Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.09.2021, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 01.09.2021, Blaðsíða 15
LAUS PLÁSS Í SÖNGDEILD, STRENGJADEILD OG BLÁSARADEILD Getum bætt við okkur nemendum í eftirtaldar námsgreinar: Fiðla Klassískur söngur Málmblásturshljóðfæri Selló Vakin er athygli á því að aðeins er um örfá pláss að ræða og munu dag- og tímasetningar umsókna ráða inntöku nemenda. Umsóknarfrestur er til 10. september n.k. Sótt er um á tonlistarskoli.reykjanesbaer.is undir hlekknum „Endurnýjun og nýjar umsóknir“ Nánari upplýsingar á skrifstofu skólans í síma 420-1400. Skrifstofan er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl.9 til 17 og föstudaga frá kl.9 til 16. Skólastjóri Hópur frá Byggðasafni Reykjanesbæjar, Sögu- og minja- félagi Grindavíkur, Bláa hernum og nokkrir áhugasamir ein- staklingar gengu upp í hlíðar Langahryggs fimmtudaginn 8. júlí síðastliðinn. Tilgangur ferðarinnar var að sækja mótor og nokkur brot úr flugvél sem fórst þar 2. nóvember árið 1941. Flugvélin var af gerðinni Martin PBM-3D Mariner og var hún með skráningarnúmerið 74-P-8. Veðrið þennan fimmtudaginn var ekki ólíkt því sem var þegar flugvélin fórst, svartaþoka og ekkert skyggni. Við slysið fórust allir í áhöfn flugvélarinnar, alls tólf manns. Flugvélin var að koma úr fylgdarflugi með skipalest sunnan við Ísland þegar slysið varð. Á þessum tíma voru Bandaríkjamenn ekki orðnir formlegir þátttakendur í seinni heimsstyrjöldinni heldur einungis að aðstoða Breta með hervarnir á Íslandi. Í leiðinni var hreinsað upp verulegt magn af brotamálmi og öðru rusli sem var að finna á svæðinu. Mótorinn verður til sýnis að Seylubraut 1 á samsýningu Byggðasafns Reykjanesbæjar og ýmissa áhugamanna um söfnun stríðsminja, „Það sem stríðið skildi eftir“ á safnahelgi á Suðurnesjum helgina 16. til 17. október næstkomandi. NÁÐU Í FLUGVÉLAMÓTOR og brot úr flugvél á Langahrygg Hópurinn sem sótti munina á Langahrygg. Oleg Zubkov ætlar að bjóða kennslu í teikningu og portrait-málun í raunsæismyndlist hér á landi og verða haldin tvö helgarnámskeið: Vörðusundi 1, Grindavík vinnustofa Art Helga 10.-12. september og Brúnir, Eyjafirði 17.-19. september. Oleg Zubkov fæddist árið 1962, í Ulyanovsk, Rússlandi, en býr og starfar nú á Spáni. Hann lærði klassíska portrettmálun við listahá- skólann í Pétursborg þar sem hann sýndi verkum Repins, Bryullov, Kramskoy og Borovikovsky sér- stakan áhuga. Árið 2011 fékk hann titilinn sigurvegari alþjóðlegu lista- samkeppninnar ART - WEEK 2011 fyrir málverkið „Madonna. Upphaf nýs lífs.“ Tók þátt, var verðlaunahafi og sigurvegari í alþjóðlegum lista- samkeppnum í Moskvu, Madrid, Zaragoza, Barcelona, Feneyjum, London og Flórída. Hann stofnaði listaháskóla á Spáni á þessu ári ásamt konu sinni Oksana Zubkov. Allir sem langar að læra meira og hafa áhuga á myndlist eru hvattir til að skrá sig, því núna er tækifærið. Skráning á osk.thorhallsdottir@ gmail.com eða í síma 869 2179 (Ósk). Til hægri: Nýjasta verk Oleg Zubkov eftirmynd af verki William Bugreo „Pandora“. Þekktur rússneskur málari með námskeið í Grindavík Að ofan: Oleg Zubkov með eiginkonu sinni og nemanda. vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár // 15

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.