Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Qupperneq 14
1970
Lögum
endur-
hæflngu
taka gildi
Þann 1. j úlí gengu í gildi lög um
endurhæfingu. Endurhæfing
hefur þó lengi verið í gangi á
vegum ýmissa öryrkjafélaga en
lagagrunninn hefur skort. Nú
er hann kominn og í ársritinu
segir Theodór A. Jónsson for-
maður landssambandsins svo
um lögin:
„Tilgangur laganna er að
stuðla að þjálfun og endur-
hæfingu fólks með varan-
lega skerta starfshæfni, svo
að það geti sem bezt séð sér
farborða með eigin vinnu.
Með þessu er ekki einungis
átt við læknisfræðilega end-
urhæfingu, heldur einnig
atvinnulega endurhæfingu
ásamt starfsmenntun.“
Ýmis nýmæli eru í lögum
þessum enda má segja að þau
séu fyrsti stóri lagabálkurinn
sem saminn er sérstaklega um
málefni fatlaðra. Ástæða er til
að benda á 16. grein laganna en
í þeim segir ma. að þeir „sem
notið hafa endurhæfingar,
skulu að öðru jöfnu, eiga for-
gangsrétt til atvinnu hjá ríki og
bæjarfélögum.“
Tvö ný félög
stofnuð
í maímánuði voru tvö ný
Sjálfsbjargarfélög stofnuð á
Vesturlandi. Það fyrra er í
Stykkishólmi og var stofnað 9.
maí. Stofnfélagar voru 13 og
formaður félagsins var kjörinn
Lárus Kr. Jónsson. Hittfélagið
var stofnað daginn eftir á
Akranesi. Stofnfélagar þess
voru 49 og formaður kjörin
Karen Guðlaugsdóttir.
Landssam-
bandið
flytur
Á þessu starfsári flutti lands-
sambandið skrifstofur sínar úr
húsi SÍBS við Bræðraborgar-
stíg í nýtt og rúmgott húsnæði
að Laugavegi 120. Skrifstofan
gegnir veigamiklu hlutverki í
þjónustu við fatlaða. Þangað
leituðu á þriðja þúsund ein-
staklinga á starfsárinu eftir
margháttaðri fyrirgreiðslu og
auk þess annaðist skrifstofan
innflutning á hjálpartækjum
fyrir fatlaða að verðmæti kr.
875.000.
Alþjóða-
merki
fatlaðra
Að tilhlutan Bandalags fatl-
aðra á Norðurlöndum var efnt
til samkeppni um táknrænt
merki sem ætlunin er að koma
fyrir í byggingum sem aðgengi-
legar eru fyrir þá sem nota
hjólastól og raunar fatlað fólk
yfirleitt. Er tilgangurinn með
þessu bæði að leiðbeina fötluð-
um og hvetja til þess að bygg-
ingar séu skipulagðar með
þarfir fatlaðra í huga.
Merkið sem varð fyrir valinu
gerði ung dönsk stúlka, Sus-
anne Kofoed, en hún stundar
nám í arkitektúr. Voru verð-
launin afhent á alþjóðlegri
endurhæfingarráðstefnu sem
haldin var í Dublin.
1971
Frambjóð-
endur
upplýstir
Fyrir Alþingiskosningar sem
haldnar voru í júnímánuði var
öllum frambjóðendum til þings
send greinargerð um málefni
Sjálfsbjargar. Þar var getið
þeirra breytinga sem orðið
hafa á högum fatlaðra undan-
farin ár og bent á þær breyting-
ar sem brýnast væri að gera. í
lokin var farið fram á stuðning
viðkomandi frambjóðanda við
lausn á vanda fatlaðra.
Ef til vill átti þessi sending
sinn þátt í því að í málefnasátt-
mála þeirrar ríkisstjórnar sem
settist að völdum eftir kosning-
ar var sérstaklega tekið fram
hver væru markmið hennar í
málefnum fatlaðra. í þeirri rík-
isstjórn tók Magnús Kjartans-
son sæti heilbrigðis- og trygg-
ingaráðherra en hann átti eftir
að reynast fötluðum og sam-
tökum þeirra drjúgur stuðn-
ingsmaður meðan hans naut
við.
14 SJÁLFSBJÖRG