Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Blaðsíða 25
Sterkasti maður í heimi mátti sannreyna að það eru ekki alltaf kraft-
arnir sem skila fólki áleiðis. Eins og fleiri þátttakendur í hjólastólarallinu
átti hann í mestu brösum með aðyfirstíga hindranirnarog varð aðjátasig
sigraðan af fötluðum keppendum sem urðu í efstu sætum.
gaman að tilburðum keppenda
og öðrum skemmtiatriðum.
Til keppni voru boðaðir þrír
hópar. I einum voru stjórn-
málamenn, borgarfulltrúar,
þingmenn og ráðherrar, í öðr-
um íþróttamenn og íþrótta-
fréttamenn, og í þeim þriðja
fólk sem notar hjólastól dag-
lega. Keppendur voru merktir
ákveðnum fyrirtækjum sem
styrktu rallið. Auk þess að fara
ákveðna vegalengd á stólunum
þurftu þeir að leysa ýmsar
þrautir, svo sem að aka yfir
þröskulda, upp skábrautir og í
svig milli keilna. Einnig voru
þeir bornir upp og niður tröpp-
ur í stólunum og svo þurftu þeir
að glíma við að koma sér út úr
þröngum, lokuðum básum og
loka á eftir sér.
Auk þess að skemmta áhor-
fendum og vekja athygli á
stöðu fatlaðra hafði rallið þann
tilgang að veita stjórnmála-
mönnum innsýn í heim þeirra
sem þurfa daglega að komast
leiðar sinnar á hjólastólum. Að
sjálfsögðu í þeirri von að þeir
minnist þess þegar þeir taka
ákvarðanir um fjárframlög til
málefna fatlaðra og önnur at-
riði sem þá snerta í framtíð-
inni.
Námskeiða-
haldfyrir
aðstand-
endur
fatlaðra
Sjálfsbjörg, Þroskahjálp,
Styrktarfélag vangefinna og
Styrktarfélag lamaðra og fatl-
aðra hafa tekið höndum saman
um að halda námskeið fyrir að-
standendur fatlaðra barna.
Sjálfsbjörg átti frumkvæðið
og fékk ofannefnd samtök til
liðs við sig. Var efnt til helgar-
námskeiða þar sem foreldrum
gafst færi á að hlýða á mál sér-
fræðinga um ýmsa þætti sem
snerta líf fatlaðra, svo sem um
starf svæðisstjórna, lagalegan
rétt fatlaðra og aðstandenda
þeirra, hvað fötlun er og hvern-
ig hún er greind, þroska barna,
viðbrögð foreldra sem eignast
fatlað barn, hjálpartæki ofl.
Hafa námskeið þessi mælst vel
fyrir meðal þátttakenda og er
við því að búast að þau verði
fastur liður í starfi samtakanna
héreftir.
Æskulýðs-
samtök
fatlaðra
Laugardaginn 14. apríl var
haldinn stofnfundur æskulýðs-
sambands þeirra sem eru innan
vébanda Oryrkjabandalags ís-
lands. Átta aðildarfélög ÖBÍ
sendu fulltrúa á fundinn, alls 17
manns. Samþykktu þeir sam-
hljóða að stofna samtökin Fötl-
uð ungmenni á íslandi. Fyrsti
formaður þeirra var kjörinn
Rögnvaldur Óðinsson.
Tilgangur samtakanna er að
berjast fyrir hagsmunamálum
ungs, fatlaðs fólks, efla inn-
byrðis kynni þeirra, auka fé-
lagslegan þroska þeirra og
koma á samstarfi við félaga-
samtök fatlaðra og ófatlaðra
sem vinna að svipuðum mál-
um, bæði hérléndis sem erlend-
is.
Hugsa hin nýstofnuðu sam-
tök sér gott til glóðarinnar á ár-
inu 1985 sem Sameinuðu þjóð-
irnar hafa helgað æsku heims-
ins.
Húseign
keyptí
Neskaup-
stað
Félagið í Neskaupstað keypti í
ár húseignina Egilsbraut 5 og
fékk hana afhenta 1. maí. I
húsinu fer fram margþætt fé-
lagsstarf fatlaðra í Neskaup-
stað en auk þess er þar rekin
hannyrðaverslun. Veitir for-
maður félagsins, Unnur Jó-
hannsdóttir, versluninni for-
stöðu en auk hennar vinna þar
fleiri félagsmenn. Er allt þeirra
starf unnið í sjálfboðavinnu.
SJÁLFSBJÖRG 25