Sjálfsbjörg - 01.07.1996, Side 11
Hreyfihömlun þarf ekki endilega aö hindra menn í jöklaferöum.
jafnvel enn meira gildi fyrir mig nú en
áður, reyndar öðruvísi ferðir með
breyttu sniði.
Ferðir hafa oft meira gildi fyrir fatl-
aða en þá ófötluðu, sem fjölbreyttari
tækifæri hafa til tómstundaiðkana. Það
er þó ljóst að þau ferðalög og sá ferða-
máti sem hentar ófötluðu fólki passar
ekki nema litlum hluta fatlaðra. Á það
bæði við um farartæki, gistiaðstöðu,
ferðafyrirkomulag og aðstoð af ýmsu
tagi meðan á ferðalaginu stendur.
í okkar tryggingakerfi er viðurkennt
að greiða beri að verulegu leyti kostnað
vegna ferða fatlaðra til og frá vinnustað
eða sjúkrastofnun, en þau aukaútgjöld
sem fatlaðir greiða umfram ófatlaða í
öðrum ferðum verða þeir sjálfir að bera.
Þar sem fatlaðir tilheyra í flestum tilvik-
um tekjulægri hópum þjóðfélagsins þá
verða einmitt þau aukaútgjöld sem stafa
af fötluninni oft til þess að þeir hafa
ekki ráð á að ferðast. Við komum aftur
og aftur að misréttinu, sem stjómarskrá
okkar og lög ættu að vemda okkur fyrir,
en gera ekki. Ef til vill finnst einhverj-
um að jafnrétti til ferðalaga komi aftar í
forgangsröðinni, en margar af þeim
leiðréttingum annarra mannréttinda-
brota sem framin eru á fötluðum ættu að
koma á undan; atriði sem oft tengjast
frumþörfum og frumrétti hvers manns
til að lifa með lágmarksreisn.
Það er að mörgu leyti rétt, en skoð-
um málið nánar. Setjum svo að eitt fatl-
að bam sé í hópi ófatlaðra systkina. Er
þá rétt að takmarkaðir möguleikar og
þörf á aðstoð við ferðalög fatlaða systk-
inisins takmarki ferðalög hinna? Þannig
skerðir fötlun þessa einstaklings frelsi
annarra í fjölskyldunni. Sama gildir
þegar eitt sérstakt orlofshús eða orlofs-
íbúð er sérbúin fyrir fatlaða, þá beinir
þessi séraðstaða fjölskyldu hins fatlaða í
þetta tiltekna hús, í stað þess að öll hús-
in séu þannig úr garði gerð að fatlaðir
geti beitt þeirri hæfni sem hver og einn
hefur til að vera svo sjálfbjarga sem
hann má. Að vissu leyti má líta á samfé-
lagið sem fjölskyldu, þannig að tak-
mörkun á gagnkvæmum samskiptum
þegnanna sé frelsisskerðing allra. Því
má segja að afmörkun og skerðing á
tækifærum til ferða, sem eins mikilvæg-
asta samskiptaþáttar í lífinu, sé skerðing
á samskiptum allra, og þar með frelsi
þegnanna.
Auðvitað er mér ljóst að fötlun mun
ætíð, reyndar í mismiklum mæli, á-
kvarða ferðamáta og ferðaáhuga fatl-
aðra. En það eru þær hindranir sem af
öðrum toga eru spunnar en af fötluninni
sjálfri sem ráða mestu um hvort og
hvernig fatlaðir ferðast. Hverjar eru
þessar hindranir ?
Sú langstærsta að mínu mati er
bundin kostnaðinum. Það eitt að fatlaðir
geta í fæstum tilvikum ferðast einir,
tvöfaldar kostnaðinn og jafnvel marg-
faldar. Þá verður sá fatlaði oftar en ekki
að kaupa dýrari ferðir, akstur, gistirými
o.fl. Sjaldan heyrir maður nefnda
aukna umsetningu, meira sölumagn og
dýrara fyrir þá sem selja fötluðum
ferðalöngum ferðir og þjónustu. Ekki
þætti mér óeðlilegt að unnt væri að
bjóða fötluðum hagstæðara verð bæði á
ferðum og þjónustu þegar fyrrgreind at-
riði eru höfð í huga og ætti að skoða
það af fullri alvöru.
Meginatriðið er þó viðurkenning á
sama rétti fatlaðra til ferðalaga og ann-
ara þegna. Til þurfa að koma öflugri
sjóðir, sem hafa það hlutverk að greiða
niður þann mismun sem er á milli ferða
fatlaðra og ófatlaðra. Einnig finnst mér
eðlilegt að löggjöfin heimili fötluðum
að fá aukaútgjöld sem þeir bera dregin
frá skatti. Reyndar þyrfti það sama að
gilda um fleiri aukaútgjöld fatlaðra.
Takmarkanir sem felast í slæmu að-
gengi er einn af stærstu farartálmunum
og verður það aldrei nægilega brýnt fyr-
ir fólki, að bætt aðgengi auðveldar sam-
skipti allra og ætti einnig að auka sölu
og hagnað allra þeirra aðila sem vilja
selja fólki þjónustu sína, óháð litarhætti
og líkamsburðum.
Á Norðurlöndum hefur ríkt meiri
skilningur á málefnum fatlaðra en ann-
ars staðar í heiminum og þar hefur að-
staða fatlaðra smátt og smátt batnað til
þáttöku í daglegum athöfnum.
Þörfum fatlaðra til ferða og dvalar í
sumarleyfum hefur verið mætt á ýmsa
vegu.
Svíar hafa það fyrirkomulag að ríkið
greiðir þann mismun sem ferðalag fatl-
aðra kostar umfram ófatlaðan, útbúin
hefur verið sumardvalaraðstaða í fal-
legu umhverfi fyrir fatlaða, ýmis konar
þjónusta er starfrækt í tengslum við
ferðir með áætlunarbílum, lestum og
flugvélum.
Árangur á þessu sviði verður ævin-
lega háður baráttugleði og góðri sam-
stöðu samtaka fatlaðra, og einnig því á
hvern hátt, hvar og hvernig þeir koma
sjónarmiðum sínum á framfæri við al-
menning og stjómvöld.
Jón Hlöðver Askelsson.
SJÁLFSBJÖRG O