og hluti sem munu vera enn þá smart
eftir áratug eða jafnvel marga áratugi. Það er líka svo
miklu umhverfisvænna heldur en að skipta öllu út á
nokkurra ára fresti og að lokum betra fyrir budduna
líka. Um leið þá er auðvitað allt einhver tíska og ég fell
í gryfjur hennar eins og allir aðrir. Það sem mér finnst
mikilvægast er að heimili fólks endurspegli heim-
ilisfólkið og að fólki líði vel heima hjá sér. Það er svo
ótrúlega gaman að koma heim til einhvers og sjá líf
þeirra og karakter endurspeglast í heimilinu. Fyrsta
skrefið í því er kannski bara að vera þakklát fyrir það
að eiga heimili og þá höfum við kannski ekki eins mikl-
ar áhyggjur af því hvort við séum með nýjasta og
smartasta vasann eða eitthvað álíka,“ segir Hildur.
Flísarnar inni í þvottahúsinu eru frá
Parka. Vaskurinn fæst í Húsasmiðjunni.
Á baðher-
berginu eru
gamlar flísar.
Til þess að
færa baðher-
bergið í nú-
tímalegri bún-
ing málaði
Hildur loft og
efri partinn í
þessum fal-
lega lit.
Baðinnréttingin er úr Ikea. Borðplatan
er keramíkflís sem hún lét setja ofan á
og virkar eins og náttúrusteinn.