Friðarboðinn og vinarkveðjur - 01.07.1941, Qupperneq 4
Ég fer ei gönuhíaup við kvæði,
sem höfunds þekki ég lítil skil.
Þeir um það sjálfir þótt þeir læði
ýmsu glingri sín í gil.
Eg enda þennan svarljóða snepil,
ég vona nú skiljir þú hvað ég vil.
Eg vil engan smáfugls trítil,
sem fer í felur í hól og gil.
J. K. J.
BROT ÚR ÆFISÖGU ÁSTARSKÁLDSINS OG
KVENNAGULLSINS JÓH. KR. JÓHANNESSONAR
Jóhannes finnst mér feikna sætur,
finnst enginn slíkur á landi hér,
ég veit allar íslands dætur,
þar undirstrika hvar sem er.
Gjöfull hann er og gæða ríkur,
gaman er honum á sjans að ná.
Það hef ég heyrt að hangi píkur,
hverjum fingri mannsins á.
Hár og þrekinn er höfðingslegur,
heiðursmaður á landi og sjó,
fagureygður, föngulegur,
fríðari sjálfum Appóló.
4