Fréttablaðið - 04.02.2022, Blaðsíða 14
Geti Nate og Sully
lesið út úr vísbend-
ingum og ráðið eina elstu
ráðgátu veraldar gætu
þeir komist yfir fimm
milljarða fjársjóð og
jafnvel fundið bróður
Nate sem týndist fyrir
löngu … en bara ef þeim
lánast að vinna saman.
Block kemst að því
að samsærið er ekki
bundið við alríkislög-
regluna heldur nær það
til æðstu valdamanna í
bandaríska stjórnkerf-
inu.
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Guðmundur Örn Jóhannsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Traust, karakter og hættan sem
stafar af óbeisluðu valdi ýta leyni-
legum útsendara fram á brún
hengiflugs í mögnuðu spennu-
myndinni Blacklight.
Travis Block (Liam Neeson)
lifir og berst utan sjónmáls. Hann
er lausamaður og „reddari“ fyrir
ríkisstjórnir. Block er hættulegur
maður sem hefur meðal annars
bjargað njósnurum úr hættulegri
stöðu þegar upp um þá hefur
komist og nauðsynlegt er að hafa
snarar og traustar hendur.
Þegar hann kemst að því að
aðgerð, sem kölluð er Eining,
beinist gegn óbreyttum borgurum
og sá eini sem þekkir ástæðuna að
baki er yfirmaður Blocks, Robin-
son (Aidan Quinn), sem Block
hafði eitt sinn verið lífvörður fyrir,
fær hann til liðs við sig blaðakonu
(Emmy Raver-Lampman). Robin-
son er nú orðinn forstjóri banda-
rísku alríkislögreglunnar, FBI.
Block kemst að því að sam-
særið er ekki bundið við alríkislög-
regluna heldur nær það til æðstu
valdamanna í bandaríska stjórn-
kerfinu.
Fortíðin leitar hann uppi þegar
lífi dóttur hans og dótturdóttur
er ógnað. Nú þarf Block að bjarga
fólkinu sem hann elskar og draga
sannleikann fram í dagsljósið til að
eiga von um endurreisn.
Enginn er óhultur og ekkert
öruggt þegar leyndarmál eru hulin
með svartljósi.
Liam Neeson, sem verður sjö-
tugur í júní, ber aldurinn vel og
klikkar ekki frekar en endranær. n
Smárabíó, Háskólabíó, Laugarás-
bíó, Borgarbíó
Enginn er óhultur og ekkert er öruggt
Fróðleikur
n Liam Neeson vann eitt sinn á lyftara í Guinness-bjórverksmiðj-
unni.
n Liam Neeson átti stuttan feril sem áhugamaður í hnefaleikum.
n Hlutverkið sem André the Giant lék í The Princess Bride var upp-
haflega ætlað Neeson en Rob Reiner, leikstjóra myndarinnar,
þótti hann of lágvaxinn þrátt fyrir að hann sé 1,95 metrar á hæð.
n Liam Neeson er áhugasamur fluguveiðimaður.
Frumsýnd
18. febrúar 2022
Aðalhlutverk:
Liam Neeson, Aidan Quinn,
Taylor John Smith, Emmy
Raver-Lampman, Claire van
der Boom og Yael Stone
Handritshöfundar:
Nick May, Mark Williams og
Brandon Reavis
Leikstjóri:
Mark Williams
Aðdáendur tölvuleikja og Play-
Station ættu að fá eitthvað við sitt
hæfi í myndinni Unchartered, sem
er byggð á samnefndum tölvuleik.
Hinn þrautreyndi fjársjóðs-
leitarmaður, Victor „Sully“ Sulli-
van (Mark Wahlberg), ræður hinn
snjalla Nathan Drake (Tom Hol-
land) til að endurheimta auðæfi
sem Ferdinand Magellan eignaðist
og Moncada-fjölskyldan tapaði
fyrir 500 árum.
Það sem byrjar sem rán breytist
fljótt í mikið heimshornaflakk og
kapphlaup við hinn miskunnar-
lausa Santiago Moncada, sem trúir
því staðfastlega að fjölskylda hans
eigi réttmæta kröfu til auðæfanna.
Geti Nate og Sully lesið út úr vís-
bendingum og ráðið eina elstu ráð-
gátu veraldar gætu þeir komist yfir
fimm milljarða fjársjóð og jafnvel
fundið bróður Nate sem týndist
fyrir löngu … en bara ef þeim lánast
að vinna saman.
Unnendur tölvuleikja og
PlayStation kannast vel við Nate
og Sully og ævintýri þeirra í
Uncharted-leikjunum. Í tölvuleikj-
unum þekkjast þeir vel en í kvik-
myndinni eru þeir kynntir fyrir
áhorfendum áður en þeir kynnast
og móta hvor annan.
Söguþráðurinn er nýr, hefur ekki
komið fram í tölvuleikjunum, og
framleiðandi myndarinnar segir
myndina koma með nýjungar
fyrir þá sem þekkja tölvuleikina
jafnframt því sem hún höfði vel til
áhorfenda sem hafa ekki kynnst
Nate og Sully í gegnum tölvuleiki. n
Smárabíó, Laugarásbíó, Sambíó
Kringlunni, Álfabakka og Egilshöll,
Háskólabíó og Borgarbíó
Tölvuleikur sem er skapaður fyrir hvíta tjaldið
Frumsýnd
11. febrúar 2022
Aðalhlutverk:
Tom Holland, Mark Wahlberg,
Sophia Ali, Tati Gabrielle og
Antonio Banderas
Handritshöfundar:
Rafe Lee Judkins, Art Marcum
og Matt Holloway
Leikstjóri:
Rubin Fleischer
Fróðleikur
n Upphaflega var Mark Wahlberg ráðinn til að leika Nate en þegar
upp var staðið lék hann Sully.
n Uncharted er fyrsta kvikmyndin í fullri lengd sem Sony Play-
Station Productions sendir frá sér.
n Bryan Cranston, Jake Gyllenhaal, Chris Pratt, Chris Pine, Chris
Hemsworth, Matthew McConaughey og Woody Harrelson komu
til álita í hlutverk Sully áður en Mark Wahlberg hreppti hlutverkið.
n Upphaflega átti að frumsýna myndina í júní 2016 en ítrekaðar
tafir af ýmsum ástæðum urðu til þess að það er fyrst núna sem
hún er frumsýnd.
2 kynningarblað 4. febrúar 2022 FÖSTUDAGURKVIKMYNDIR MÁNAÐARINS