Fréttablaðið - 04.02.2022, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 04.02.2022, Blaðsíða 40
frettabladid.is 550 5000 RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 ÚTSÖLU BETRA BAKS LÝKUR MÁNUDAGINN 7. FEBRÚAR STILLANLEG RÚM | HEILSURÚM OG -DÝNUR | GAFLAR | SÆNGUR | KODDAR | SVEFNSÓFAR | STÓLAR | SÆNGURFÖT, O.FL. RÚMFÖTHEILSURÚMSLOPPAR SÆNGUR OG KODDAR VEFVERSLUN www.betrabak.is OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN AFGREIÐSLUTÍMI Mán.–fös. 11–18 | Lau. 11–16 www.betrabak.is NÝBYGGINGAR Í HAFNARFIRÐI FJÖLDI EIGNA AÐ KOMA Í SÖLU Í SKARÐSHLÍÐ OG HAMRANESI BÆJARHRAUN 10 – HAFNARFIRÐI SÍMI: 520-7500 - FASTEIGNASALA SÍÐAN 1983 Jóhönnu Vigdísar Guðmundsdóttur n Bakþankar Að fá Covid í annað sinn er ekki beinlínis góð skemmtun. Sérstaklega eftir að hafa í milli- tíðinni fengið bæði Jansen- og Pfizer-bóluefni. En það þýðir ekkert að tuða yfir því. Ég ákvað því að nýta aukatímann í einangrunarvistinni til að gera það sem ég hef aldrei tíma fyrir. Þegar rútínu verkjalyfja, nefspreys og vinnu lýkur eru margar klukkustundir eftir af deginum. Þær verða ekki nýttar til að sinna börnum, þvo þvott, elda mat, fara út að labba með hundinn eða taka til. Verkefnin sem venjulega skiptast á tvo eru nú alfarið í höndum eiginmannsins. Sem til viðbótar útvegar vistir, lyf og súkkulaði. Hann er auð- vitað bestur. Á meðan geri ég jógaæfingar, stunda hugleiðslu, hugsa um lífið og tilveruna, les bækur, læri franskar sagnir, borða Eitt sett og hef það bara nokkuð huggulegt. Svo er ég auðvitað líka svolítið hund- veik, en það er bara eins og það er. Segja má að vikudvöl í eigin félagsskap sé tækifæri til sjálfs- umhyggju, í það minnsta æfing í að þola sjálfa sig. Þeim sem hafa hug á að auðvelda sam- skipti Covid-sjúklinga landsins við sjálfa sig er að lokum bent á viðhafnarútgáfu stórveldis íslenskrar matarmenningar: Eitt sett-búðinginn frá Royal. Eða, eins og ég kalla hann, búðing drauma minna. n Mig dreymir Royal-búðing lyaver.is Heimsending um land allt

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.