Víkurfréttir - 20.10.2021, Qupperneq 15
Keflavík og Njarðvík hlutu hvatningarverðlaun UMFÍ
Keflavík og Njarðvík var veitt hvatn-
ingarverðlaun Ungmennafélags Ís-
lands á sambandsþingi UMFÍ sem
haldið var um helgina fyrir sameigin-
legt átak þeirra til að auka þátttöku
barna með sérstakar stuðningsþarfir
í íþróttum.
Félögin buðu upp á sameiginlegt
námskeið í knattspyrnu og körfu-
bolta í ár. Verkefnið þótti heppnast
vel og var almenn ánægja með fram-
takið sem var haldið í tengslum við
átakið Allir með! í Reykjanesbæ.
Formenn félaganna, Einar Har-
aldsson frá Keflavík og Ólafur Eyj-
ólfsson frá Njarðvík, tóku við viður-
kenningunnum.
Einar Haraldsson, formaður Keflavík, Ólafur Eyjólfsson,
formaður Njarðvíkur, og fulltrúi Fjölnis sem tók við
hvatningarverðlaunum fyrir hönd síns félags. Mynd: UMFÍ.is
Rífandi gangur hjá sundfólki
Það var sannarlega góð útkoma
hjá sundmönnum ÍRB á Extramóti
Sundfélags Hafnarfjarðar helgina
16.–17. október. Tveir sundmenn
náðu sínum fyrstu ÍM 25 lág-
mörkum, það voru þau Freydís
Lilja Bergþórsdóttir og Nikolai
Leo Jónsson. Árni Þór Pálmason
lét sitt ekki eftir liggja heldur bætti
ÍRB metið í 200 metra skriðsundi í
flokki 11–12 ára sveina.
Mörg athyglisverð og sterk úrslit
litu dagsins ljós og línur teknar að
skýrast fyrir ÍM 25. Alexander Logi
Jónsson fékk sérstök verðlaun fyrir
bætingu á milli móta í 800 metra
skriðsundi og þær Eva Margrét
Falsdóttir og Sunneva Bergmann
Ásbjörnsdóttir fengu peningaverð-
laun fyrir að vera í topp tíu af bestu
afrekum mótsins, Eva Margrét varð
í þriðja sæti en Sunneva Bergmann
varð í sjöunda sæti.
Margir sundmenn eru alveg við
innanfélagsmet í aldursflokkum og
stemmningin og liðsheildin er til
fyrirmyndar í sunddeild ÍRB. Næsta
mót er svo Íslandsmótið í 25 metra
laug dagana 12.–14. nóvember.
Árni Þór bætti met í 200 metra skriðsundi.
Sunneva og Eva Margrét. Alexander Logi fékk sérstök
verðlaun fyrir bætingu.
BLEIK MESSA
í Sandgerðiskirkju sunnudagskvöldið
24. október kl. 20.00.
Félagar úr Kór Útskála- og Hvalsnessókna syngja undir
stjórn Keith Reed organista.
Formaður Krabbameinsfélags Suðurnesja, Styrmir Geir
Jónsson, verður með kynningu á félaginu.
Sigrún Harpa Arnrúnardóttir deilir reynslusögu sinni að
greinast með krabbamein.
Prestur sr. Sigurður Grétar Sigurðsson.
Allir velkomnir
Æfingarnar eru ætlaðar börnum á aldrinum
sex til þrettán ára með mismunandi stuðningsþarfir.
Æfingarnar fara fram í íþróttasalnum við Akurskóla
á sunnudögum kl. 14:00 til 14:50.
Æfingarnar verða fjölbreyttar og skemmtilegar
og öllum börnum mætt á þeirra forsendum.
Námskeiðið hefst 24. október og lýkur 12. desember.
Gjald fyrir hvern iðkanda er 20.000 kr.
ATH! Muna að nýta frístundastyrk.
Skráning er hafin á sportabler
www.sportabler.com/shop/keflaviknjardvik
Íþróttir fyrir börn með
mismunandi stuðningsþarfir
Verkefnið er unnið í samstarfi við
Íþróttasamband fatlaðra og Íþróttafélagið Neswww.keflavik.is www.umfn.is
Eiður Ben tekur
við Þrótti Vogum
Þróttur Vogum hefur ráðið Eið Benedikt Eiríksson, einn efnilegasta
þjálfara landsins, til að taka við þjálfun meistaraflokks karla í knattspyrnu
fyrir komandi tímabil.
Eiður Ben er fæddur árið 1991 og
uppalinn hjá Fjölni. Undanfarin
ár hefur hann þjálfað lið Íslands-
meistara Vals í efstu deild kvenna
ásamt Pétri Péturssyni en samstarf
þeirra skilaði Val tveimur Íslands-
meistaratitlum á þremur árum.
Þróttur Vogum varð deildar-
meistari 2. deildar karla í ár og mun
félagið því leika í fyrsta sinn í næst-
efstu deild á næsta tímabili ásamt
því að fagna 90 ára afmæli sínu.
Í fréttatilkynningu sem Þróttur
sendi frá sér er lýst yfir mikilli
ánægju með að fá einn efnilegasta
þjálfara landsins í sínar raðir og til-
hlökkunar til samstarfsins.
vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM Í 40 ár // 15