Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.10.2021, Síða 16

Víkurfréttir - 20.10.2021, Síða 16
Mundi Er elsti skóli Reykjanesbæjar ekki bara eins og góður ostur? Hjólbarðaþjónusta N1 Bíldshöfða 440-1318 Fellsmúla 440-1322 Réttarhálsi 440-1326 Ægisíðu 440-1320 Langatanga Mosfellsbæ 440-1378 Reykjavíkurvegi Hafnarfirði 440-1374 Grænásbraut Reykjanesbæ 440-1372 Dalbraut Akranesi 440-1394 Réttarhvammi Akureyri 440-1433 Opið mán –fös kl. 08-18 laugardaga kl. 09-13 www.n1.is  Notaðu N1 kortið Alla leið á öruggari dekkjum Pantaðu tíma í dekkjaskipti á n1.is ALLA LEIÐ Cooper Weather-Master WSC Öflugt og gott grip við erfiðar aðstæður Mikið skorið og stefnuvirkt mynstur fyrir jeppa og jepplinga Flott dekk fyrir íslenskt veðurfar Cooper WM SA2+ Míkróskorin óneglanleg vetrardekk Afburða veggrip og stutt hemlunarvegalengd Mjúk í akstri með góða vatnslosun Cooper Discoverer Snow Claw Hannað fyrir krefjandi vetraraðstæður Mjúk gúmmíblanda fyrir hámarksafköst við lágt hitastig Afburðagott grip, neglanlegt SWR og 3PMS merking Vefverslun Skoðaðu úrvalið og skráðu þitt fyrirtæki Ég um mig frá mér til mín Fjölmargir eru þeirrar skoðunar að mun meira vit sé að hafa persónu- kosningar til Alþingis í stað þess að kjósa flokka. Aðrir hafa bent á að ýmsir gallar séu á því fyrirkomu- lagi að kjósa persónur beint en ekki flokka. Það skiptir engu máli á hvorri skoðuninni þú ert, því nú liggur ljóst fyrir að fólkið sem kemst á lista flokkanna lítur svo á að um per- sónukosningar sé að ræða. Strax um kosningahelgina var ljóst að talningarmistök höfðu átt sér stað í einu kjördæmi. Að lokinni endur- talningu riðlaðist röð uppbótarþing- manna þannig að sex einstaklingar sem kynntir höfðu verið í fjölmiðlum töpuðu sætum sínum en aðrir sex einstaklingar úr nákvæmlega sömu flokkum komust inn á Alþingi. Enginn flokkur missti sæti og enginn flokkur græddi aukasæti. Einstaklingarnir sem misstu sætin hafa kært kosningarnar. Þeir vilja komast að. Dómarar í kærumálinu eru m.a. alþingismennirnir sem fengu sætin. Merkilegt nokk. Kjósandi á þess eingöngu val að kjósa flokka. Um leið og talningu er lokið, þá er flokkakosningin orðin að persónu- kjöri. Opinberlega heyrist ekkert frá flokkunum enda tap þeirra ekkert og gróðinn enginn. Bara sex manns í fýlu og sex í sælu. Skiljanlegt enda er þingsæti yfir 100 milljón króna virði á einu kjörtímabili. Engin mætinga- skylda í vinnu. Geggjaður díll. Til að kóróna allt og sýna kjós- endum skilning frambjóðenda á flokkakosningakerfinu stökk for- ystusauður Miðflokksins í Suður- kjördæmi yfir í Sjálfstæðisflokkinn á fimmta degi eftir kosningar. Auð- vitað voru kjósendur Miðflokksins að kjósa hann persónulega og prívat. Hann er maðurinn, mátturinn og dýrðin. Amen. Við höfum svo sem séð þetta áður, bara ekki alveg í þessari mynd. Íslensk pólitík. Engin prinsipp. Engin stefna. Bara eiginhagsmunir. Algerlega óháð stjórnmálaflokkum. Það hafa kjósendur nú fengið að sjá í sinni skýrustu mynd. LO KAO RÐ MARGEIRS VILHJÁLMSSONAR Leiðarljós í lífhöfn Ópera um frú Vigdísi Finnbogadóttur ... og hrollvekjandi draugahús í Akurskóla FIMMTUDAG KL. 19:30 HRINGBRAUT OG VF.IS Northern Challenge, árleg æfing sprengju- sérfræðinga, hófst formlega á öryggis- svæðinu á Keflavíkur- flugvelli á þriðjudag og stendur fram í næstu viku. Um er að ræða alþjóðlega æfingu Atl- antshafsbandalagsins sem Landhelgisgæslan hefur veg og vanda af. Hún fer að stærstum hluta fram á starfssvæði Land- helgisgæslunnar á Keflavíkur- flugvelli. Þetta er í tuttugasta sinn sem æfingin er haldin. Markmið æfingarinnar er að æfa viðbrögð við hryðjuverkum þar sem heimatilbúnum sprengjum hefur verið komið fyrir. Verk- efni sprengjusérfræðinganna er að leysa slíkan vanda. Samskonar búnaður og fundist hefur víðs vegar um heim er útbúinn og aðstæður hafðar eins raunverulegar og kostur er. Æfingin fer fram við fjölbreyttar aðstæður, t.d. á flugvelli, í höfn, í skipi og við bryggju. Sérhæfð stjórnstöð er jafnframt virkjuð þar sem öll uppsetning og vinnubrögð eru samkvæmt alþjóð- legu vinnulagi Atlantshafsbanda- lagsins. Að þessu sinni eru þátttakend- urnir frá 15 þjóðum og alls eru 30 lið skráð til leiks. Þeir sem koma lengst að eru frá Nýja-Sjálandi en að æfingunni koma hátt í 300 manns. Sprengjusérfræðingar æfa á Keflavíkurflugvelli

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.