Víkurfréttir - 20.10.2021, Page 13
Í safnamiðstöðinni í Ramma var boðið upp á
áhugaverða sýningu einkasafnara og Byggða-
safns Reykjanesbæjar á munum tengdum
hernaði. Sýningin var haldin í tengslum við Safna-
helgi á Suðurnesjum sem fram fór um síðustu helgi.
Byggðasafn Reykjanesbæjar hefur verið með söfnun-
arátak á munum og minjum sem tengjast veru varnar-
liðsins á Keflavíkurflugvelli. Hluti þess sem safnast
hefur var til sýnis. Ásamt Byggðasafninu sýndu
fimmtán einkasafnarar hluta af afrakstri söfnunar
sinnar á munum sem tengjast veru hers á Íslandi.
Þar mátti m.a. sjá farartæki, líkön, vopn, orður og
einkennisbúninga. Meðfylgjandi myndir voru teknar
í safnamiðstöðinni og einnig á Bókasafni Reykjanes-
bæjar þar sem Midnight Librarian héldu tónleika.
VF-myndir: Páll Ketilsson
Það sem stríðið skildi eftir sýnt í Ramma
Frá tónleikum Midnight Librarian í Bókasafni Reykjanesbæjar.
vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM Í 40 ár // 13