Friðarboðinn og vinarkveðjur - 01.07.1941, Side 6
Ykkur heill og vegsemd fylgi
um grund og úfinn sæ.
Guðs vors heill og farar mildi
fylgi ykkur æ.
Guðs vors heill og farar mildi
fylgi ykkur æ um sæ.
Eg ungur hef fyrr siglt á sæinn
á Vestfjörðunum fyr,
að nóttu til, við morgunblæinn,
í logni og blíðum byr.
Sólstöðu nótt í blíða logni
á hafinu ég var,
við Látraröst sem fuglinn flogni
ég krækti í fiskinn þar.
við Látraröst sem fuglinn flogni
ég krækti í sjávar fiskinn þar.
Til hamingju ég óska ykkur
íslenzku stríðsmenn,
sem hræðist ei svarta myrkur
né neina glæpamenn.
Ykkur vitar lands vors lýsi .
um myrkra úfinn sæ,
ykkur viska veginn vísi
í höfn með friðar blæ;
ykkur viska veginn vísi
í höfn með friðar kærleiks blæ.
Jóhannes Kr. Jóhannesson.
kraftaskáld af guðs náð og sjómannavinur.