Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Síða 30
ins var stofnað félag í Reykja-
vík. í september var stofnað fé-
lag á ísafirði í október á Akur-
eyri og í nóvember í Arnes-
sýslu.
Félögin héldu upp á afmælið
með ýmsum hætti. Trjám var
plantað á Siglufirði og á nokkr-
um stöðum í Árnessýslu, á Ak-
ureyri gefið út blað og gangsett
ný plastverksmiðja, í Reykja-
vík var haldin vegleg árshátíð
og opnuð ný vinnustofa og á
ísafirði var haldið vorblót.
1989
Sjálfsbjörg
30 ára
— Lands-
átakið
Á þessu ári eru liðin 30 ár frá
stofnun landssambands Sjálfs-
bjargarfélaganna. Því var að
sjálfsögðu fagnað með ýmsum
hætti. A sjálfan afmælisdaginn,
4. júní, var opið hús í Sjálfs-
bjargarhúsinu í Reykjavík auk
þess sem mörg aðildarfélög
minntust dagsins í heima-
byggð.
Efnt var til listsýningar í
Sjálfsbjargarhúsinu þar sem
þrír fatlaðir listamenn sýndu
verk sín, þau Sigmar Maríus-
son, Sigurður Þórólfsson og
Sigþrúður Pálsdóttir. Þá var
haldið 400 manna afmælishóf í
Sjálfsbjargarhúsinu þar sem 30
manns fengu viðurkenningar-
merki fyrir margvíslegan
stuðning við samtökin. Vigdísi
Finnbogadóttur var boðið í
hófið en þar sem hún var upp-
tekin varð ekki af heimsókn
hennar fyrr en nokkrum dög-
um eftir afmælið. Var hún að
sjálfsögðu hinn mesti aufúsu-
gestur.
Mestur kraftur var þó lagður
í Landsátakið sem svo var
nefnt og hafði þann tilgang að
safna fé til að ljúka við bygg-
ingu Sjálfsbjargarhússins í Há-
túni 12.
Það kann að virðast undar-
legt en er samt satt að þótt 23 ár
séu liðin frá því bygging húss-
ins hófst og 16 ár frá því fyrsti
áfangi þess var tekinn í notkun
þá er ýmislegt enn ógert. Nefna
má sem dæmi að það vantar
viðvörunarkerfi vegna eld-
hættu í húsið og einnig vantar
viðunandi félagsaðstöðu fyrir
fatlaða í húsinu. Þá hefur aldr-
ei verið gengið endanlega frá
inngangi í sundlaug hússins og
raunar varð að loka henni
vegna mikilla skemmda á flísa-
lagningu á árinu.
í ljósi þessa ákvað landssam-
bandið að efna til stórátaks til
fjáröflunar meðal landsmanna
svo auðnast mætti að koma
þessum hlutum og öðrum í lag.
Koma húsinu í endanlegt horf.
Fjársöfnunin fór fram í byrjun
september og var ýmsum ráð-
um beitt til að vekja athygli á
henni. Nokkrir Sjálfsbjargar-
félagar með formann lands-
sambandsins í broddi fylkingar
óku á hjólastólum frá Ákureyri
til Reykjavíkur á sex dögum og
söfnuðu áheitum á leiðinni. Þá
féllst Davíð Oddsson borgar-
stjóri Reykjavíkur á að vera í
hjólastól í heilan dag, bæði til
að vekja athygli á söfnuninni
og til að kynna sér aðstöðu fatl-
aðra.
Aðalsöfnunardagurinn var
8. september en þá var sam-
felld dagskrá á Rás 2 allan dag-
inn og sjónvarpsdagskrá í Rík-
issjónvarpinu um kvöldið.
Gafst fólki kostur á að hringja
inn í þessar stöðvar og tilkynna
um framlög sín til söfnunarinn-
ar. Einnig var tekið á móti
framlögum á bensínstöðvum
og víða annars staðar um allt
land.
Landsátakið vakti gífurlega
athygli og árangurinn af söfn-
uninni reyndist framar björt-
ustu vonum. Alls söfnuðust
rúmar 13 milljónir króna auk
þess sem málefni fatlaðra kom-
ust á dagskrá meðal almenn-
ings. Verður hvort tveggja til
Islandsrallið ræst. Þátttakendur í islandsrallinu leggja upp frá Hafn-
arstrætinu á Akureyri. Til vinstri er liðsmaður Sniglanna en þeir tóku að
sér að fylgja hjólastólaköppunum alla leið til Reykjavíkur.
30 SJÁLFSBJÖRG