Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Qupperneq 19

Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Qupperneq 19
Á Tæknivinnustofunni skap- ast 10-12 ársverk fyrir öryrkja auk fjögurra tæknimenntaðra starfsmanna. 1978 Ný byggingar- og skipu- lagslög með ákvæði um aðgengi fatlaðra Hinn 3. maí samþykkti Alþingi ný byggingarlög. Þar er í fyrsta sinn að finna sérstök ákvæði varðandi fatlaða. Daginn áður hafði Alþingi samþykkt ný skipulagslög með samsvarandi ákvæðum. Þessi ákvæði eru af- rakstur baráttu fatlaðra sem staðið hefur í þrjú ár. Ákvæðin sem hér um ræðir eru þessi í byggingarlögunum: „í byggingarreglugerð skal setja ákvæði varðandi um- búnað bygginga til þess að auðvelda ellihrumu og fötl- uðu fólki að komast leiðar sinnar.“ Og í skipulagslögunum: „Til viðbótar 13. gr. lag- anna komi: Þá skal kveða á um, að hið skipulagða svæði geri fötluðu og öldr- uðu fólki auðvelt að komast leiðar sinnar og að tekið skuli að öðru leyti tillit til sérþarfa þess, svo sem varð- andi götur, gangstéttir, bif- reiðastæði og staðsetningu íbúðarhúsa, sem sérstak- lega eru ætluð þessu fólki.“ 12 sem fólki sem býr annars staðar í borginni. Á meðfylgjandi mynd sést Torfi Loftsson aðstoða Ragnar Hallsson við að komast á hjóla- stólnum upp í bílinn. Tækni- vinnustofa ÖBÍ stofnuð í maí hóf Öryrkjabandalag ís- lands rekstur Tæknivinnustofu í Hátúni 10A. Var þetta talinn vænlegur kostur fyrir fatlaða starfsmenn þar sem vinnustof- an fæst einkum við samsetn- ingu háþróaðra rafeindatækja sem krefst frekar samvisku- semi en hraða. Samningar tókust strax milli Tæknivinnustofunnar og Pósts og síma um að vinnustofan tæki að sér allt viðhald sím- tækja fyrir stofnunina. Einnig hófst þar snemma framleiðsla gjaldmæla fyrir leigubíla, svo og umferðarteljara og skrán- ingartækis sem tengist þeim. Hús keypt í Vestmannaeyjum. Sjálfsbjargarfélagið í Vestmanna- eyjum hefur fest kaup á 50 fermetra húsi undir starfsemi sína en húsnæð- isleysi hefur háð félaginu. Húsið er þeim eiginleikum búið að hægt er að „brjóta það sarnan" og flytja það með tiltölulega lítilli fyrirhöfn. Nú stendur það við Faxastíg en verið er að leita að stað fyrir það til frambúðar. Á myndinni standa þau úti fyrir húsinu Arnmundur Þorbjörnsson, Richard Þorgeirsson og Hildur Jónsdóttirtormaöur Sjálfsbjargar í Vestmannaeyj- um. SJÁLFSBJÖRG 19

x

Sjálfsbjörg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.