Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Page 10
Sumarferð í Borgarvirki. Frá upphafi hafa sumarferöir veriö fastur
liður í starfi Sjálfsbjargarfélaganna. I ár varfariö um Húnavatnssýslurog
Borgarfjörö og var þessi mynd tekin af nokkrum félögum að kasta mæð-
inni og njóta útsýnisins úr Borgarvirki en þaðan er víösýni mikiö.
Fjórir fulltrúar frá íslandi
sóttu þingið, þau Ingibjörg
Magnúsdóttir formaður Sjálfs-
bjargar á ísafirði, Ólöf Rík-
arðsdóttir, Theodór A. Jónsson
formaður landssambandsins og
Trausti Sigurlaugsson fram-
kvæmdastjóri. Að þinginu
loknu kynntu þau sér nánar
starfsemi bræðraþjóðanna á
sviði þjónustu við fatlaða.
Sjálfs-
bjctrgctr-
húsið birtist
á prenti
í ársritið 1964 ritaði Konráð
Þorsteinsson, formaður Sjálfs-
bjargar á Sauðárkróki, grein
um húsnæðismál fatlaðra.
Ræddi hann þar bæði um al-
mennan húsnæðisvanda fatl-
aðra sem vilji búa „sér og sín-
um heimili, sem eru við þeirra
hæfi og getu“. Ennfremur
nefndi Konráð þörfina á vist-
heimili í Reykjavík og var það í
fyrsta sinn sem hugmyndin að
Sjálfsbjargarhúsinu var reifuð
á prenti. Um það efni sagði
Konráð ma.:
„Það sem sérstaklega virð-
ist aðkallandi ... er að
byggja vistheimili í Reykja-
vík, sem yrði í senn miðstöð
samtakanna og þar með
vettvangur þjálfunar og
annarra framkvæmda, sem
fara fram á þeirra vegum og
einnig skapaðist þar að-
staða til dvaiar fyrir þá ör-
yrkja, sem um lengri eða
skemmri tíma eru undir
læknishendi, án þess þó að
þurfa að dvelja á sjúkra-
húsi...“
1965
Stórgjöf
frá Dönum
Undirbúningur að byggingu
Sjálfsbjargarhússins var nú haf-
inn. Af því tilefni var samþykkt á
ársþingi Landssambands fatlaðra
í Danmörku að gefa 625 þúsund
krónur til byggingar Sjálfsbjarg-
arhússins.
Vinnustofa í Reykjavik. í ársbyrjun hóf Sjálfsbjörg í Reykjavík rekst-
ur á vinnustofu í húsnæði félagsins að Marargötu 2. Vinna þar tíu manns
við aö sauma herranærföt.
Alþjóðadagur fatlaðra. Frá 1960 helgaði Alþjóðasamband fatlaöra
einn dag á ári baráttunni fyrir hagsmunamálum fatlaöra. Sjálfsbjörg gekk
i sambandið og þann 28. mars var alþjóðadagur fatlaðra haldinn hátíð-
legur í fyrsta sinn hér á landi. Voru hátíðarhöld á þremur stöðum á land-
inu, á Akureyri, Isafirði og í Reykjavík en þar var þessi mynd tekin á hátíð-
arfundi í Sigtúni við Austurvöll.
10 SJÁLFSBJÖRG