Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Qupperneq 4
Sjálfsbjörg
— landssamband fatlaðra
30 ára 1959-1989
í tilefni afþrjátíu ára afmæli
Sjálfsbjargar, landssam-
bands fatlaðra þótti við hæfi
að taka saman annál úr sögu
samtakanna. Við lestur hans
ber að hafa í huga að í hon-
um erstiklað á stóru og langt
frá því að sögu samtakanna
séu gerð tæmandi skil. Reynt
var að gefa nokkra mynd af
fjölbreyttri starfsemi sam-
takafatlaðra á þessu tímabili
en eflaust hefur margt orðið
útundan sem á fullt erindi í
sögulega úttekt.
Forsagan
Fyrsta
Sjálfs-
bjargar-
félagið
Þann 9. júní 1958 var fyrsta
Sjálfsbjargarfélagið stofnað á
Siglufirði „að undangengnum
viðræðum nokkurra áhuga-
manna og fyrir forgöngu Sigur-
sveins D. Kristinssonar, tón-
skálds“ eins og segir í fyrsta
ársriti Sjálfsbjargar.
í fyrstu fundargerð félagsins
á Siglufirði segir að 14 manns
hafi komið til fundar þennan
mánudag í Gránugötu 14.
Fram kemur að mikill áhugi
hafi ríkt meðal fundarmanna á
stofnun félags fatlaðra sem hafi
,,svo margra sameiginlegra
hagsmuna að gæta“. Sigur-
sveinn hafði framsögu sem
þótti „athyglisverð og lær-
dómsrík“ og eftir nokkrar um-
ræður um fjáröflunarleiðir og
tryggingamál var félaginu kos-
in bráðabirgðastjórn undir for-
ystu Valeyjar Jónasdóttur en
frekari starfsemi frestað til
haustsins. Félaginu bárust að
gjöf 200 krónur frá Nönnu
Franklínsdóttur.
„Fundi var síðan slitið kl.
10.30 um kvöldið, og fór
hver til síns heima með þá
öruggu vissu og óbilandi
trú, að hér hefði verið stigið
það spor, sem opna myndi
dyrnar að mannlífinu fyrir
fatlað fólk, ekki eingöngu
hér í okkar heimabyggð,
heldur víðs vegar annars
staðar um landið, þegar
tímar líða,“ eru lokaorð
fundargerðar Huldu Steins-
dóttur.
Hulda reyndist sannspá því
þetta sama sumar voru félög
stofnuð í Reykjavík 27. júní, á
Isafirði 29. september, Akur-
eyri 8. október og í Árnessýslu
15. nóvember. Frumkvæði sigl-
firsku félaganna varð fötluðum
um allt land mikil vakning og
réttu ári síðar var Sjálfsbjörg,
landssamband fatlaðra orðið
að veruleika.
Hér hófst það. í þessu húsi, Gránugötu 14, Siglufirði, var fyrsta Sjálfs-
bjargarfélagið stofnað hinn 9. júní 1958.
4 SJÁLFSBJÖRG