Víkurfréttir - 20.10.2021, Side 2
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
Hraðahindrun
veldur ónæði
Íbúi við Fagragarð í Keflavík hefur
sent umhverfissviði Reykjanes-
bæjar erindi þar sem þess er óskað
að hraðahindrun við Fagragarð verði
fjarlægð. Íbúinn segir að hraðahindr-
unin valdi ónæði. Í stað hennar verði
komið fyrir þrengingu. Starfsfólki
umhverfissviðs hefur verið falið að
koma með tillögu að lausn á málinu
og þangað til er afgreiðslu þess
frestað.
Á sjötta hundrað nafnatillögur bárust
Reykjanesbær óskaði eftir til-
lögum frá almenningi um nöfn á
nýjar götur og torg í Dalshverfi
III á dögunum. Íbúar tóku heldur
betur við sér og á sjötta hundrað
nafnatillögur bárust. Það verður
því úr vöndu að ráða hjá starfs-
fólki umhverfissviðs Reykjanes-
bæjar að velja bestu nöfnin á nýju
göturnar en götuheitin eiga að enda
á „dalur“.
Akbrautin Kilo fær andlitslyftingu
Endurbótum á Kilo, einni af meginakbrautunum í flug-
brautakerfi Keflavíkurflugvallar, sem hófust í sumar er
nú lokið. Um er að ræða einn hluta af endurbótum á
brautakerfinu sem um leið er liður í stórframkvæmdum
á vellinum sem kynntar voru fyrir nokkrum mánuðum
og hrint var af stað í kjölfar hlutafjáraukningar ríkisins
í Isavia.
Núverandi akbraut var fræst, gert var við hana og
ráðist í yfirlögn á henni með tilheyrandi undirvinnu.
Þessu til viðbótar var ljósabúnaðurinn á akbrautinni
endurnýjaður. Efnið sem fræst var upp verður notað
síðar í öðrum verkefnum á vellinum. Það er liður í hring-
rásarhagkerfinu.
„Framkvæmdin hefur gengið vonum framar,“ segir
Ingunn Loftsdóttir, deildarstjóri flugbrauta og vega hjá
Isavia. „Við réðumst í verkið í vor og vannst það vel þrátt
fyrir að veðuraðstæður hafi ekki alltaf verið okkur hlið-
hollar. Endurnýjunin á Kilo var mikilvægt verkefni og
mun hún bæta þjónustuna á vellinum.“
Óska eftir undan-
þágu frá reglum um
lágmarksíbúafjölda
Á fundi fjölskyldu- og velferðarráðs
Suðurnesjabæjar nýverið var sam-
þykkt að leggja til við bæjaryfir-
völd að hafnar verði viðræður við
sveitarfélögin á Suðurnesjum um
samstarf um umdæmisráð barna-
verndar. Jafnframt er lagt til að
Suðurnesjabær sæki um undan-
þágu frá reglum um lágmarksíbúa-
fjölda að baki barnaverndarþjón-
ustu á grundvelli fagþekkingar á
fjölskyldusviði.
Ráðið samþykkti að vísa málinu
áfram til bæjarráðs Suðurnesjabæjar.
Þar var samþykkt að óska eftir við-
ræðum við önnur sveitarfélög á
Suðurnesjum um samstarf um um-
dæmisráð barnaverndar. Jafnframt
var samþykkt að óskað verði eftir
undanþágu frá reglum um lágmarks-
íbúafjölda að baki barnaverndar-
þjónustu á grundvelli fagþekkingar
á fjölskyldusviði.
Tengingu lokað til reynslu
Íbúar við Melteig í Reykjanesbæ lögðu fram erindi 26. ágúst 2021 um
breytt fyrirkomulag umferðar um Melteig vegna öryggis vegfarenda og
íbúa, eins og greint hefur verið frá hér í Víkurfréttum. Erindinu var frestað
og starfsfólki umhverfissviðs Reykjanesbæjar falið að kanna tillögur að
lausn.
Óskað var umsagna lögreglu sem mælir með lokunum sambærilegum
við tillögu íbúa. Lagt er til að boganum sé lokað við Aðalgötu og tengingu
Kirkjuteigs og Melteigs verði lokað. Erindi samþykkt til reynslu til eins árs.
230 þúsunda króna sekt fyrir hraðakstur
Talsverðar annir voru hjá lögreglu
yfir helgina vegna brota og óhappa
í umferðinni. Ökumaður var stöðv-
aður og reyndist hann vera aðeins
sextán ára og því réttindalaus. Rætt
var við piltinn og honum gerð grein
fyrir alvarleika málsins. Einnig var
rætt við forráðamann hans.
Afskipti voru svo höfð af all-
mörgum ökumönnum sem höfðu
gerst brotlegir í umferðinni. Nokkrir
voru kærðir fyrir of hraðan akstur.
Sá sem hraðast ók mældist á 159 km
hraða þar sem hámarkshraði er 90
km. Hans bíður 230 þúsunda króna
sekt. Annar ökumaður, 17 ára gamall
var tekinn á 137 km. hraða og var
haft samband við forráðamann og
tilkynning send á barnavernd.
Fáeinir voru teknir úr umferð
vegna vímuefnaaksturs og höfðu
tveir þeirra verið sviptir ökurétt-
indum áður.
128 fengu fjárhagsaðstoð
Í september 2021 fengu 128 einstaklingar greidda fjárhagsaðstoð til fram-
færslu hjá Reykjanesbæ, alls voru greiddar kr. 19.944.928. Á sama tímabili
2020 fengu 147 einstaklingar greidda fjárhagsaðstoð og voru alls greiddar
kr. 20.683.006.
Í september 2021 fengu alls 277 einstaklingar greiddan sérstakan hús-
næðisstuðning sveitarfélagsins, samtals að upphæð kr. 3.805.100. Í sama
mánuði 2020 fengu 232 einstaklingar greiddan sérstakan húsnæðisstuðning,
samtals kr. 3.150.289.
Séð yfir hluta Dalshverfis
II en Dalshverfi III mun rísa
innan við það hverfi.
Ekki henda raftækjum á víðavangi!
Það kostar ekkert að losa sig við raftæki og
tölvubúnað á móttökustöðvum Kölku.
Nánar á kalka.is
0 krónur í Helguvík,
Grindavík og Vogum
2 // vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM Í 40 ár