Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.10.2021, Page 10

Víkurfréttir - 20.10.2021, Page 10
Óperan Góðan daginn, frú forseti verður frumsýnd næstkomandi laugardag í Grafarvogskirkju. Óperan er tileinkuð frú Vigdísi Finnbogadóttur, fyrsta kvenfor- seta í heiminum, og fjallar um ævi hennar og störf. Alexandra Chernyshova, sópran- söngkona og tónskáld, hefur staðið í stöngu undanfarnar vikur að undirbúa sýning- una en að henni koma rúmlega 60 manns, stór hljómsveit, tólf einsöngvarar og tveir kórar. Alexandra, sem er handhafi Súlunnar, menningarverðlauna Reykjanesbæjar, er núna að sjá fyrir endann á sjö ára ferli með frumsýningunni og hvetur alla Suður- nesjamenn og unnendur góðrar tónlistar að koma og sjá verkið. Einn af stofnendum Íslensku óperunnar er hljómsveitarstjóri Garðar Cortes er hljómsveitarstjóri sýningarinnar. „Alexandra er rosa- lega dugleg og atorkusöm og gerir hluti sem ganga upp, þess vegna ákvað ég að taka þátt í verkefninu,“ sagði Garðar. Garðar Cortes, sem er skólastjóri Tónlistarskóla Reykja- víkur, var einn af stofnendum Óperu Íslands og þekkir því vel til óperusviðsins. „Tónlistin í óperunni er góð og Alexandra gefur okkur ferskan blæ með tónlistarsköpun sinni,“ heldur Garðar áfram. „Einnig gaman að sjá sögu frú Vigdísar í tón- listarformi sem þessu, við sjáum nýja hlið á forsetanum okkar í óperunni.“ Kvennakór Suðurnesja tekur þátt Kvennakór Suðurnesja tekur þátt í verkefninu og þar er Dagný Jóns- dóttir, söngkennari við Tónlistar- skóla Reykjanesbæjar, stjórnandi. „Þetta er búið að vera yndislegt að taka þátt í verkefninu en um leið mjög krefjandi, bæði vegna Covid- aðstæðna og einnig þar sem við erum ekki vanar að taka þátt í svona stóru óperuverkefni, ferlið er búið að vera lærdómsríkt og skemmtilegt,“ sagði Dagný þegar Víkurfréttir hittu á hana á miðri æfingu í Grafarvogs- kirkju. Tónlistin er mjög aðgengileg, fal- legar laglínur og skemmtilegur texti. Sagan er frábær og Alexandra er ein- stök að taka þetta verkefni sér fyrir hendur, semja óperuna, fá allt þetta tónlistarfólk og syngja sjálf aðalhlut- verkið,“ sagði Dagný að lokum. Lunkinn melódíusmiður og skemmtileg tónlist Tólf einsöngvarar koma fram á sýningunni, Viðar Gunnarsson, bassi, og Gissur Páll Gissurarson, tenór, fara annars vegar með hlut- verk Finnboga, föður frú Vigdísar, og Magnúsar Magnússonar, sjón- varpsmanns og vinar Vigdísar. Tón- listin er verulega skemmtileg að mati Viðars og líkti senu í fyrsta þætti við ítölsku óperuna Cavalleria rusticana. „Það hefur verið gaman að fylgjast með æfinginum og ferlinu, að sjá óperu fæðast og límast saman. Al- exandra er einstaklega lunkinn mel- ódíusmiður þannig að ég er mjög ánægður og hrifinn,“ sagði Gissur Páll. Þessa dagana er verið að leggja lokahönd á æfingarnar og síðan verður lokahnykkurinn á laugar- daginn í Grafarvogskirkju með frum- sýningunni. Miðasala fer fram á tix. is og við innganginn. S K E M M T I L E G T Ó N L I S T með fallegum melódíum Garðar Cortes, skólastjóri Tónlistar skóla Reykjavíkur og einn af stofnendum Óperu Íslands, er hljómsveitarstjóri óperunnar. 10 // vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM Í 40 ár

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.