Sjálfsbjörg - 01.07.1996, Blaðsíða 9
tryggja fötluðum áhrif á samfé-
lagsþróunina og öðlast fullt jafn-
rétti.
Ungliðahreyfing Bandalags
fatlaðra á Norðurlöndum telur
það mikilvægt að stjómvöld gefi
meiri gaum að Viðmiðunarregl-
um Sameinuðu þjóðanna, og að
öllum borgurum Norðurland-
anna, ekki síst fötluðum ung-
mennum, verði kynntar þessar
reglur og að ráðist verði í það af
fullum krafti að koma hugmynd-
um og markmiðum þeirra í fram-
kvæmd.
Verði þessar reglur virtar
mun það hafa í för með sér breyt-
ingar alls staðar í þjóðfélaginu.
Þær snúast um lýðræði; réttinn til
upplýsinga, til að geta ferðast
með almenningsfarartækjum, að
geta komist leiðar sinnar um
stræti og torg; um réttinn til að
eiga kost á námi við hæfi hvers
og eins, og að geta fengið at-
vinnu. „Við verðum að stöðva þá
mismunun sem fatlaðir verða
fyrir daglega og stefna að réttlát-
um áhrifum þeirra á þróun mála
og fullu jafnrétti,“ segir í lokaá-
lyktun þingsins.
Myndirnar á þessum síðum
eru frá uppákomu
ungliðahreyfinga
Bandalags fatlaðra á
Noröurlöndum í Kringlunni
í lok ágúst í sumar.
SJÁLFSBJÖRG Q