Friðarboðinn og vinarkveðjur - 01.07.1941, Qupperneq 7
ORT í TILEFNI SJÓMANNADAGSINS 6. júní 1938.
Lag: Heyrið morgunsöng á sænum.
Sjómannsdegi nú skal fagna
yfir gjörvallt land,
og sjómönnum sem auðinn fanga
úr sjónum upp á land.
Sjómenn lands vors bjargarstólpi,
heill sé ykkur færð.
Guð í hæðum ykkur hjálpi
að vinna störfin fræg,
Guð í hæðum ykkur hjálpi
að vinna sjómannsstörfin fræg.
Sjómenn fylktu liði gengu
Sjómannsskóla frá,
þeir að mynd hans Leifs fram gengu
landnemann að sjá.
Heiðursvörð vel sjómenn stóðu
um Leif landnámsmann,
sem var barn íslands stranda,
fagurt sjómanns land,
sem var barn íslands stranda,
fagurt gæða sjómanns land.
Skipstjórar og vélastjórar,
loftskeytanna menn,
stýrimenn þeir stefnu stjórna,
margs gæta oft í senn,
í
7