Fréttablaðið - 04.02.2022, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 04.02.2022, Blaðsíða 23
Reykingar eru sem betur fer almennt á undanhaldi, enda sterk- asti áhættuþátturinn hjá bæði konum og körlum. Helga Margrét Skúladóttir Hitakófin eru talin stafa af truflun í samspili taugakerfis og æðakerfis. Þau tengjast víkkun á útlægum slag- æðum til húðar. Axel F. Sigurðsson Helga Margrét Skúladóttir hjartalæknir segir að hættan á hjarta-og æðasjúkdómum aukist hjá konum eftir tíðahvörf. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Axel F. Sigurðsson hjartalæknir segir að að blóðfitugildi kvenna breytist oft í kringum tíðahvörf. MYND/AÐSEND Breytingaskeiðið er mörgum konum þungbært, enda tekur lífið oft stakkaskipt­ um á þessum tíma. Hita­ kófin alræmdu sýna oft litla miskunn og margar konur upplifa hjartsláttaróþægindi, svefntruflanir, einbeitingar­ örðugleika og einkenni þunglyndis. Bandaríski rithöfundurinn Sandru Tsing Loh, hefur sagt að umfjöllun fræðimanna um breytingaskeið kvenna sé oft og tíðum dapurleg og þar gæti lítils skilnings: „Þú ert svefnlaus, þú ert kvíðin, þú ert feit, þú ert þunglynd og ráðin sem þú færð eru alltaf þau sömu – farðu í f leiri göngutúra, borðaðu meira kál og drekktu meira vatn. Það hjálpaði mér ekki,“ skrifar hún. Mörg þeirra einkenna sem konur glíma við á breytingaskeiði tengjast hjarta- og æðakerfi. Þetta skýrir kannski hvað hjartalæknar eru að vilja upp á dekk, að fjalla um þetta vandasama efni. „Upphaf breytingaskeiðsins má rekja til minnkandi framleiðslu eggjastokkanna á hormónunum estrógeni og prógesteróni. Þegar dregur úr framleiðslu þessara hormóna hætta konur smám saman að hafa blæðingar og frjó- semissskeiðinu svokallaða lýkur,“ segir Helga Margrét Skúladóttir hjartalæknir. Undanfari tíðahvarfa Helga Margrét segir undanfara tíðahvarfa geta staðið mánuðum saman og jafnvel í nokkur ár. „Á þessum tíma er hormóna- framleiðsla eggjastokkanna sveiflukennd og blæðingar eru því oft óreglulegar. Á þessu tímaskeiði upplifa konur oft vanlíðan af ýmsu tagi, enda má segja að breytinga- skeiðið umtalaða sé hafið,“ segir Helga Margrét. „Hitakóf eru algengasta ein- kennið í undanfara tíðahvarfa. Þá eru svefntruflanir algengar og margar konur upplifa hjartslátt- artruflanir. Einnig er algengt að breyting verði á blóðfitu og kólest- eról í blóði hækkar oft.“ Hitakófin Langflestar konur fá að kynn- ast svokölluðum hitakófum á breytingaskeiðinu, að sögn Axels F. Sigurðssonar hjartalæknis. Sumar fá þau bara af og til, á meðan aðrar fá hitakóf með stuttu millibili, bæði að degi og nóttu til. Í sumum tilvikum vara þessi einkenni árum saman, bæði fyrir og eftir eiginleg tíðahvörf. „Hitakófin eru talin stafa af truflun í samspili taugakerfis og æðakerfis. Þau tengjast víkkun á útlægum slagæðum til húðar, sem leiðir til aukins blóðstreymis sem veldur skyndilegri hitatilfinn- ingu. Hitakófin lýsa sér oftast sem skyndileg hitatilfinning á háls- svæði, í andliti, höfði og brjósti, sem hjá mörgum konum breiðist síðan út um allan líkamann. Hita- kófin standa oft í tvær til fjórar mínútur og þeim fylgja gjarnan mikil svitamyndun, skjálfti og jafnvel kvíðatilfinning sem og hjartsláttarónot,“ útskýrir Axel. „Hjá mörgum konum eru hita- kóf algengust að nóttu til og því er líklegt að þau trufli svefn, en svefntruflanir eru líka algengar á breytingaskeiði kvenna án þess að hitakófunum sé um að kenna.“ Hjarta-og æðasjúkdómar Helga Margrét segir að hættan á hjarta- og æðasjúkdómum aukist hjá konum eftir tíðahvörf. „Þetta er talið tengjast minnk- aðri framleiðslu eggjastokkanna á estrógeni. Konur eru þó almennt í minni hættu á að fá kransæða- sjúkdóm en karlar og alla jafna gerir sá sjúkdómur vart við sig um 10 árum síðar en hjá körlunum. Þó er vert að nefna að konur með sykursýki af týpu 2, sem áður var nefnd áunnin sykursýki, en tengist bæði erfðum og lífsstíl, virðast glata þessari kynbundnu vernd og því sérstaklega mikilvægt að fylgjast vel með til dæmis konum sem greinst hafa með sykursýki á meðgöngu, líkt og fjallað var um hjá GoRed á liðnu ári“ segir Helga Margrét. Axel segir einnig að blóðfitugildi kvenna breytist oft í kringum tíða- hvörf. Hann segir algengt að heild- argildi kólesteróls í blóði hækki, auk þess sem hækkun verður á LDL kólesteróli sem oft er nefnt „vonda kólesterólið“. Þegar kólesterólgildi eru metin er þó einnig horft á HDL eða „góða kólesterólið“ og hlutföll þessara tveggja skoðuð. „Almennt gildir að það er nokk- ur fylgni á milli LDL-kólesteróls í blóði og hættunnar á hjarta- og æðasjúkdómum. Þetta samband er þó mun meira áberandi fyrir miðjan aldur en eftir tíðahvörf og oft má sjá há kólesterólgildi hjá afar hraustum konum eftir tíða- hvörf,“ útskýrir Axel. „Þótt mataræði geti í mörgum tilvikum bætt blóðfitugildin, er ekki þar með sagt að strangt mataræði dragi úr hættunni á hjarta- og æðasjúkdómum.“ Mataræði og hreyfing lykilatriði Helga Margrét tekur undir þetta og segir að heilbrigt mataræði og reglubundin hreyfing séu vissu- lega lykillinn að góðri heilsu hjá konum á breytingaskeiðinu, eins og öðrum. „Rétt er að geta þess að hollt mataræði þarf ekki alltaf að miða að lækkun kólesteróls í blóði, enda að mörgum öðrum þáttum að huga. Almennt er ekki mælt með mjög fituskertu fæði, en rétt að vanda val á fitu og forðast óhóflega neyslu sykurs og einfaldra kol- vetna, sem og unninna matvæla. Hér má benda á „Ráðleggingar um mataræði“ sem Embætti land- læknis gefur út og er aðgengilegt á netinu. Svokölluð phytoestrogen má finna í sumum matvælum eins og grænmeti, ávöxtum, soja- baunum, linsubaunum, kjúklinga- baunum, hörfræjum og einhverjar rannsóknir benda til að phyto- estrogen geti dregið úr hitakófum,“ segir hún. „Margar eldri konur hafa hátt kólesteról en engin merki um hjarta- og æðasjúkdóma – og rétt að ígrunda vel notkun blóðfitu- lækkandi lyfja, sé ekki um aðra áhættuþætti að ræða. Þar ber til dæmis að líta til ættarsögu og þá einkum sögu um hjartaáföll hjá nánum ættingjum fyrir aldur fram, reykinga og svo sykursýki líkt og rætt var um. Reykingar eru sem betur fer almennt á undanhaldi, enda sterkasti áhættuþátturinn hjá bæði konum og körlum – og aldrei of seint að hætta í því mark- miði að minnka verulega hættuna á hjartaáfalli hjá báðum kynjum.“ Axel segir rétt að árétta að oftast er rík ástæða til að mæla með notkun blóðfitulækkandi lyfja hjá konum, rétt eins og körlum, sem greinst hafa með æðasjúkdóm eða falla í ofangreinda áhættu- hópa. Helga bendir einnig á að algeng kvörtun á breytingaskeiði varði hjartsláttar óþægindi, en þetta samband hefur þó verið lítið rannsakað enda oftast um að ræða saklaust fyrirbæri. „Það að finna fyrir hjartslætti þarf ekki endilega að þýða að hjartslátturinn sé óeðlilegur og stundum er einungis um saklaus aukaslög að ræða, en þetta þarf að meta í hverju tilfelli fyrir sig og getur verið vert að kortleggja með hjartalínuriti heima í sólarhring eða svo, svokallaðri Holterrann- sókn,“ bætir hún við. Hormónameðferð Axel upplýsir að rannsóknir hafi sýnt að hormónameðferð er hjálpleg til að draga úr hitakófum. Þá getur slík meðferð líka dregið úr beinþynningu og þar með hætt- unni á beinbrotum eftir tíðahvörf. „Hormónameðferð er þó ekki hættulaus. Áhættan er þó einstaklingsbundin og fer eftir ástandi konunnar og fyrri heilsu- farssögu, auk þess sem hún tengist tímalengd meðferðar og sam- setningu þess lyfs sem notað er,“ segir hann. „Lengi vel var talið að gjöf estró- gena drægi úr hættunni á hjarta- og æðasjúkdómum. Því var um árabil mælt með gjöf estrógens hjá konum á breytingaskeiði, í því skyni að draga úr þessari áhættu. Gjörbreyting varð á þessum ráð- leggingum í kjölfar tveggja stórra rannsókna sem birtar voru árin 1998 og 2002.“ Axel segir að rannsóknirnar hafi leitt í ljós að gjöf estrógena í blöndu með progesteroni virtist ekki minnka áhættu á æðaáföllum hjá konum með þekkta hjarta-og æðasjúkdóma. Jafnframt kom í ljós að gjöf slíkra lyfja virtist auka tíðni á brjóstakrabbameini og hjarta-og æðaáföllum hjá konum sem ekki höfðu fyrri sögu um hjarta-og æðasjúkdóma. „Í kjölfarið var alfarið mælt gegn notkun hormónalyfja til að draga úr hættunni á hjarta- og æða- sjúkdómum og í dag er eingöngu mælt með notkun lyfjanna til að draga úr hvimleiðum einkennum breytingaskeiðsins og þá aðallega hitakófunum,“ segir Axel. „Í dag er talið að hormóna- meðferð feli í sér aukna hættu á brjóstakrabbameini, krabbameini í legi, heilablóðföllum og blóð- sega í bláæðum. Hættan á þessum vandamálum eykst með hækk- andi aldri og virðist mun meiri eftir sextugt en fyrir sextugt. Ekki er mælt með gjöf hormónalyfja hjá konum með sögu um brjósta- krabbamein, kransæðasjúkdóm, bláæðablóðsega eða heilablóð- föll,“ útskýrir hann. „Skammtímameðferð með hormónalyfjum er þó talin hættu- lítil hjá konum sem ekki hafa sögu um ofangreind vandamál og mælt er með að hormónalyf séu ekki gefin lengur en í fimm ár og ekki eftir að sextugsaldri hefur verið náð. Ef einkenni kvenna og van- líðan er mikil getur þó verið rétt- lætanlegt að halda meðferð áfram í lengri tíma ef ávinningur með- ferðar er talinn meiri en áhættan sem af henni stafar.“ ■ Breytingaskeið kvenna – sjónarhorn hjartalæknisins 7FÖSTUDAGUR 4. febrúar 2022 HJARTAÐ ÞITT 2022

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.