Sjálfsbjörg - 01.07.1996, Qupperneq 25
a
«... .|.suauKH«ikw.
r 1
nv W i
f 1
£ JT ppt 1 1
f --l
Grensásdeild á að sinna endurhæfingu fyrir bæði stóru sjúkrahúsin.
verður ekkert sinnt á þessu ári en lík-
lega á næsta ári. Þetta hús er komið til
ára sinna og var upphaflega hannað sem
hjúkrunarheimili fyrir aldraða en breytt
á byggingatímanum. Hér vantar því ým-
islegt sem þyrfti að vera sérhannað fyrir
endurhæfingardeild. Hér eru öll salemi
til dæmis of lítil til að starfsfólk eigi
auðvelt með að aðstoða mikið fatlaða
sjúklinga.
Maöur fer að efast
Hefur þessi niðurskurður ekki áhrif
á starfsandann og afköstin?
- Jú, það fylgir alltaf töluverður órói
og kvíði þessum sparnaðarhviðum.
Þetta ár hefur verið óvenjuslæmt því við
eram búin að ganga í gegnum þrjár slík-
ar hrinur hér á Sjúkrahúsi Reykjavíkur.
Meðan þær standa yfir sinnum við varla
öðru, fagleg uppbygging liggur niðri á
meðan og öll orka okkar stjómendanna
fer í að mæta spamaðarkröfunum. Við
erum með mjög hæft starfsfólk hérna
sem vinnur sín störf af bestu getu en
það er mjög erfitt að hafa þjóðfélagið á
bakinu.
Við eigum líka bágt með að kyngja
því að við sem störfum í heilbrigðis-
kerfinu séum svona miklir bruðlarar.
Okkur finnst við þvert á móti mjög
sparsöm enda emm við Islendingar í 16.
sæti innan OECD hvað varðar kostnað
við heilbrigðiskerfið. En þegar sífellt er
klifað á því hve miklu við eyðum fer
ekki hjá því að maður fari að efast.
Þú nefndir að þið gœtuð ekki annað
eftirspurn, er hún alltaf jafnmikil?
- Já, það virðist vera svo. Hins veg-
ar þyrfti að gera athugun á því hversu
margir þurfa endurhæfingar við hér á
landi. Grensásdeild er eina stofnunin
hér á suðvesturhorninu, auk öldrunar-
lækningadeilda, sem veitir frumendur-
hæfingu. Hingað kemur fólk strax eftir
heilablóðfall og 1-3 vikum eftir slys,
það er misjafnt eftir því hversu veikt
það er. Aðrar stofnanir taka svo við í
framhaldi af okkar starfi.
Það hefur orðið breyting á samsetn-
ingu þeirra sem hingað koma eftir slys.
Þeim sem hafa orðið fyrir mænuskaða í
bflslysum hefur fækkað úr 10-15 á ári í
4-5 eftir að öryggisbeltin vora lögleidd í
bifreiðum. Maður verður ákafur fylgis-
maður öryggisbelta við það að starfa
hér. Hins vegar hefur sundlaugarslysum
fjölgað nokkuð.
En það þurfa fleiri endurhæfingu en
þeir sem skaddast á mænu. Eg nefndi
áðan þá sem fá heilablóðfall og blóð-
tappa en bætt meðferð þeirra hefur skil-
að meiri árangri fyrir þessa einstak-
linga. Nú koma þeir hingað í endurhæf-
ingu um leið og bráðaástandi lýkur,
enda sýnir reynslan að það næst betri
árangur ef fólk kemur strax inn á sér-
hæfða deild. Auk þess koma hingað þeir
sem verða fyrir fjöláverkum af völdum
slysa.
Á að flytja Grensásdeild?
Nú heyrðist sú tillaga í sumar þegar
rætt var um spamað í rekstri Sjúkrahúss
Reykjavíkur hvort ekki væri réttast að
flytja alla starfsemi Grensásdeildar nið-
ur á Borgarspítala.
- Já, það má færa ýmis rök fyrir því.
Það væri eflaust ódýrara að hafa sjúk-
lingana niður frá og hvað varðar þá sem
þurfa á bráðataugalækningum að halda
þá er ekki gott að þurfa að flytja þá oft á
milli húsa til rannsókna. Það er hins
vegar ekkert pláss fyrir endurhæfinguna
á Borgarspítalanum sem stendur. Ef
hugmyndin um að flytja geðdeildina
niður á Landspítala verður að veruleika
losnar þó ef til vill pláss. Á móti er svo
hægt að færa ýmis rök á borð við þau að
hér ríki mjög gott andrúmsloft sem
hjálpar til við meðferðina. Hér er sér-
hæfð sundlaug fyrir fatlaða, en stað-
reyndin er sú að einungis 13% þeirra
sem nota hana eru sjúklingar deildarinn-
ar, hinir koma utan úr bæ.
Sameining sjúkrahúsa
Þú minntist á sameiningu deilda,
hvað um sameiningu stóru sjúkrahús-
anna tveggja, Sjúkrahúss Reykjavíkur
og Landspítala? Hvernig líst starfsfólk-
inu á hana?
- Það má segja að nú sé unnið að
aukinni samvinnu sem kemur fram í því
að öldrunardeildir beggja sjúkrahúsa
sameinast á Landakoti og Grensásdeild
mun þjóna bæði Sjúkrahúsi Reykjavík-
ur og Landspítala á sviði endurhæfing-
ar. Áður en frekari sameining getur orð-
ið að veruleika þarf að gera athugun á
því hvort hún er hagkvæm. Að þeirri at-
hugun lokinni þarf svo að taka pólitíska
ákvörðun um það hvort af sameiningu
verður.
En ég er sannfærð um að það yrði
auðveldara að sameina Sjúkrahús
Reykjavíkur og Landspítala en það var
að sameina Borgarspítala og Landakot,
segir Ingibjörg Hjaltadóttir hjúkrunar-
framkvæmdastjóri. -ÞH
SJÁLFSBJÖRG