Sjálfsbjörg - 01.07.1996, Blaðsíða 8
Unglidahreyfmg Bandalags
fatlaðra á Norðurlöndum 10 ára:
Verðum að stöðva þá
mismunun sem fatlaðir
verða fyrir daglega
Stjórnvöld gefi gaum að
viðmiðunarreglum SÞ
Ungliðahreyfing Bandalags fatl-
aðra á Norðurlöndum hélt 4.
þing sitt í Reykjavík dagana 23. -
26. ágúst sl. Við sama tækifæri hélt
hreyfingin upp á 10 ára afmæli sitt,
m.a. með uppákomu í Kringlunni þar
sem gengið var og „rúllað" í hjóla-
stólum, með spjöld og blöðrur.
Ungliðahreyfing bandalagsins vill
gera almenning og stjórnmálamenn á
Norðurlöndum meðvitaða um Viðmið-
unarreglur Sameinuðu þjóðanna, sem
samþykktar voru á allsherjarþingi sam-
takanna í lok áratugs fatlaðra, árið
1993. I þeim eru ákveðnar tillögur um
það hvemig hægt er að ryðja burt hindr-
unum hinna fötluðu og skapa þannig
aðgengilegt samfélag. Viðmiðunarregl-
umar eru verkfæri til þess að gera þjóð-
félagið aðgengilegt fyrir alla og að
Framkvæmdastjórn Sjálfsbjargar,
landssambands fadaðra
Guðríöur
Ólafsdóttir,
formaður.
Birna
Frímannsdóttir,
varaformaður.
Ragnar Gunnar
Þórhallsson,
gjaldkeri.
Sigurður
Björnsson, ritari.
Baldur Bragason,
meðstjórnandi.
SJALFSBJÖRG