Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Blaðsíða 29
Vítt til veggja. Björgúlfur Andrésson framkvæmdastjóri í nýjum húsa-
kynnum Hjálpartækjabankans í Hátúni 12.
inn í því skyni drög að laga-
frumvarpi um félagslegar
íbúðabyggingar og er þau að
finna í áðurnefndum bæklingi.
Starfsemi hópsins vakti
verulega athygli enda málefnið
brýnt og brennur á mörgum.
Fór svo að ráðherra skipaði
nefnd til að semja lög um fé-
lagslegar íbúðabyggingar og
bað hópinn að tilnefna einn
mann í hana.
I-ormanna-
skipti eftir
28 ára
forystu
Theodórs
Á þingi landssambandsins í vor
urðu þau þáttaskil í sögu Sjálfs-
bjargar að Theodór A. Jónsson
lét af störfum formanns eftir 28
ára farsælt starf. Við tók Jó-
hann Pétur Sveinsson.
Hjálpar-
tækja-
bankinn
í nýtt
húsnæði
Hjálpartækjabanki Sjálfs-
bjargar og Rauða krossins hef-
ur nú starfað í tólf ár en í sumar
flutti hann í nýtt húsnæði í við-
byggingu austan við Sjálfs-
bjargarhúsið í Hátúni 12. Par
fær bankinn tvöfalt meira at-
hafnapláss og hefur nú um 500
fermetra til afnota.
Forstöðumaður Hjálpar-
tækjabankans hefur frá upp-
hafi verið Björgúlfur Andrés-
son og sagði hann í viðtali við
ársritið að stærsti kosturinn við
nýja húsnæðið væri sá að það er
aðlagað starfseminni og inn-
réttað í samræmi við hana.
Auk þess breytist aðkoman
þannig að fatlað fólk kemst þar
einnig inn.
Hjálpartækjabankinn hefur
fyrir löngu sannað að mikil
nauðsyn er fyrir hann. Björg-
úlfur segir að árið 1987 hafi ná-
lægt 1.200 manns á mánuði að
meðaltali leitað til bankans.
Nú starfa þar auk Björgúlfs
hjúkrunarfræðingur og iðju-
þjálfi.
Samslart
•* _ /
OBI
og Þroska-
hjálpar
Eftir hið gifturíka samstarf Ör-
yrkjabandalagsins og Þroska-
hjálpar fyrir kosningarnar 1987
var sett saman framkvæmda-
áætlun um áframhaldandi sam-
starf samtakanna. Hún gerði
ráð fyrir því að ráðinn yrði
„stýrimaður“ til að halda utan
um þetta samstarf og var Helgi
Hróðmarsson ráðinn til starfa.
í ársritinu sagði Helgi frá því
að samstarfið gengi með mikl-
um ágætum. Samtökin héldu
sameiginleg vorblót á fjórum
stöðum á landinu um miðjan
maí, gerðar voru kannanir á
aðgengi fatlaðra að útivistar-
svæðum, skemmtistöðum,
þjónustustofnunum og opin-
berum byggingum og þeim
fylgt eftir með bréfaskriftum til
forráðamanna þeirra. Þá hafa
verið haldin útilífsnámskeið
fyrir fötluð börn og ungmenni í
samráði við skáta og borgar-
yfirvöld í Reykjavík og staðið í
töluverðu kynningarstarfi fyrir
samtökin, bæði í fjölmiðlum og
með bréfaskriftum til hinna
ýmsu aðila.
Fyrstu fé-
lögin 30 ára
í sumar minntust fimm Sjálfs-
bjargarfélög þess með ýmsum
hætti að 30 ár voru liðin frá því
þau voru stofnuð. Fyrsta félag-
ið var stofnað á Siglufirði þann
9. júní 1958 en í lok mánaðar-
SJÁLFSBJÖRG 29