Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Blaðsíða 34
Minning
Thedór A. Jónsson
Fœddur 28. júní 1939 — Dáinn 7. moí 1989
Mikilhæfur maður er horfinn á
braut.
Theodór A. Jónsson fæddist
á Stað í Staðardal, Steingríms-
firði, annar sonur hjónanna
Helgu Tómasdóttur og Jóns
Sæmundssonar, bónda og
hreppstjóra. Þegar Theodór
var á barnsaldri fluttist fjöl-
skyldan inn á Hólmavík og Jón
hóf störf hjá Kaupfélaginu þar.
Fljótlega upp úr fermingu fór
Theodór í sumarvinnu suður í
Brautarholt á Kjalarnesi. Það
sumar fór að bera á sjúkleika
hans og fór hann til lækninga á
Landakotsspítala vegna þess.
Þegar hann var á leið heim til
sín norður á Hólmavík eftir
þær rannsóknir og lækningar
varð hann fyrir því óhappi að
bíll sá er hann var farþegi í valt
og lærbrotnaði hann í því slysi.
Theodór náði sér aldrei eftir
það og var í hjólastól æ síðan.
Leið Theodórs lá þessu næst
í Samvinnuskólann Bifröst og
lauk hann þaðan prófi árið
1961. Að prófi loknu hóf hann
störf hjá Tryggingastofnun rík-
isins og vann þar í lífeyrisdeild
allt til þess að hann tók við
starfi sem forstöðumaður
Vinnu- og dvalarheimilis
Sjálfsbjargar árið 1973. Því
starfi sinnti hann til dauðadags.
Þann 6. janúar sama ár og
Theodór tók við starfi for-
stöðumanns Vinnu- og dvalar-
heimilis Sjálfsbjargar giftist
hann eftirlifandi eiginkonu
sinni Elísabetu Jónsdóttur. El-
ísabet átti tvö börn, Bjarna og
Kristínu, sem Theodór gekk í
föður stað og þótti mjög vænt
um. Síðustu þrjú ár ævi sinnar
bjó Theodór í Sjálfsbjargar-
húsinu í Hátúni 12, Reykjavík.
Theodór var mikilhæfur og
afkastamikill félagsmálamað-
ur. Hann stóð frá stofnun
Sjálfsbjargar í eldlínu barátt-
unnar fyrir breyttu þjóðfélagi
og bættum hag fatlaðra. Theo-
dór var einn af stofnendum
Sjálfsbjargar, félags fatlaðra í
34 SJÁLFSBJÖRG