Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Page 13
yfir starfsemi sína. Nokkur fé-
lög hafi komið upp litlum
vinnustofum til að skapa fé-
lagsmönnum vinnu en að vísu
eigi þær í erfiðleikum. Síðast
en ekki síst er hafin bygging
vinnu- og dvalarheimilis fyrir
fatlaða í Reykjavík.
Theodór nefndi frumkvæði
Sjálfsbjargar að samningu lög-
gjafar um endurhæfingu en ár-
ið 1964 lét landssambandið
gera drög að slíkri löggjöf og
voru þau að verulegu leyti
byggð á samskonar lögum sem
þá voru komin í gildi í Dan-
mörku. A tíu ára afmæli fyrstu
félaganna er búið að fela Ör-
yrkjabandalaginu að semja
frumvarp til laga um endurhæf-
ingu sem verður væntanlega
lagt fyrir næsta þing. Auk þessa
nefndi Theodór ýmsar endur-
bætur og lagfæringar á trygg-
inga- og farartækjamálum fatl-
aðra.
Uppsteypu
Sjálfs-
bjargar-
hússíns
lokið
í júlímánuði var lokið við að
steypa 5. og efstu hæðina í
fyrsta áfanga Sjálfsbjargar-
hússins að Hátúni 12 í Reykja-
vík. Fjáröflunarleiðir til bygg-
ingarinnar voru margvíslegar.
Byggingarhappdrættið skilaði
drjúgum tekjum, svo og styrkir
úr Styrktarsjóði fatlaðra,
Erfðafjársjóði og frá ríki og
Reykjavíkurborg.
Auk þess hafa Sjálfsbjörg
borist fjölmargar gjafir til
byggingarinnar. Áður er getið
um stórgjöf samtaka fatlaðra í
Danmörku og nú hafa systur-
samtökin í Svíþjóð einnig
Stjórnarfundur VNI á íslandi. 10 manna stjórn Bandalags fatlaðra á
Norðurlöndum (VNI) héltfund á Akureyri í júlímánuði. Áðuren hann hófst
var efnt til blaðamannafundar í Reykjavík þar sem sænsku samtökin til-
kynntu að þau hefðu ákveðið að veita 50 þúsund sænskra króna styrk til
byggingar Sjálfsbjargarhússins. Stjórnarmenn ferðuðust víða um land og
er myndin tekin af þeim við Gullfoss. Síðar um sumarið var þing VNI hald-
ið í Osló og sóttu 14 fulltrúar það héðan. Að þinginu loknu ferðuðust þeir
um Danmörku og kynntu sér aðbúnað að fötluðum þar í landi.
ákveðið að reiða fram fjár-
styrk. Pá leitaði Sjálfsbjörg til
allra sveitarstjórna á landinu
með beiðni um stuðning við
framkvæmdirnar og hafa und-
irtektir verið góðar. Alls hafa
nú verið lagðar 17,5 milljónir
króna í bygginguna en kostn-
aðaráætlun við fyrsta áfanga
hljóðaði upp á 50 milljónir fyrir
gengisfellinguna sem nýlega
var gerð.
969
SJÁLFSBJÖRG 13