Víkurfréttir - 01.09.2021, Blaðsíða 22
Gjaldkeri á
fjármálasviði
Samkaup leitar að metnaðarfullum
og áhugasömum einstaklingi í starf
gjaldkera á fjármálasviði fyrirtækisins.
Gjaldkeri mun starfa á aðalskrifstofu
Samkaupa, Krossmóa 4 Reykjanesbæ.
Allar nánari upplýsingar má nálgast
á www.samkaup.is
Eyjamaðurinn Jón Ólafur Daníelsson þjálfar meistaraflokk
kvenna í knattspyrnu hjá Grindavík en liðið er nýliði í Lengju-
deildinni í ár. Tímabilið fór ekkert sérstaklega vel af stað hjá
Grindvíkingum en þær hafa sýnt stöðugar bætingar eftir því
sem liðið hefur á leiktíðina og eru komnar í ágætis stöðu til að
halda sæti sínu í deildinni. Jón Óli flutti til Keflavíkur í gosinu
og á góðar minningar frá Suðurnesjum. Víkurfréttir heyrðu í
Jóni eftir ótrúlegan leik Grindavíkur gegn FH á dögunum sem
endaði með 4:4 jafntefli eftir að útlit væri fyrir að heimaliðið
væri að landa sigri með marki rétt fyrir leikslok en gestirnir
náðu að jafna mínútu síðar.
„Þetta var svakalegur leikur,“ segir Jón
Óli um leikinn gegn FH en Grindavík
er komið langleiðina með að forða
sér frá falli. Sætið er þó ekki alveg
orðið tryggt, Grindavík er í sjötta
sæti Lengjudeildar kvenna en aðeins
munar tveimur stigum á sjötta sætinu
og því næstneðsta svo það er ekkert
í hendi enn. „Já, þetta er farið að líta
betur út en það er bara svo margir
innbyrðis leikir eftir að við þyrftum
eiginlega að ná að landa einum sigri í
viðbót. Það eru náttúrlega bara tvær
umferðir eftir, leikir gegn HK hér
heima og Víkingi úti eftir.“
Hvernig líst þér á það sem fram-
undan er?
„Maður er náttúrlega svolítið
kvíðinn því það getur brugðið til
beggja vona. Maður verður bara að
vona það besta og að við höldum
sætinu í deildinni.
Stelpurnar hafa stigið upp eftir því
sem hefur liðið á mótið. Við erum
búin að vera svakalega óheppin á
tímabilinu, það hefur lítið fallið með
okkur en fyrir vikið hafa þær sýnt
þeim mun meiri karakter og í sjálfu
sér hefur hver einasti leikur sem við
höfum spilað í sumar verið hnífjafn.
Það er mikið hrós til leikmanna að
hafa náð þessum framförum miðað
við að það var svolítið verið að rúlla
yfir okkur í vetur.
Við erum búin að sýna það í okkar
leikjum gegn toppliðunum að þetta
lið á heima í deildinni, erum búin að
gera jafntefli og vinna Aftureldingu
og gera jafntefli við KR og FH.“
Knattspyrnuferilinn
hófst í Keflavík
Jón Óli er Eyjamaður en flutti upp á
land í gosinu og bjó í Keflavík í átta
ár. „Þar hóf ég minn knattspyrnu-
feril, í viðlagasjóðshúsunum í Eyja-
byggðinni. Þaðan eigum við félag-
arnir stórkostlegar minningar.
Svo fór ég aftur til Eyja en árin
2002 til 2007 bjó ég í Grindavík.
Þá var mér boðið að koma hingað
og þjálfa, ég ætlaði að koma í svona
eitt ár en endaði í fimm. Ég missti
konuna mína 2015, hún veiktist af
krabbameini og það var ástæðan
fyrir því að við fluttum aftur til Eyja.
Eftir það var ég eiginlega búinn að
taka þjálfarahringinn í Eyjum þegar
mér bauðst að koma aftur – ég ákvað
bara að taka því og sé ekki eftir því,
þetta er búið að vera mjög skemmti-
legt. Síðan hef ég kynnst annari konu
en fjölskyldan býr í Eyjum, hún er
með góða vinnu þar í Íslandsbanka
svo þetta er svona sjómannslíf á mér
núna.“
Stefnir þú á að halda áfram með
Grindavík?
„Við ákváðum að gera samning
út þetta tímabil og það var fundur
um daginn þar sem ég var spurður
hvort ég hefði áhuga á að halda
áfram. Síðan hefur ekkert meira
gerst, staðan er nú bara óljós held ég.
Ábyggilega bara að klára tímabilið og
sjá svo til.“
Það yrðu mikil vonbrigði ef
Grindavík skildi falla því liðið hefur
sýnt það að þær eiga heima í Lengju-
deildinni.
„Já, það yrði mjög fúlt – en mig
langar að þakka því fólki sem hefur
mætt á völlinn í sumar, fyrir að
standa við bakið á okkur. Ég trúi því
að það sé að fá fullt fyrir peninginn
því þetta er hver háspennuleikurinn
eftir annan hjá okkur,“ segir Jón Óli,
þjálfari meistaraflokks kvenna hjá
Grindavík, að lokum.
Ólst upp í
eyjabyggðinni
Kanadíski framherjinn Christabel Oduro hefur reynst happafengur
fyrir Grindvíkinga en þessi öfluga knattspyrnukona hefur
skorað meira en helming marka liðsins í Íslandsmótinu.
... en árin 2002 til 2007
bjó ég í Grindavík.
Þá var mér boðið að
koma hingað og þjálfa,
ég ætlaði að koma
í svona eitt ár en
endaði í fimm.
Jón Óli hefur mikla trú á liði sínu og
yrði fyrir miklum vonbrigðum ef svo
ólíklega skildi fara að þær féllu.
Myndir úr safni Víkurfrétta
Miðvikudagur 1. septeMber 2021 // 32. tbl. // 42. árg.sport
Stöðugar uppfærslur og úrslit leikja á vf.is