Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.09.2021, Blaðsíða 19

Víkurfréttir - 01.09.2021, Blaðsíða 19
Víkurfréttir efna til ljósmyndasýningar í Bíósal Duus Safnahúsa þar sem fólkið á Suðurnesjum er í sviðs- ljósinu. Sýningin opnar fimmtudaginn 2. september en á henni eru tæpleg 80 prentaðar ljósmyndir auk þess sem nærri 300 myndir verða sýndar á skjám. Þá eru sýndar nokkrar forsíður Víkurfrétta frá þessum áratug, 1983 til 1993. Víkurfréttir komu fyrst út 14. ágúst 1980 og voru fyrsta „fríblað“ landsins en fyrr á því ári löagði forveri þess, Suðurnesjatíðindi, upp laupana en það var selt í lausasölu og áskrift. „Við höfum verið með sýningu í bígerð síðustu tvö árin en heimsfaraldur hefur truflað þá vinnu. Það var samt ákveðið að efna núna til örsýningar á ljósmyndum úr safni Víkurfrétta frá árunum 1983 til 1993, fyrsta áratug núverandi eigenda blaðsins. Þetta er auðvitað bara lítið brot af ljósmyndum Víkurfrétta í fjörutíu ár og á þessum myndum sýnum við eingöngu fólkið sem við mynduðum á hinum ýmsu stöðum og viðburðum. Við ákváðum að byrja þannig. Það er mikið til af myndum af fréttaviðburðum og við eigum það inni fyrir næstu sýningu sem við stefnum að því að verði mun stærri. Þar stefnum við líka að því að gera Suðurnesja--mag- asíni og sjónvarpsvinnu okkar skil. Það er ansi margt sem við getum sýnt eftir fjóra áratugi í fjölmiðlun á Suðurnesjum,“ segir Páll Ketilsson, ritstjóri Víkurfrétta. LJÓSMYNDASÝNING VÍKURFRÉTTA 1983–1993 Ægir Benediktsson tannlæknir hefur bæst í hóp okkar á Tannlæknastofu Benedikts, Tjarnargötu 2. Tímapantanir í síma 4212577. Allir velkomnir! vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár // 19

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.