Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.10.2021, Side 9

Víkurfréttir - 20.10.2021, Side 9
Reykjanesviti þurfti mikla umhirðu fyrstu áratugina eins og vitar almennt á þeim tímum. Þar að auki var hann byggður á afskekktum stað og torfarið að komast að og frá vitanum. Því var ekki annað til ráða en að hafa starfandi vitavörð í fullu starfi sem byggi á staðnum og sinnti vitanum. Þar sem vitagæslan þurfti að vera stöðug varð ekki komist hjá því að hafa þar a.m.k. tvo menn að störfum. Arnbirni Ólafssy ni , fy rsta vitaverðinum, var skylt að halda að- stoðarmann og greiða honum kaup af árs- launum sínum. Honum þótti hins vegar launin lág og þegar haustið 1879 var kominn í hann brottfararhugur. Í bréfi hans til Jóns Jónssonar landritara segir hann að hann sé alltaf að sjá betur og betur að ómögulegt sé að „komast af með 2 menn til að gæta vitans, vegna þess að verði eitthvað að öðrum þeirra, eða þurfi að leita til byggða einhverra orsaka vegna, þá er ef til vill ekki fært öðrum en fullröskum karlmanni og þó valla að komist verði til baka aptur sama dag þegar stuttur er dagur. Þess vegna er óumflýjanlega nauðsynlegt að hafa 3ja mann yfir veturinn ...“. Þá féll Arnbirni illa að búa í þeirri miklu einangrun sem fylgdi vistinni. Þegar við bættist að brunnurinn varð stundum vatns- laus á veturna svo heimilisfólkið varð að láta sér nægja „klaka og skítugan snjó“ svo dögum skipti og torfþakið á vitavarða- bænum lak svo hann varð fullur af sagga varð vistin lítt eftirsóknarverð. Arnbjörn sagði endanlega upp og fékk lausn frá emb- ættinu 1. ágúst 1884. Við stöð- unni tók Jón Gunnlaugsson skipasmiður o g g e g n d i starfinu til ársins 1902. fyrsti viti landsins kominn í gagnið,“ segir Eiríkur. Margir að uppgötva þetta svæði í dag Hallur fer fyrir Hollvinasamtökum Reykjanesvita og segist hafa haft áhuga á sögu og minjum allt frá barn- æsku. Í gegnum Sögu- og minjafélag Grindavíkur hafi áhuginn á Reykja- nesvita vaknað. Fyrir nokkrum árum hafi hann, ásamt Ólafi Sigurðssyni, farið og skoðað konungsskildina sem voru á Reykjanesvita á Bæjar- felli þegar hann var reistur. Þar hafi boltinn farið að rúlla og ákveðið að stofna sérstakt félag um verkefnið á Reykjanesi, sem var uppsetning á konungsskjöldunum, sýningin í radí- óvitanum og framtíðardraumurinn er, að sögn Halls, að semja við Vega- gerðina, sem á og rekur Reykjanes- vita, um að þar verði leyfilegt að taka á móti fólki og hleypa því upp í vitann. „Svo vitum við að Reykjanes Geopark er búinn að undirbúa gönguleiðir um svæðið en á þessu svæði er hægt að gera svo margt skemmtilegt. Það eru til dæmis ennþá til steinar hérna úr fyrsta vitanum sem mætti færa til, raða upp og gera eitthvað skemmtilegt með,“ segir Hallur og Eiríkur bætir við: „Það eru margir að uppgötva þetta svæði í dag. Við erum hérna í október og það er stöðugur straumur af fólki hérna, ferðamönnum. Þegar við fórum að grúska í þessari sögu þá kemur í ljós að vitinn hérna varð strax vinsæll til heimsókna. Menn voru að koma hérna á sumrin og fá að skoða vitann. Ásóknin var svo mikil að vitaverðir voru farnir að kvarta undan þessu því það tók frá þeim tíma að vera alltaf að taka á móti gestum og svo þurfti að bjóða uppá kaffi og með því, þannig að þetta voru heilmikil útgjöld fyrir vitaverðina. Vitaverðir sóttu því um heimild fyrir því að selja inn í vitana. Það var leyft og jafnframt var sett reglugerð hvernig á að meðhöndla þessa gesti.“ Í gegnum tíðina hafa orðið hér mörg alvarleg sjóslys. „Já og við verðum með sjóslysa- kort hérna sem var unnið fyrir okkur og munum sýna alla sjóskaða sem orðið hafa við Reykjanesið og þeir eruu gríðarlega margir því ég held að það hafi hvergi á landinu orðið fleiri sjóskaðar en við Reykjanes. Þetta var algeng siglingaleið og svo var vetrarvertíðin hér í skammdeginu og versta veðrinu,“ segir Eiríkur. Stórslys á forsíðum blaðanna Á sýningunni í Radíóvitanum á Reykjanesi eru m.a. forsíður dag- blaða frá síðustu öld þar sem sagt var frá stórum sjóslysum. Meðal annars er sagt frá strandi Jóns for- seta á Stafnesi. Þar fórst öll áhöfnin en í landi stóðu menn og horfðu á og gátu ekkert gert. Slysið við Stafnes varð endanleg kveikja þess að stofnaðar voru slysavarnadeildir um allt land. Á sýningunni á Reykjanesi er fjöldi ljósmynda og upplýsandi og fróð- legur texti. Sýndar eru myndir af fyrsta vitanum á Valahnúk og einnig frá byggingu vitans á Bæjarfelli. Eins og í dag þá höfðu jarðskjálftar áhrif á Reykjanesi í gamla daga. Fljótlega, eða um ttuttugu árum síðar, var farið að huga að nýjum vita á Bæjar- felli því jarðskjálftar og brim höfðu áhrif á Valahnúk. Hrunið hafði úr klettinum og ef ekkert hefði verið að gert þá hefði vitinn fallið fyrir björg og í hafið. Páll Ketilsson pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is Veturnir voru oft langir og tilbreytingasnauðir á afskekktum vita- stöðum líkt og lengi var á Reykjanesvita – en vitarnir urðu fljótt vin- sælir til heimsókna á sumrin og jafnvel svo að vörðum þótti nóg um. Vitaverðir við Faxaflóavitana kvörtuðu undan því að þeir yrðu fyrir umtalsverðum töfum frá vinnu og hefðu þar að auki „eigi allsjaldan önnur óbeinlínis útgjöld við slíkar gestakomur samkvæmt gamalli íslenskri siðvenju“. Þeir fóru fram á heimild til að taka gjald af gestum og var það samþykkt árið 1910. Nokkrum árum fyrr höfðu verið gefnar út sérstakar reglur varðandi heimsóknir gesta í vitana, eins og fram kemur í Stjórnartíðindum frá 1897. Þar segir m.a.: „Aðkomumenn skulu rita nöfn sín, stöðu og heimili í þar til gjörða bók, áður en þeim er sýndur vitinn. Ekki má hleypa fleirum inn í vitann en rúm leyfir. Vitavörður verður að leggja ríkt að við aðkom- endur að snerta ekki á nokkrum áhöldum vitans, gæta þess að þeir séu ekki í votum klæðum, taki ekki með sjer göngustafi eða regnhlífar í vitann. Tóbaksreyking er öllum fyrirboðin í vitanum, bæði vita- mönnum og öðrum; vitavörður skal biðja menn um að þurka af sjer á gólfmottunum, áður en þeir ganga um vitann, og brýna fyrir þeim að þeir megi ekki hrækja á gólfin, og hundar mega alls ekki koma í vitann. Það er fyrirboðið að leyfa nokkrum ölvuðum manni að ganga í vitann, eða þeim, sem eru ræflalega til fara. Vitavörður skal vera þægilegur í viðmóti við þá, sem óska að sjá vitann, og skýra þeim frá ásigkomulagi allra vitafæranna. Á þeim tíma, er logar á vitanum, leyfist engum aðkomandi manni að ganga í vitann.“ Um aldir, líkast til alveg frá landnámi, hafa Ís- lendingar þurft að færa Ægi konungi miklar fórnir. Annars vegar veitti hafið landsmönnum greiða för milli staða og landa og í djúpin sóttu menn í gullkistuna sem fiskimiðin hafa ætíð verið hér við land. Hins vegar voru siglingar og veiðar hættu- spil, ekki síst yfir skammdegið þegar allra veðra var von. Sjóskaðar og manntjón voru daglegt brauð og oft voru hoggin stór skörð í lítil samfélög þegar skip og bátar fórust. Bygging Reykjanesvita á Valahnúk árið 1878 markaði tímamót í siglingsögu landsins. Það sýnir vel þá þörf sem landsmenn höfðu fyrir vita og öruggari siglingar að og umhverfis Ísland að frumvarp um byggingu vita var lagt fyrir á fyrsta löggjafarþinginu árið 1874, eftir að Íslendingar fengu stjórnarskrá og Alþingi fékk löggjafar- og fjárveitingavald. Ekki er að sjá að komið hafi til greina að reisa fyrsta vita á Íslandi annars staðar en á Reykjanesi, enda munu langflest skip sem til Íslands komu hafa átt erindi fyrir Reykjanes og leituðu því upp að suðvesturhorni landsins. Þúsundir og aftur þúsundir Íslendinga hafa farist á sjó í gegnum aldirnar og sjómenn eiga skilið að þeirra fórna sé minnst. Þessi saga er hrikaleg og erfið oft á tíðum að meðtaka en um leið er þetta saga hugrekkis og krafta sem tekst að leysa úr læðingi þegar aðstæður krefjast og menn þurfa að snúa bökum saman. Sýningunni er ætlað að veita örlitla innsýn í mikla og mikilvæga sögu sjóslysa og uppbyggingar á vitum til að auka öryggi sjófarenda. Um leið gera aðstandendur hennar sér vonir um og fyrirætlan að sýningin vaxi og geri sögunni betri skil til lengri tíma. Til stendur að reisa þjónustu- og upplýsinga- miðstöð í því magnaða umhverfi og náttúru sem umlykur Reykjanesvita og þangað á slík sýning mikið erindi. Um sýninguna á Reykjanesi Arnbjörn Ólafsson var fæddur 24. maí 1849 og var trésmiður. Hann var uppalinn á Flókastöðum í Fljótshlíð en bjó í Garði þegar hann sótti um vitavarðastöðuna. Arnbjörn fór til Danmerkur vorið 1879 til að kynna sér umhirðu vitans. Vitaverðir Reykjanesvita Arnbjörn Ólafsson 1878 – 1884 Jón Gunnlaugsson 1884 – 1902 Þórður Þórðarson 1902 – 1903 Jón Helgason 1903 – 1915 Vigfús Sigurðsson 1915 – 1925 Ólafur Pétur Sveinsson 1925 – 1930 Jón Ágúst Guðmundsson 1930 – 1938 Kristín Guðmundsdóttir 1938 – 1943 Einar Jónsson 1943 – 1947 Sigurjón Ólafsson 1947 – 1976 Björn Kári Björnsson 1976 – 1977 Valgerður Hanna Jóh. 1977 – 1992 Pétur Kúld Ingólfsson 1992 – 1999 Arnbjörn Ólafsson var fæddur 24. maí 1849 og var trésmiður. Hann var uppalinn á Flókastöðum í Fljótshlíð en bjó í Garði þegar hann sótti um vitavarðastöðuna. Arnbjörn fór til Danmerkur vorið 1879 til að kynna sér umhirðu vitans. Reykjanesviti þurfti mikla umhirðu fyrstu áratugina eins og vitar almennt á þeim tímum. Þar að auki var hann byggður á afskekktum stað og torfarið að komast að og frá vitanum. Því var ekki annað til ráða en að hafa starfandi vitavörð í fullu starfi sem byggi á staðnum og sinnti vitanum. En þar sem vitagæslan þurfti að vera stöðug varð ekki komist hjá því að hafa þar a.m.k. tvo menn að störfum. Arnbirni Ólafssyni, fyrsta vitaverðinum, var skylt að halda aðstoðarmann og greiða honum kaup af árslaunum sínum. Honum þótti hins vegar launin lág og þegar haustið 1879 var kominn í hann brottfararhugur. Í bréfi hans til Jóns Jónssonar landritara segir hann að hann sé alltaf að sjá betur og betur að ómögulegt sé að „komast af með 2 menn til að gæta vitans, vegna þess að verði eitthvað að öðrum þeirra, eða þurfi að leita til byggða einhverra rsaka ve na, þá er ef til vill ekki fært öðrum en fullröskum karlmanni og þó valla að komist verði til baka aptur sama dag þegar stuttur er dagur. Þess vegna er óumflýjanlega nauðsyn- legt að hafa 3ja mann yfir veturinn...„ Þá féll Arnbirni illa að búa í þeirri miklu einangrun sem fylgdi vistinni. Þegar við bættist að brunnurinn varð stundum vatnslaus á veturna svo heimilisfólkið varð að láta sér nægja „klak og skítugan snjó“ svo dögum skipti og torfþakið á vita- varðabænum lak svo hann varð fullur af sagga varð vistin lítt eftirsóknarverð. Arnbjörn sagði endanlega upp og fékk lausn frá embættinu 1. ágúst 1884. Við stöðunni tók Jón Gunnlaugsson skipasmiður og gegndi starfinu til ársins 1902. Vitavörðurinn „Úti á yztu annesjum sitja víða menn sem, óþektir, vinna eitt hið blessunarríkasta starf; þeir varpa varnargeisla út yfir hafið, til þeirra sjómanna, sem þeir hvorki sjá né þekkja, en sem eru að reyna að þreifa sig áfram gegnum myrkrið á leið til tryggrar hafnar...“ Thorvald Krabbe vitamálastjóri Reglur um heimsóknir gesta í vita Veturnir voru oft langir og tilbreytingasnauðir á afskekktum vitastöðum líkt og lengi var á Reykjanesvita. En vitarnir urðu fljótt vinsælir til heimsókna á sumrin og jafnvel svo að vörðum þótti nóg um. Vitaverðir við Faxaflóavitana kvörtuðu undan því að þeir yrðu fyrir umtalsverðum töfum frá vinnu og hefðu þar að auki „eigi allsjaldan önnur óbeinlínis útgjöld við slíkar gesta- komur samkvæmt gamalli íslenskri siðvenju.“ Þeir fóru fram á heimild til að taka gjald af gestum og var það samþykkt árið 1910. Nokkrum árum fyrr höfðu verið gefnar út sérstakar reglur varðandi heimsóknir gesta í vitana, eins og fram kemur í Stjórnartíðindum frá 1897. Þar segir m.a.: Aðkomumenn skulu rita nöfn sín, stöðu og heimili í þar til gjörða bók, áður en þeim er sýndur vitinn. Ekki má hleypa fleirum inn í vitann en rúm leyfir. Vitavörður verður að leggja ríkt að við að- komendur að snerta ekki á nokkrum áhöldum vitans, gæta þess að þeir séu ekki í votum klæðum, taki ekki með sjer göngustafi eða regnhlífar í vitann. Tóbaksreyking er öllum fyrirboðin í vitanum, bæði vitamönnum og öðrum; vitavörður skal biðja menn um að þurka af sjer á gólfmottunum, áður en þeir ganga um vitann, og brýna fyrir þeim að þeir megi ekki hrækja á gólfin, og hundar mega alls ekki koma í vitann. Það er fyrirboðið að leyfa nokkrum ölvuðum manni að ganga í vitann, eða þeim, sem eru ræflalega til fara. Vitavörður skal vera þægilegur í viðmóti við þá, sem óska að sjá vitann, og skýra þeim frá ásigkomulagi allra vitafæranna. Á þeim tíma, er logar á vitanum, leyfist engum aðkomandi manni að ganga í vitann. Fyrsti vitavörðurinn Leiðarljós að lífhöfn Saga Reykjanesvita og sjóslysa Um aldir, líkast til alveg frá landnámi, hafa Íslendingar þurft að færa Ægi konungi stórar fórnir. Annars vegar veitti hafið landsmönnum greiða för milla staða og landa og í djúpin sóttu menn í gullkistuna sem fiskimiðin hafa ætíð verið hér við land. Hins vegar voru sigl- ingar og veiðar hættuspil, ekki síst yfir skammdegið þegar allra veðra var von. Sjóskaðar og manntjón voru daglegt brauð og oft voru hoggin stór skörð í lítil samfélög þegar skip og bátar fórust. Bygging Reykjanesvita á Valahnúk árið 1878 markaði tímamót í siglingsögu landsins. Það sýnir vel þá þörf sem landsmenn höfðu fyrir vita og öruggari siglingar að og umhverfis Ísland að frumvarp um byggingu vita var lagt fyrir á fyrsta löggjafarþinginu árið 1874, eftir að Íslendingar fengu stjórnarskrá og Alþingi fékk löggjafar- og fjárveitingavald. Ekki er að sjá að komið hafi til greina að reisa fyrsta vita á Íslandi annars staðar en á Reykja- nesi, enda munu langflest skip sem til Íslands komu hafa átt erindi fyrir Reykjanes og leituðu því upp að suðvesturhorni landsins. Þúsundir og aftur þúsundir Íslendinga hafa farist á sjó í gegnum aldirnar og sjómenn eiga skilið að þeirra fórna sé minnst. Þessi saga er hrikaleg og erfið oft á tíðum að meðtaka en um leið er þetta saga hugrekkis og krafta sem tekst að leysa úr læðingi þegar aðstæður krefjast og menn þurfa að snúa bökum saman. Sýningunni er ætlað að veita örlitla innsýn í mikla og mikilvæga sögu sjóslysa og upp- byggingar á vitum til að auka öryggi sjófarenda. Um leið gera aðstandendur hennar sér vonir um og fyrirætlan að sýningin vaxi og geri sögunni betri skil til lengri tíma. Til stendur að reisa þjónustu- og upplýsingamiðstöð í því magnaða umhverfi og náttúru sem umlykja Reykjanesvita og þangað á slík sýning mikið erindi. Um sý inguna Sýningin er samstarfsverkefni Hollvinasamtaka Reykjanesvita og nágrennis og Byggðasafns Reykjanesbæjar Sýningarstjóri og hönnuður: Eiríkur P. Jörundsson Listar með nöfnum látinna sjómanna voru u nir á vegum Sjóminj safnsins í Reykjavík, Borgarsögusafni. Kort af sjóslysum við Ísland voru unnin af Guðjóni Inga Haukssyni og Agnari Jónasi Jónssyni. Eftirfarandi styrktu framkvæmdir við húsið og uppsetningu sýningarinnar: Uppbyggingarsjóður Suðurnesja Safnasjóður Slippfélagið Vegagerðin Reglur um heimsóknir gesta í vita Núverandi viti sem stendur á Bæjarfelli var byggður veturinn 1907–1908. Danska vita- málastofnunin lagði í fyrstu til að reistur yrði 70 feta hár járngrindarviti á Bæjarfelli árið 1908 en ný heimastjórn landsins taldi ekki verjandi að bíða svo lengi þar sem hætta var talin á að vitinn á Valahnúk félli í hafið. Veitti Alþingi því fé til að reisa vitann þegar árið 1907. Var þetta fyrsta stórverkefnið sem ráðist var í á ábyrgð heimastjó nar. Ákveðið var að byggja turn úr tilhöggnu grjóti og steinsteypu. Hönnuðir voru Thorvald Krabbe, síðar vitamálastjóri, og Frederik Kiørboe arkitekt. Framkvæmdum lauk á Þorláks- messu en ljóshúsi og ljóstækjum var komið fyrir í byrjun árs 1908. Kveikt var á vitanum þann 20. mars sama ár. Reykjanesviti er sívalur kónískur turn, 20 metra hár, og stendur á breiðri 2,2 metra hárri undirstöðu. Ljóshúsið er 4,5 metrar á hæð og er heildarhæð vitans því 26,7 metrar. Árið 1929 var byggt við vitann anddyri og gashylkjageymsla úr steinsteypu. Upphaflegur ljósgjafi vitans var steinolíulampi og var ljós hans magnað með 500 mm snúningslinsu. Þetta snúningstæki var knúið af lóðum sem vitavörðurinn dró upp með reglulegu millibili. Gastæki var sett í vitann árið 1929 og var þá gasþrýstingurinn látinn snúa linsunni. Vitinn var raf æddur árið 1957. Allt frá upphafi reksturs Reykjanesvita fram til ársins 1999 var vitavörður þar búsettur. Þegar vitinn á Valahnúk var reistur 1878 var byggður torfbær og útihús undir Bæjarfelli fyrir vitavörðinn og íbúðarhús úr timbri smíðað þar árið 1892. Þau húsakynni og önnur sem byggð voru í þeirra stað eru horfin. Árið 1947 var byggt íbúðarhús fyrir vitavörðinn úr steinsteypu sem enn stendur. Það var hannað af Ágústi Pálssyni arkitekt. Á bæj rstæðinu er einnig steinsteypt hús fyrir raíóvita sem byggt var árið 1936 en radíóviti var í notkun í Reykjanesvita frá árinu 1936 til ársloka 1992. Radíóvitinn gekk fyrstu áratugina fyrir ork frá ljósavélum en eftir 1957 fékk vitinn orku frá rafveitu. Í dag gengur þetta hús jafnan undir nafninu vélarhúsið og er sýningin staðsett þar. Fastri búsetu vitavarða lauk árið 1999 og íbúðarhúsið var síðar selt einkaaðilum. Vitinn er nú fri aður. Nýr viti reistur Árið 1909 var settur upp aukaviti á Skarfasetri á Reykjanestá vegna þess að vitinn á Bæjarfelli hvarf við visst sjónarhorn á bak við Skálafell frá suðaustri. Nýji vitinn kom því ekki að fullum notum fyrir skip sem komu austanað og einnig liggur þoka stundum yfir Bæjarfelli þannig að Reykjanesvitinn sést ekki. Þetta var lítill stálgrindarviti i byrjun en árið 1947 var byggður steinsteyptur viti með innbyggðu ljóshúsi. Vitinn var húðaður með ljósu kvarsi í upphafi en árið 1971 var hann málaður gulur. Leið rljós að lífhöfn Saga Reykjanesvita og sjóslysaUm aldir, líkast til alveg frá landnámi, hafa Íslendingar þurft að færa Ægi konungi stórar fórnir. Annars vegar veitti hafið landsmönnum greiða för milla staða og landa og í djúpin sótt menn í gullkistuna sem fiskimiðin hafa ætíð verið hér við land. Hins vegar voru sigl- ingar og veiðar hættuspil, ekki síst yfir skammdegið þeg r allra veðra var von. Sjóskaðar og manntjón voru dagleg brauð og oft voru hoggin stór skörð í lítil samfélög þegar skip og bátar fórust. Byggi g Reykjanesvita á Valahnúk árið 1878 markaði tímamót í siglingsögu landsins. Það sýnir vel þá þörf sem landsmenn höfðu fyrir vita og öruggari siglingar að og umhverfis Ísland að frumvarp um byggingu vita var lagt fyrir á fyrst löggjafarþinginu árið 1874, eftir að Íslendingar fengu stjórnarskrá og Alþingi fékk löggjafar- og fjárveitingavald. Ekki er að sjá að ko ið hafi til greina að reisa fyrsta vita á Íslandi annars staðar en á Reykja- nesi, enda munu langflest skip sem til Íslands komu hafa átt erindi fyrir Reykjanes og leituðu því upp að suðvesturhorni landsins. Þúsundir og aftur þúsundir Íslendinga hafa farist á sjó í gegnum aldirnar og sjómenn eiga skilið að þeirra fórna sé minnst. Þessi saga er hrikaleg og erfið oft á tíðum að meðtaka en um leið er þetta saga hugrekkis og krafta sem tekst að leysa úr læðingi þ gar aðstæður krefjast og menn þurfa að snúa bökum saman. Sýningunni er ætlað að veita örlitla innsýn í mikla og mikilvæga sögu sjóslysa og upp- byggingar á vitum til að auka öryggi sjófarenda. Um leið gera aðsta dend r hennar sér vonir um og fyrirætlan að sýningin vaxi og geri sögunni be ri skil til lengri tíma. Til stendur að reisa þjónustu- og upplýsingamiðstöð í því magnaða umhverfi og náttúru sem umlykja Reykjanesvita og þangað á slík sýning mikið erindi. Um sýninguna Sýningin er samstarfsverkefni Hollvinasamtaka Reykjanesvita og nágrennis og Byggðasafns Reykjanesbæjar Sýningarstjóri og hönnuður: Eiríkur P. Jörundsson Listar með nöfnum látinna sjómanna voru unnir á vegum Sjóminjasafnsins í Reykj vík, Borgarsögusafni. Kort af sjóslysum við Ísland voru unnin af Guðjóni Inga Haukssyni og Agnari Jónasi Jónssyni. Eftirfarandi styrktu framkvæmdir við húsið og uppsetningu sýningarinnar: Uppbyggingarsjóður Suðurnesja Safnasjóður SlippfélagiðVegagerðin Nánar er fjallað um Reykjanesvita og sögur tengdar honum í Suðurnesjamagasíni á Hringbraut og vf.is á fimmtudagskvöld kl. 19:30. Núverandi viti sem stendur á Bæjarfelli var byggður veturinn 1907–1908. Danska vita- málastofnunin lagði í fyrstu til að reistur yrði 70 feta hár járngrindarviti á Bæjarfelli árið 1908 en ný heimastjórn landsins taldi ekki verjandi að bíða svo lengi þar sem hætta var talin á að vitinn á Valahnúk félli í hafið. Veitti Alþingi því fé til að reisa vitann þegar árið 1907. Var þetta fyrsta stórverkefnið sem ráðist var í á ábyrgð heimastjórnar. Ákveðið var að byggja turn úr tilhöggnu grjóti og steinsteypu. Hönnuðir voru Thorvald Krabbe, síðar vitamálastjóri, og Frederik Kiørboe arkitekt. Framkvæmdum lauk á Þorláks- messu en ljóshúsi og ljóstækjum var komið fyrir í byrjun árs 1908. Kveikt var á vitanum þann 20. mars sama ár. Reykjanesviti er sívalur kónískur turn, 20 metra hár, og stendur á breiðri 2,2 metra hárri undirstöðu. Ljóshúsið er 4,5 metrar á hæð og er heildarhæð vitans því 26,7 metrar. Árið 1929 var byggt við vitann anddyri og gashylkjageymsla úr steinsteypu. Upphaflegur ljósgjafi vitans var steinolíulampi og var ljós hans magnað með 500 mm snúningslinsu. Þetta snúningstæki var knúið af lóðum sem vitavörðurinn dró upp með reglulegu millibili. Gastæki var sett í vitann árið 1929 og var þá gasþrýstingurinn látinn snúa linsunni. Vitinn var rafvæddur árið 1957. Allt frá upphafi reksturs Reykjanesvita fram til ársins 1999 var vitavörður þar búsettur. Þegar vitinn á Valahnúk var reistur 1878 var byggður torfbær og útihús undir Bæjarfelli fyrir vitavörðinn og íbúðarhús úr timbri smíðað þar árið 1892. Þau húsakynni og önnur sem byggð voru í þeirra stað eru horfin. Árið 1947 var byggt íbúðarhús fyrir vitavörðinn úr steinsteypu sem enn stendur. Það var hannað af Ágústi Pálssyni arkitekt. Á bæjarstæðinu er einnig steinsteypt hús fyrir raíóvita sem byggt var árið 1936 en radíóviti var í notkun í Reykjanesvita frá árinu 1936 til ársloka 1992. Radíóvitinn gekk fyrstu áratugina fyrir orku frá ljósavélum en eftir 1957 fékk vitinn orku frá rafveitu. Í dag gengur þetta hús jafnan undir nafninu vélarhúsið og er sýningin staðsett þar. Fastri búsetu vitavarða lauk árið 1999 og íbúðarhúsið var síðar selt einkaaðilum. Vitinn er nú friðaður. Nýr viti reistur Árið 1909 var settur upp aukaviti á Skarfasetri á Reykjanestá vegna þess að vitinn á Bæjarfelli hvarf við visst sjónarhorn á bak við Skálafell frá suðaustri. Nýji vitinn kom því ekki að fullum notum fyrir skip sem komu austanað og einnig liggur þoka stundum yfir Bæjarfelli þannig að Reykjanesvitinn sést ekki. Þetta var lítill stálgrindarviti i byrjun en árið 1947 var byggður steinsteyptur viti með innbyggðu ljóshúsi. Vitinn var húðaður með ljósu kvarsi í upphafi en árið 1971 var hann málaður gulur. vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM Í 40 ár // 9

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.