Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.09.2021, Side 1

Víkurfréttir - 01.09.2021, Side 1
studlaberg.is 24 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM LJÓSLEIÐARINN er kominn! Ekkert tengigjald FRÍR ROUTER 11.490,- kr/mán. H a f n a r g a t a 2 1 • S í m i 4 2 1 4 6 8 8 w w w . k v . i s • k v @ k v . i s Mikil umskipti í atvinnulífinu n Flestir geta fengið vinnu sem vilja – segir formaður VSFK Mikil umskipti hafa orðið í atvinnu- lífinu á Suðurnesjum frá því í vor þegar atvinnuleysi var um 25%. Nú mælist það rúmlega 10%. „Það virðast lang flestir geta fengið vinnu sem vilja það,“ segir Guð- björg Kristmannsdóttir, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis. Formaðurinn segir að það sé þó svolítið ójafnvægi á vinnumarkað- inum. Margir sem misstu vinnuna vegna Covid-19 hafi beðið eftir því að komast í sama starf en það hefur ekki alltaf gengið eftir. Sumir hafi þó fengið slíkt boð eftir að hafa farið í annað starf og því viljað vilja fara aftur í fyrri vinnu. „Þannig að þetta hefur verið pínu s k r ý t i ð á s t a n d stundum og svo eru margir atvinnu- rekendur sem hafa kvartað yfir því að fá ekki fólk í vinnu þó vitað sé að margir séu enn á atvinnuleysisskrá. Svo eru önnur dæmi þar sem okkar félagsmenn hafa kvartað yfir því að fyrirtæki hafi ekki svarað atvinnuumsóknum,“ segir Guðbjörg. Þegar losnaði um höft vegna heimsfaraldurs í vor fór atvinnulífið í gang að nýju og hraðar en margir höfðu spáð. Mörg fyrirtæki í ferða- þjónustu hafa notið góðs af auknum fjölda ferðamanna til Íslands, t.d. bílaleigur, hótel, veitingastaðir og fleiri aðilar. Margar bílaleigur hafa ekki getað annað eftirspurn þar sem þær áttu ekki nógu marga bíla og hafa þess vegna getað selt á miklu hærra verði. Leigubílsstjóri á Suðurnesjum sem keyrir mikið frá flugstöðinni segir að júlí hafi verið stærri hjá sér en nokkru sinni fyrr. Guðbjörg Kristmannsdóttir segir að flest bendi til að leiðin liggi áfram upp á við þrátt fyrir enn ríki nokkur óvissa í Covid-19, sérstaklega hvernig ferðaþjónustunni reiði af í haust og vetur. Nokkur bjartsýni ríki þó, þar sem viðhorf gagnvart heims- faraldri hafi verið að breytast í það að reyna að lifa með veirunni. Alls voru 1.309, eða 11,6% vinnu- markaðar í Reykjanesbæ, atvinnu- laus í lok júlímánaðar. Rúmlega helmingur þess hóps er fólk með erlent ríkisfang Busavígslur voru oft all svakalega fyrr á árum í Fjölbrautaskóla Suðurnesja eins og sjá má á þessari mynd sem er á ljósmyndasýningu Víkurfrétta sem verður opnuð fimmtudaginn 2. september. Þessi mynd er ein nokkur hundruð mynda á sýningunni sem eru frá fyrsta áratug í sögu blaðsins. Nærri áttatíu myndir eru á veggjum bíósalar Duus Safnahúsa en aðrar þrjúhundruð á skjá. Fólk er þema sýningarinnar. Busar fengu það óþvegið! Framtíðarnefnd Reykjanesbæjar telur að styrkja þurfi uppbyggingu á innviðum fyrir rafbílavæðingu í Reykjanesbæ. Framtíðarnefnd leggur til að Reykjanesbær setji á fót sjóð sem húsfélög fjölbýlishúsa geti sótt í til að koma upp hleðslubúnaði fyrir rafbíla. Leitað verði eftir samstarfi við HS Veitur og lagt til að framlag frá hvorum aðila verði sex millj- ónir króna á ári. Úthlutað verði úr sjóðnum árlega tólf milljónum króna sem er sambærileg upphæð og t.a.m. Reykjavíkurborg og Akranes hafa lagt í slíka sjóði í hlutfalli við íbúa- fjölda. Nemendur í fimmta bekk Háaleitis- skóla í Reykjanesbæ, alls sextán nemendur, eru komnir í sóttkví eftir að Covid-smit greindist hjá starfs manni. Starfsmaðurinn er kominn í einangrun. Í tilkynningu til foreldra og for- sjáraðila nemenda á mánudag sagði Friðþjófur Helgi skólastjóri: „Seint í gærkvöld kom í ljós að starfsmaður skólans hafði smitast af Covid-19. Allir sem þurftu að fara í sóttkví voru látnir vita strax í gær- kvöldi eftir að smitrakningu lauk í samráði við smitrakningarteymi al- mannavarna. Alls voru það sextán nemendur í 5. bekk sem þurftu að fara í sóttkví og tveir starfsmenn.Við hvetjum alla til að fara varlega og ef einhver einkenni Covid gera vart við sig að fara umsvifalaust í sýnatöku.“ Starfsmaður Háa- leitisskóla smitaðist Uppbygging inn- viða fyrir rafbíla Opnunartími Hringbraut: Allan sólarhringinn Opnunartími Tjarnabraut: 08.00 - 23.30 Virka daga 09.00 - 23.30 Helgar FLJÓTLEGT OG GOTT! Manhattan beyglur Fínar, heilhveiti, kanil, sesam 20% 559 kr/pk áður 699 kr Sprite Sprite og Sprite Zero 0,5 l 2 fyrir 1 30% 454 kr/stk áður 649 kr Grandiosa Calzone skinka Miðvikudagur 1. septeMber 2021 // 32. tbl. // 42. árg.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.