Víkurfréttir - 20.10.2021, Page 5
Stórir pollar á vellinum
og vallarhúsið í Njarðvík
farið að láta á sjá
– Komið að þolmörkum á mörgu og tími kominn á
uppfærslu eða endurnýjun við Afreksbraut
Staða knattspyrnudeildar Ung-
mennafélags Njarðvíkur og rekstr-
arsamningur íþróttasvæðis var til
umfjöllunar í bæjarráði Reykja-
nesbæjar sem hefur samþykkt að
leggja til eina milljón króna til að
ganga frá knattspyrnuvellinum við
Afreksbraut 10 fyrir veturinn. Bæj-
arráð samþykkir flutning fjárheim-
ilda milli deilda. Formaður UMFN
ritaði erindi til bæjaryfirvalda
í Reykjanesbæ um stöðu knatt-
spyrnudeildar UMFN og rekstrar-
samning íþróttasvæðis.
„Knattspyrnudeild Njarðvíkur,
með samþykki formanns aðal-
stjórnar, sendir ykkur erindi þetta
er varðar stöðu knattspyrnudeild-
arinnar og rekstrarsamning íþrótta-
svæðisins við Afreksbraut 10. Það
er óþarfi að hafa orðalengingar um
fortíðina, brostin loforð og bága að-
stöðu. Núgildandi samningur um
rekstur íþróttasvæða í Reykjanesbæ
sem gerður var við knattspyrnu-
deildina 26. janúar 2021 var að
fjárhæð kr. 13.030.000. Deildin telur
að hækka þurfi fjárhæðina verulega
fyrir nk. tímabil. Líkt og kom fram á
126. fundi ÍT-ráðs, er Einar Friðrik
Brynjarsson, umhverfisfræðingur,
mætti sem gestur undir liðinn,
kostir og gallar þess að leggja gras
eða gervigras á knattspyrnuvelli, þá
er undirlagið á Rafholtsvelli verulega
slæmt, og hefur verið það frá fyrsta
degi. Aðspurður um það hvort hag-
stæðast væri að fletta ofan af vell-
inum og setja gervigras í staðinn
sagði Einar að með mikilli vinnu
og miklu viðhaldi yrði möguleiki
að ná vellinum góðum. Með mikilli
vinnu síðustu tvö sumur, ásamt
tilheyrandi kostnaði, hefur knatt-
spyrnuvöllurinn við Afreksbraut
10 (Rafholtsvöllurinn) aldrei verið
betri. Hins vegar er enn langt í land,
völlurinn drenar illa og þegar rignir
mikið myndast stórir pollar á vell-
inum. Jafnframt er vallarhúsið farið
að láta á sig sjá. Í sumar var borið
á allt húsið og síðastliðinn vetur að
okkar frumkvæði og á eigin kostnað
bjuggum við til 15x30 metra gervi-
grasvöll. Hins vegar er komið að þol-
mörkum á mörgu og tími kominn á
uppfærslu eða endurnýjun:
• Í klefum er farið að sjást á
gólfum,
• Sturtuklefar farnir að vera ljótir
• Gólf farin að molna niður vegna
utanaðkomandi bleytu
• Hurðar orðnar lélegar og sumar
hverjar ónýtar
• Þakrennur ónýtar
• Bæta þarf lýsingu á húsinu
• Gólfdúkurinn er orðinn mjög lé-
legur í öllu húsinu
• Áhaldageymsla fyrir vélar og
tæki er orðin mjög léleg, hún er
staðsett í tveimur gámum við
enda vallarhússins og hvorki
tengd rennandi vatni né raf-
magni og leka gámarnir einnig
þannig að vélar og áhöld eyði-
leggjast fljótt þar inni.
Ofangreindur listi er einvörðungu
hluti af þeim verkefnum sem þarf
að ráðast í. Það má einnig nefna
framkvæmdir líkt og að ganga frá
pallinum við völlinn sem gerður
var fyrir þremur árum, bæta að-
stöðu fyrir fjölskyldufólk og börn,
loka stúkunni, heildaryfirhalningu á
vallarhúsinu utandyra o.fl. en deildin
tók saman fyrr í sumar framkvæmdir
sem þurfti að ráðast í.
Í samantekt sem finna má á fylgi-
skjali eitt er áætlun um rekstur vall-
arins með hliðsjón af þeim kostnaði
sem deildin hefur þurft að leggja út
þetta sumarið. Þessi áætlun er gerð
til að viðhalda núverandi ástandi. Þar
er ekki gert ráð fyrir neinum nýjum
áhöldum, neinni útkeyptri vinnu
við viðhald á öðru en sjálfu gras-
svæðinu. Líkt og sjá má þá vantar
nokkuð upp á það að möguleiki sé
að reka deildina með fullnægjandi
hætti. Stjórn deildarinnar óskar því
eftir að bætt verði í samningsfjárhæð
rekstrarsamningsins fyrir árið 2022.
Stjórn deildarinnar sér jafnframt ekki
fram á það að möguleiki sé að ganga
frá vellinum fyrir veturinn með full-
nægjandi hætti þar sem fjármagn er
ekki til staðar til þess að tappagata
og sanda allt svæðið. Óskar stjórn
knattspyrnudeildarinnar þar af leið-
andi eftir fjármagni frá Reykjanesbæ
til þess að ganga frá vellinum, til að
hið góða starf sem unnið hefur verið
sumrin 2020 og 2021 fari ekki út um
gluggan yfir veturinn. Neðangreindur
kostnaður er við að tappagata allt
svæðið, samtals um 21.800 m2:
• Tappagötun: 20,8 kr./m2 *
21.800 = kr. 453.440,-
• Sandur: kr. 1.200.000,- (u.þ.b.
12.000 kr./m3)
• Samtals: kr. 1.653.440,-
Stjórn deildarinnar vill að endingu
enn og aftur lýsa yfir ánægju sinni
og þakklæti fyrir framlag Reykjanes-
bæjar. Deildin hefur fengið framlag
í formi starfsmanna, sértækum
COVID-styrkjum ásamt reglulegu
fjárframlagi. Rekstur íþróttafélaga
getur verið snúinn, hvað þá á tímum
sem þessum, þar sem óvissan ræður
ríkjum. Íþróttastarf er hins vegar
hornsteinninn í hverju samfélagi og
þurfum við í Reykjanesbæ að hlúa
vel að því. Hvort það snýr að æsku-
lýðsstarfi eða afreksstarfi,“ segir í
erindinu sem Ólafur Eyjólfsson, for-
maður, sendir fyrir hönd Ungmenna-
félags Njarðvíkur.
Horft yfir íþróttasvæði Njarðvíkinga við Afreksbraut.
Bólusetningar við inflúensu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefst
21. október 2021. Bólusett er á Iðavöllum 12 a.
Tímanir eru vefbókanlegir á Heilsuvera.is og hvetjum við alla til að nýta
tæknina og minnka álagið á símsvörun á HSS.
Fyrstu tvær vikurnar bólusetjum við forgangshópa.
8. nóvember verður opnað fyrir almennar bólusetningar.
Inflúensubólusetning 2021
Forgangshópar í bólusetningu eru:
• Þau sem eru 60 ára eða eldri
• Fólk með langvinna sjúkdóma, s.s. hjarta-, lungna-,
nýrna- og lifrarsjúkdóma, sykursýki, illkynja sjúkdóma
og aðra ónæmisbælandi sjúkdóma.
• Þungaðar konur
Þessir hópar fá bóluefnið frítt en borga komugjald, 500 kr., nema eldri
borgarar og öryrkjar sem eru undanþegnir komugjaldi
Til að flýta fyrir er best að vera í stutterma bol eða stutterma skyrtu
til að auðvelt sé að bera handlegg. Munið eftir grímu og komið ekki í
bólusetningu ef einhver flensu einkenni eru til staðar.
Að minnsta kosti fjórtán dagar þurfa að líða á milli bólusetningar gegn
COVID-19 og inflúensubólusetningar.
Þau sem eru yngri en 60 ára og tilheyra ekki áhættuhópum samkvæmt
skilgreiningu Embættis landlæknis borga bæði komugjald, 500 kr., og
bóluefnið (Vaxigrip Tetra) sem kostar nú 1.800 kr.
Öldungaráð Suður-
nesja hélt aðalfund
sinn 15. október
síðastliðinn Það
var árið 2014 sem
Öldungaráð Suður-
nesja var stofnað
og hefur á þessum
árum unnið ötullega að baráttu-
málum eldri borgara á Suður-
nesjum og þótt nokkur árangur hafi
náðst eru ansi mörg hagsmunamál
enn eftir sem árangur þarf að nást í.
Nú er nýtt kjörtímabil að hefjast á
Alþingi. Það eru sex þingmenn sem
sitja á nýju þingi sem búsetir eru hér
á Suðurnesjum. Öldungaráð væntir
þess að geta átt gott samstarf við
þessa þingmenn til að ná fram okkar
hagsmunamálum.
Nýtt hjúkrunarheimili
Samþykktir liggja fyrir um að hafin
skuli bygging á nýju 60 rúma hjúkr-
unarheimi í nágrenni Nesvalla. Við
það munu skapast 30 ný rými þar
sem starfsemi á Hlévangi verður
hætt. Þrátt fyrir þessi fögru fyrirheit
hefur skóflustunga að nýju heimili
ekki átt sér stað. Það verður því verk
að vinna fyrir Öldungaráð að ýta á
eftir þessu framfaramáli.
Dagdvalarrými
Samningar hafa tekist um að reka
átta dagdvalarrými í Suðurnesjabæ
á Garðvangi. Þessu ber að fagna og
að sjálfsögðu munum við fylgjast
með að þetta verði að raunveruleika.
Þetta er mjög góð leið fyrir þá eldri
borgara sem geta ekki dvalið að öllu
leyti á sínu heimili og fá þannig góða
þjónustu yfir daginn.
Fjögur þúsund sækja
þjónustu annað
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
hefur í mörg ár verið mikið til um-
ræðu. Margir kvarta yfir að lækna-
þjónusta sé engan veginn nógu góð.
Það virðist t.d. með öllu útilokað að
við hér á Suðurnesjum getum fengið
okkar eigin heimilislækni. Þetta
hefur þýtt það að yfir 4.000 ein-
staklingar leita eftir læknisþjónustu
á Reykjavíkursvæðið. Það ættu allir
að geta verið sammála um að þetta
getur ekki gengið svona áfram.
Nýjar heilsugæslustöðvar
Heilbrigðisráðherra hefur gefið út
vilyrði fyrir nýrri heilsugæslustöð í
Njarðvík. Þrátt fyrir það hefur ekki
sést nein auglýsing um húsnæði eða
frekari samninga. Það verður því
hlutverk Öldungaráðs að knýja á um
að þessi mál fái jákvæða niðurstöðu
í góðu samstarfi með þingmönnum
og sveitarstjórnarmönnum. Það
væri mjög æskilegt að rekstur þess-
arar nýju heilsugæslustöðvar verði
boðinn út þannig að einkaaðilar
tækju að sér reksturinn. Það fyrir-
komulag þýðir ekki að viðskiptavinir
borgi hærra gjald. Þeir borga það
sama og HSS. Með þessu myndu
ansi margir af þeim fjögur þúsund
sem sækja þjónustu annað koma
til baka. Ný heilsugæslustöð myndi
einnig verða til þess að bæta heilsu-
gæslustöðina á HSS. Í framhaldinu
þarf svo einnig að huga að nýrri
heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ.
Bæta þarf kjörin
Í kosningabaráttunni ræddu allir
flokkar að bæta þyrfti kjör eldri
borgara. Öldungaráð Suðurnesja
mun fylgja þessum málum eftir.
Það eru allt of margir eldri borgarar
sem búa við slök kjör. Það gengur
ekki lengur að þessi mál verði áfram
óbreytt. Það þarf og verður að bæta
kjör þessa hóps.
Sigurður Jónsson,
formaður Öldungaráðs
Suðurnesja
Baráttumál eldri borgara
vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM Í 40 ár // 5