Fréttablaðið - 04.02.2022, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 04.02.2022, Blaðsíða 26
Tveir eftirlaunaþegar á áttræðis- aldri, Nina og Madeleine, hafa átt í leynilegu ástarsambandi í áratugi. Eftirlaunaþegarnir Nina og Madeeine hafa lifað í leynum í ástarsambandi áratugum saman. En sambandið tekur stakkaskipt- um þegar ófyrirséður atburður breytir lífi þeirra til frambúðar. Allir halda, og þar með talin fjölskylda Madeleine, að þær séu einfaldlega nágrannar sem búi hvor í sinni íbúðinni á efstu hæð í sama húsi. Leikstjóri myndarinnar segir hugmyndina hafa kviknað þegar hann heimsótti vin sinn sem bjó á næst efstu hæð í fjölbýlishúsi. Hann ætlaði að ýta á dyrabjöllu- hnappinn, þegar hann heyrði raddir að ofan. Hann fór upp í stigann til að kíkja. Útidyr beggja íbúða voru opnar og raddirnar voru raddir tveggja kvenna sem töluð saman milli íbúðanna eins og þær væru ein og sama íbúðin. Hann lá á hleri í nokkrar mín- útur og fannst eitthvað heillandi við þetta. Vinur hans sagði honum síðar að konurnar tvær væru ekkjur á áttræðisaldri sem héldu einmanaleika í burtu með því að hafa útidyrnar alltaf opnar og gera stigapallinn á milli íbúðanna að hluta einnar stórrar íbúðar. Þá fór eitthvað í gang í kolli leik- stjórans. Hann sá fyrir sér sambúð af þessu tagi, þar sem konurnar færu leynt með raunverulegt eðli sambands síns og f lækjurnar sem af slíku gætu hlotist. Þær tvær eru hluti af Frönsku kvikmyndahá- tíðinni í Bíó Paradís í febrúar. n Bíó Paradís Ástúð og unaður í leynum Franska kvikmyndahátíðin verður haldin í tuttugasta og annað skiptið í Bíó Paradís, dagana 18. til 27. febrúar 2022. Sannarlega stór- kostleg frönsk kvikmyndaveisla, brot af bestu kvikmyndum ársins! Meðal mynda sem sýndar verða á hátíðinni er Þær tvær (Deaux) sem fjallað er sérstaklega um neðar á síðunni. Aðrar myndir sem sýndar verða: n Calamity Þetta er teiknimynd sem gerist 1863 í Villta vestrinu. Martha Jane neyðist til að læra að annast hrossin sem draga fjöl- skylduvagninn. Hún tekur upp á því að klæðast buxum og klippa hár sitt. Þjóðsagnapersónan Calamity Jane birtist. n Le Bruit des Moteurs (Vélarhljóð) Kanadísk mynd um Alexandre, leiðbeinanda í skóla fyrir toll- verði, sem er undir eftirliti lög- reglu, sem rannsakar uppruna teikninga af kynferðislegum toga. Tanja Björk Ómarsdóttir leikur annað aðalhlutverk myndarinnar. n Tout s‘est bien Passé (Allt fór vel) Andrém, 85, fær slag. Emm- anuelle flýtir sér að sjúkrabeði föður síns. Sjúkur og hálflam- aður, rúmliggjandi á sjúkrahúsi, biður hann Emmanuelle að að- stoða sig við að binda enda á líf sitt. Hvernig er hægt að verða við slíkri ósk frá föður sínum? n Adieu les Cons (Bye Bye, Morons) Kolsvört gamanmynd sem fjallar um heilsulitla konu sem fær drepfyndinn skrifstofu- mann til þess að hjálpa sér að finna týndan son sinn. n Lingui – Les Liens Sacré (Lingui Hin heilögu tengsl) Amina, múslimi, býr með Maríu, 15 ára dóttur sinni. Þegar Amina kemst að því að María er ólétt og vill fara í þungunarrof, eru þær í vanda í landi þar sem þungunar- rof er ólöglegt og fordæmt. n L‘armée des ombres (Army of Shadows) Gerist í seinni heimsstyrjöldinni í herteknu Frakklandi. Andspyrnu- maður sem svikinn er í hendur nasista sleppur úr útrýmingar- búðum og kemst aftur til félaga sinna í Marseilles. n Les Amours d‘Anaïs (Ástfangin Anaïs) Anaïs er þrítug, blönk og búin að missa áhuga á ástmanni sínum. Hún kynnist Daníel sem fellur strax fyrir henni. En Daníel býr með Emilie sem Anaïs fellur líka fyrir. n Les Olympiades (París, 13. hverfi) Émile hittir Camille, sem hrífst af Noru, sem stundum er með Amber. Þrjár stúlkur og piltur. Þau eru vinir, stundum elskendur og oft hvort tveggja. n Illusions Perdues (Blekkingar- leikur) Kvikmynd byggð á skáldsögu Balzac sem fjallar um ungan mann sem flytur til Parísar í leit að ást og listrænum innblæstri. Leikstjóranum Xavier Giannoli tekst hér að aðlaga stórkost- legt verk bókmenntasögunnar að hvíta tjaldinu en myndin er tilnefnd til fjórtán César-verð- launa, sem eru nokkurs konar Edduverðlaun í Frakklandi. n Aline (Celine Dion: Aline) Yngst fjórtán systkina reis hún upp á stjörnuhimininn. Myndin er lauslega byggð á ævi söng- og poppdívunnar Celine Dion. n Franska kvikmyndahátíðin er í Bíó Paradís 18.-27. febrúar. Frönsk veisla í Bíó Paradís í febrúar Bosnía, 11. júlí 1995. Aida er þýðandi fyrir Sameinuðu þjóð- irnar í bænum Srebrenica. Þegar serbneski herinn hertekur bæinn er fjölskylda hennar meðal þúsunda óbreyttra borgara sem leita skjóls í búðum Sameinuðu þjóðanna. Sem þýðandi hefur Aida aðgang að mikilvægum upplýsingum sem henni er falið að þýða. Hvað er fram undan hjá fjölskyldu hennar og samborgurum – björgun eða dauði? Eftirleikurinn var hryllingur sem heimurinn man enn. Lífið var murkað úr átta þúsund saklausum borgurum með skipulögðum hætti, þrátt fyrir að bærinn hefði verið lýstur griðasvæði Sameinuðu þjóðanna. Vanmáttugar sveitir Sameinuðu þjóðanna í bænum máttu sín lítils gegn þungvopn- uðum herafla Bosníu-Serba. Til Srebrenica er aðeins 40 mínútna flug frá Vín og innan við tveggja tíma flug frá Berlín. Ódæðin voru framin í hjarta Evrópu fyrir framan alla heimsbyggðina. Leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar, Jasmila Žbanić, er fædd 1974 í Sarajevo. Hugmyndin að myndinni kviknaði þegar hún heyrði lýsingar kvenna sem höfðu horft á eftir sonum sínum, eigin- mönnum, bræðrum og feðrum lenda í höndum Bosníu-Serba. Aðalpersónan, Aida, er Bosníubúi og fjölskylda hennar stendur í sömu sporum og þrjátíu þúsund íbúar bæjarins. Hún starfar hjá Samein- uðu þjóðunum og telur búðir þeirra vera öruggan stað fyrir fjölskyldu sína og nýtur ákveðinna forréttinda vegna starfa sinna. Myndin fjallar um ferðalagið sem hefst þegar allt kollvarpast. n Þjóðarmorð í hjarta Evrópu Myndin fjallar um ferðalagið sem hefst þegar allt kollvarp­ ast. Þær koma og fara að vild milli íbúðanna og njóta ástúðar og unaðar daglegs lífs. Bíó Paradís Frumsýnd 10. febrúar 2022 Aðalhlutverk: Jasna Ðuričić, Izudin Bajrović, Boris Ler, Dino Bajrović og Boris Isaković Handritshöfundar: Hasan Nuhanovic og Jasmila Žbanić Leikstjóri: Jasmila Žbanić Frumsýnd 18. febrúar 2022 Aðalhlutverk: Barbara Sukowa, Martine Chevallier, Léa Drucker, Muriel Benazeraf og Jérôme Varan- frain Handritshöfundar: Filippo Meneghetti og Mal- ysone Bovorasmy Leikstjóri: Filippo Meneghetti Ást, hryllingur, hlátur og grátur og allt þar á milli, er á matseðlinum í stórkost­ legri kvikmyndaveislu á franskri kvikmynda­ hátíð í Bíó Paradís. 6 kynningarblað 4. febrúar 2022 FÖSTUDAGURKVIKMYNDIR MÁNAÐARINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.