Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.09.2021, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 01.09.2021, Blaðsíða 4
  Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is Rétturinn Ljúengur heimilismatur í hádeginu Opið: 11-13:30 alla virka daga Fjölgun íþróttatíma í grunnskólum Reykja- nesbæjar til skoðunar hjá lýðheilsuráði Lýðheilsuráð Reykjanesbæjar hefur falið lýðheilsufulltrúa að vinna drög að fýsileikakönnun um aukna hreyf- ingu barna í grunnskólum Reykja- nesbæjar, s.s. fjölgun íþróttatíma eða markvissri hreyfingu í byrjun skóladags. Rannsóknir sýna að aukin hreyfing barna í grunnskólum hefur m.a. áhrif á líðan þeirra og námsár- angur til góðs. Um áratugaskeið hefur fjöldi tíma í íþróttum og sundi barna verið sá sami þrátt fyrir vísbendingar um aukna kyrrsetu barna. Niðurstöður úr rannsóknum sýna að aukin kyrr- seta byrjar yfirleitt við sjö ára aldur en við fimmtán ára aldur nær kyrr- seta yfir ¾ af þeim tíma sem börn eru vakandi. Ráðlagt er að öll börn stundi miðlungserfiða eða erfiða hreyfingu í minnst sextíu mínútur daglega. Heildar tímanum má skipta í styttri tímabil, t.d. tíu til fimmtán mínútur í senn samkvæmt ráðlegg- ingum Embættis landlæknis. Fýsileikakönnunin skal unnin í samráði við íþrótta- og tómstunda- fulltrúa og fræðslusvið. Eftirfarandi þættir skulu kannaðir: 1. Vilji barna til aukinnar hreyf- ingar í skólum og hugmyndir þeirra þar um. 2. Mögulegar útfærslur á aukinni hreyfingu barna og kostnaður við slíkar breytingar í grunn- skólum Reykjanesbæjar. 3. Samantekt á útfærslum og rann- sóknum sem gerðar hafa verið á Íslandi og nágrannalöndum er varðar verkefni er snúa að aukinni hreyfingu barna í grunn- skólum. Við sækjum um fyrir þig! VIÐSPYRNUSTYRKUR upplysingar@ferdavefir.is Hafðu samband og fáðu ráðgjöf, þér að kostnaðarlausu Hefur þú fengið tekjustyrk? Þá eru líkurnar á því að þú fáir viðspyrnustyrk góðar s: 554 5414 | ferdavefir.is Einnig birt á www.naudungarsolur.is Framhald uppboðs á eftirfar- andi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir Vatnsnesvegur 7, Keflavík, fnr. 209-1089, þingl. eig. Artico Sea- food ehf., gerðarbeiðendur Fín- fiskur ehf. og Arion banki hf., þriðjudaginn 7. september nk. kl. 09:00. Kirkjuvegur 52, Keflavík, 33,3% ehl. gþ., fnr. 208-9688, þingl. eig. Rafal Sobczak, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Norðurlandi ves, þriðjudaginn 7. september nk. kl. 09:20. Iðngarðar 2, Garði, fnr. 209-5570, þingl. eig. Hilmar Friðrik Foss, gerðarbeiðandi Suðurnesjabær, þriðjudaginn 7. september nk. kl. 09:45. Garðbraut 15, Garði, fnr. 209-5394, þingl. eig. Hilmar Friðrik Foss, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn 7. september nk. kl. 10:00. Sunnubraut 14, Garði, 50% ehl. gþ., fnr. 209-5740, þingl. eig. Atli Þór Gunnarsson, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf 0545 og Greiðslu- miðlun ehf., þriðjudaginn 7. sept- ember nk. kl. 10:15. Suðurgata 1, Sandgerði, fnr. 209- 5054, þingl. eig. Aðalfríður Vé- gerður Jensen og Þjóðar Verner Forni Jensen, gerðarbeiðandi Ís- landsbanki hf 0510, þriðjudaginn 7. september nk. kl. 10:35. Grænásbraut 604B, Ásbrú, fnr. 230-8876, þingl. eig. Grænásbraut 604 ehf., gerðarbeiðendur Vátrygg- ingafélag Íslands hf. og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, þriðju- daginn 7. september nk. kl. 11:00. Grænásbraut 604B, Ásbrú, fnr. 230-8880, þingl. eig. Grænás- braut 604 ehf., gerðarbeiðendur Vátryggingafélag Íslands hf. og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, þriðjudaginn 7. september nk. kl. 11:03. Grænásbraut 604B, Ásbrú, fnr. 236-9590, þingl. eig. Grænás- braut 604 ehf., gerðarbeiðendur Vátryggingafélag Íslands hf. og Reykjanesbær og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, þriðjudaginn 7. september nk. kl. 11:06. Grænásbraut 604B, Ásbrú, fnr. 230-8875, þingl. eig. Grænás- braut 604 ehf., gerðarbeiðendur Vátryggingafélag Íslands hf. og Reykjanesbær og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, þriðjudaginn 7. september nk. kl. 11:09. Ránargata 3, Grindavík, fnr. 209-2183, þingl. eig. Gunnar Þór Árnason, gerðarbeiðendur Gildi - lífeyrissjóður og Vátryggingafélag Íslands hf. og Sýslumaðurinn á Norðurlandi ves, þriðjudaginn 7. september nk. kl. 13:30. Sýslumaðurinn á Suðurnesjum 31. ágúst 2021 uppbOð Mikil ánægja með fyrirkomulag hátíðarhalda 17. júní í Reykjanesbæ „Mikil ánægja reyndist með fyrir- komulag hátíðarhalda 17. júní í Reykjanesbæ í ár og fullur vilji til að halda áfram að þróa þá útfærslu,“ segir í afgreiðslu menningar- og atvinnuráðs Reykjanesbæjar, sem fundaði 18. ágúst síðastliðinn. „Það liggur þó fyrir að kostnaður við að halda úti dagskrá á fjórum stöðum í stað eins er töluvert hærri og því nauðsynlegt að fjárframlög til há- tíðarhaldanna verði hækkuð,“ segir í afgreiðslu ráðsins. Vegna samkomutakmarkana þurfti að leita nýrra leiða við framkvæmdina í ár. Hátíðardagskrá fór fram í skrúð- garðinum. Fánahyllir var Óskar Ív- arsson, starfsmaður Umhverfismið- stöðvarinnar, ræðumaður dagsins var Ingvar Eyfjörð, framkvæmdastjóri Aðaltorgs, setningarræðu flutti Guð- brandur Einarsson, forseti bæjar- stjórnar, og fjallkona var María Tinna Hauksdóttir, nýstúdent. Sú nýja leið var farin að bjóða upp á skemmtidag- skrá fyrir fjölskyldur á fjórum stöðum í Reykjanesbæ til að dreifa mannfjölda og mæta samkomutakmörkunum. Menningar- og atvinnuráð Reykja- nesbæjar mælir með að gert verði ráð fyrir hærra fjárframlagi til 17. júní hátíðarhalda við næstu fjárhagsáætl- unargerð. Ráðið færir þakkir öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd hátíðarhaldanna í ár. Þakka Hughrifum í bæ – Áfram verði unnið að þróun skapandi sumarstarfa „Verkefnið Skapandi sumarstörf er verkefni á vegum menningarfull- trúa Reykjanesbæjar sem hefur verið unnið í góðu samstarfi við umhverfissvið. Markmið þess er að brjóta upp hversdagsleikann og lífga upp á bæinn með ýmsum leiðum og gefa um leið ungu fólki möguleika til að sinna störfum þar sem reynir á skapandi og lausnamiðaða hugsun. Verkefnið var keyrt í fyrsta sinn síðasta sumar fyrir tilstuðlan styrkjar frá mennta- og menningar- málaráðuneytinu. Það þótti takast það vel að samþykkt var að bjóða upp á það aftur í sumar. Tveir verkefnastjórar, Hildur Hlíf Hilmarsdóttir og Ingvi Hrafn Laxdal, stýrðu starfinu með fimmtán manna hópi ungmenna átján ára og eldri. Saman vann hópurinn að sautján mismunandi verkefnum sem lífguðu upp á bæinn í einni eða annarri mynd og var afrakstrinum einnig miðlað á samfélagsmiðlum. Skýrsla unnin af verkefnastjórum var lögð fram þar sem gerð er grein fyrir afrakstri og helstu áskorunum starfsins og hugmyndir að þróun verkefnisins reifaðar. Menningar- og atvinnuráð Reykja- nesbæjar þakkar Hughrifum í bæ fyrir þeirra framlag og hvetur til þess að haldið verði áfram þróun við skapandi sumarstörf. Þá mælir ráðið með að gert verið ráð fyrir viðbótar- fjármagni til skapandi sumarstarfa í næstu fjárhagsáætlun,“ segir í fund- argögnum frá síðasta fundi ráðsins. Brimfaxi fær að leggja 600 metra reiðveg Hestamannafélagið Brimfaxi í Grindavík hefur óskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir 600 metra löngum reiðvegi. Veg- urinn liggur frá núverandi reið- vegi á gamla sauðfjárgirðingar- stæðinu norðanmegin frá austur að landamerkjum Þórkötlustaða og Hrauns. Skipulagsnefnd Grindavíkur hefur heimilað skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi að uppfylltum öllum skilyrðum laga og reglna. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi aðalskipulag og telst ekki til meiriháttar fram- kvæmda í skilningi reglugerðar um framkvæmdaleyfi. Sjálfsala í grunnskólana í Suðurnesjabæ Rætt var um vandamál tengt búðar- ferðum nemenda á skólatíma á síðasta fundi ungmennaráðs Suðurnesja- bæjar. Hugmyndir um uppsetningu sjálfsala fyrir unglingastig í Sandgerð- isskóla og Gerðaskóla voru ræddar. „Lagt er til að settir verði upp sjálfsalar fyrir unglingastig í báðum grunnskólum þar sem hægt er að kaupa hollari fæðu,“ segir í afgreiðslu ráðsins. Vilja stærri borð og stóla fyrir unglingastigið í Gerðaskóla Ungmennaráð Suðurnesjabæjar leggur til við bæjarstjórn að sett verði fjármagn á fjárhagsáætlun 2022 til að kaupa stóla og borð við hæfi fyrir unglingastig Gerðaskóla. Í umræðum á fundi ungmennar- áðsins kom fram að borð og stólar væru í sömu stærð fyrir 1. til 4. bekk og 8. til 10. bekk. Miðstigið væri með stærri stóla og borð. Frá hátíðarhöldum 17. júní í Reykjanesbæ í sumar. Málningarrúllur á lofti í verkefninu Hughrif í bæ. 4 // vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.