Fréttablaðið - 04.02.2022, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 04.02.2022, Blaðsíða 38
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is svavamarin@frettabladid.is Danshöfundurinn og dansarinn Lovísa Ósk Gunnarsdóttir er kom­ inn, ásamt föruneyti, til Noregs með verkið When the Bleeding Stops og setur það á svið um helgina. Dansverkið fjallar um breytinga­ skeið kvenna með rætur í persónu­ legri reynslu Lovísu þegar hún taldi sig vera að komast á það skeið fyrir þremur árum. Hún segist hafa fengið ákveðið sjokk þegar hún varð fertug og hélt að hún væri að byrja á breytinga­ skeiðinu. Hún segir þetta vera falið leyndarmál í samfélaginu sem enginn talar um en hún hafi, þegar betur var að gáð, áttað sig á því að þetta væri ekki svo slæmt. When the Bleeding Stops var frumsýnt á Nýja sviði Borgarleik­ hússins í nóvember síðastliðnum og markaði þá upphaf Reykjavík Dance Festival. „Okkur var sem sagt boðið að koma til Noregs að sýna og í kjöl­ farið auglýsti ég eftir konum búsettum í Noregi,“ upplýsir Lovísa stolt og bætir við að hún hafi í kjöl­ farið fengið sendan fjöldann allan af myndböndum sem hafa nú bæst við verkið. „Að auki sameinast nokkrar þeirra íslensku dönsurunum okkar á sviði,“ segir hún spennt yfir að vera loksins mætt til Noregs þar sem heimsfaraldurinn hefur haldið öllu í óvissu. ■ Dansað í kringum tíðahvörf í Noregi Dans Lovísu Óskar um tíða- hvörfin verður stiginn í Noregi. MYND/AÐSEND Frægasti ísskápur landsins, þar sem allt fæst gefins í And­ rými á Bergþórugötu, bilaði skyndilega á dögunum. Það tók Kamilu Walijewska og Marco Pizzolato einungis um einn dag að útvega nýjan, þökk sé dyggum stuðningi nágranna og velvildarfólks. odduraevar@frettabladid.is „Við fengum ábendingu um að það kæmi skrítin lykt úr ísskápnum fyrir nokkrum dögum,“ segir Kamila Walijewska sem í fyrra kom ísskápnum, eða frískápnum öllu heldur, fyrir við Bergþórugötu 20 í miðbænum ásamt félaga sínum Marco Pizzolato til þess að sporna gegn matarsóun. Þau halda úti Facebook­hópi nefndum eftir frískápnum þar sem fólki gefst kostur á að birta myndir af því sem það setur í ísskápinn til að deila með öðrum. Rúmlega fjög­ ur þúsund manns eru nú meðlimir. „Þannig að þegar við fengum ábendingu um lyktina fórum við á staðinn og héldum fyrst að þetta væri eitthvað matarkyns og þrifum hann,“ segir Kamila. Daginn eftir var lyktin hins vegar ekki horfin og leitaði Kamila þá til félaga síns með vit á ísskápum. „Ég veit ekki hvernig þetta virkar en hann sagði okkur að blessuðum ísskápnum væri ekki viðbjargandi. Þannig að við skelltum strax bil­ unarskilti á hann,“ segir Kamila. Nýr skápur degi síðar Kamila birti um hæl tilkynningu um málið á Facebook­hópnum síð­ asta sunnudag og jafnframt um það að leit væri hafin að arftaka þessa vinsælasta ísskáps Íslands. „Næsta dag vorum við farin af stað að sækja nýjan ísskáp sem er núna kominn fyrir framan húsið,“ segir Kamila. Eigandinn er góð­ kunningi verkefnisins og hafði ætlað ísskápinn í sambærilegt verk­ efni í Kópavogi. Aðspurð segir Kamila að þetta sé til marks um það hve vinsæll frí­ skápurinn er. „Það er alveg magnað hvað við höfum fengið frábærar viðtökur og þetta er til marks um það að fólk er að nýta sér þetta og hvað þetta er gott samfélag,“ segir Kamila. Vopn í matarsóunarstríðinu Kamila segir hugmyndir uppi víða um landið um að setja upp sam­ bærilega skápa en frískápurinn á Bergþórugötu er sá fyrsti hérlendis. „Við höfum verið í bandi við fólk víðs vegar um Reykjavík og um landið sem hefur svipaðar hug­ myndir. Þetta tekur auðvitað tíma en er til tals meðal annars á háskóla­ svæðinu og meira að segja á Ísa­ firði,“ segir Kamila. Hugmyndin er að segja matar­ sóun stríð á hendur en Kamila segir leitt hve mikill matur fari til spillis á Íslandi og víðar. Ætlunin er að mála nýja frískápinn sem ætti brátt að verða glæsilegasti ísskápur lands­ ins. „Þannig að vonandi heldur fólk áfram að vera duglegt að deila mat með öðrum frekar en að hann fari til spillis.“ ■ Tók enga stund að skipta út undarlega lyktandi frískáp Kamila og Marco voru snögg að eyða allri fýlu frá einhverjum þekktasta ísskáp landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Skjótt var brugðist við biluninni. STÓR PIZZA PÖNNUTILBOÐ ALLA DAGA Í FEBRÚAR 1. 590 PEPPERONI • HAWAII • MARGARITA EF ÞÚ SÆKIR pizzahut.is - 515 1617 - Smáralind og Staðarbergi 2–4 Hafnarfirði 18 Lífið 4. febrúar 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.