Friðarboðinn og vinarkveðjur - 01.09.1947, Síða 8
8
bál hins nýja landnáms, þar og hér.
Gröfum, eyðum gömlum erfðasyndum,
gjöldum tíund þá, sem skyldugt er.
Ut í daginn, sjáið, blessuð byggðin
bíður tímans nýja í sjón og raun.
Fram til starfa, en er dáðrík dyggðin
drottni vígð og gefur sigurlaun.
Verði hver þinn vegur sigurglæstur,
vaki frami þinn og standi vörð.
Lítill, minni verði stærri, stærstur,
stælist, vaxi að dáð við Breiðafjörð.
Vígið skálann, von og trú í barmi,
verkin skulu lofa meistarann.
Vígið skálann, táp og afl í armi,
allt, sem gerir manninn heilsteyptan.
Vígið skálann, ella er allt í veði,
allt, sem dýrast er í hverri sveit.
Vígið skálann glæsimennsku’ og gleði.
Gangið fram og strengið þessi heit.
Þá skal sjást, að tryggt er byggt á bjargi,
— bjart er yfir þessum héraðsreit.
Þá skal sjást, að undan aldafargi
aftur brunar þessi fagra sveit.
— Þér vér ætlum þessu starfi’ að sinna,
þú átt fyrir höndum göfugt stríð.
Vertu ávalt brjóstvörn barna þinna,
Bjarkalundur, heill þér alla tíð.
Jens Hermannsson.