Friðarboðinn og vinarkveðjur - 01.07.1941, Page 13
TIL SKÁLDSINS OG LISTA-TRÉSMÍÐAMEISTAR-
ANS JÓHANNESAR KR JÓHANNESSONAR
Margir kannast nú orðið við skáldið og listamann-
inn Jóhannes Kr. Jóhannesson og er ég einn af þeim
mörgu, sem hef hlotið þá ánægju að kynnast lista-
manninum sjálfum persónulega og heyrt hann sjálf-
an fara með sín kvæði, og þær stundir eru mér ó-
gleymanlegar.
Hér með læt ég fylgja lítið kvæði til þín, Jóhannes
Kr. Jóhannesson.
Með sínu lagi.
Jóhannes Kr. ég til þín
kveða vil brag.
Meistari mikill ertu
að koma öllu í lag.
Kvæðin þín kátu hreinu
létta okkar lund.
Lifi þín kvæði lengi
á lífsins komandi stund.
Jóhannes Kr. kvæðin þín
koma við mann,
létt eins og svanur svífi
syngjandi um rann,
eða eins og lóan litla
líðandi um ^geim
kveður sín kvæðin blíðu
nýkomin heim.
13