Fréttablaðið - 02.03.2022, Síða 1

Fréttablaðið - 02.03.2022, Síða 1
Fólk getur alltaf komið hingað og sótt um alþjóðlega vernd. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra 4 2 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s M I Ð V I K U D A G U R 2 . M A R S 2 0 2 2 Sjálfsmark Rússlands Risaeðlur vaða öskuslabbið Íþróttir ➤ 16 Lífið ➤ 26 Fáðu tilboð í tryggingarnar á tm.is 2-3 DAGA AFHENDING Félags- og vinnumarkaðs- ráðherra segir að tekið verði á móti flóttafólki frá Úkraínu, jafnvel þó að fjöldi sé hér fyrir. Úkraínskir hælisleit- endur séu ekki útilokaðir sem flóttamenn. tsh@frettabladid.is ÚKRAÍNA Guðmundur Ingi Guð- brandsson, félags- og vinnumark- aðsráðherra, segir mikinn vilja hjá ríkisstjórninni til að bjóða f lótta- mönnum frá Úkraínu hingað. Flóttamannanefnd var kölluð saman á föstudag og Guðmundur fól henni að fylgjast grannt með stöð- unni og vinna með bæði öðrum Evr- ópuríkjum og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Einnig að koma með tillögur að útfærslu mót- tökunnar. „Það liggur ekki enn þá fyrir nákvæmlega með hvaða hætti það verður en þau eru bara að vinna þetta hratt og vel,“ segir Guð- mundur. Óvíst er hvenær niðurstaða nefndarinnar muni liggja fyrir. Ríkisstjórnin bauð 120 afgönsk- um f lóttamönnum til landsins eftir valdatöku Talibana. Þá hafa 20 Úkraínumenn komið sjálfir hingað til lands og óskað eftir alþjóðlegri vernd sem og aðrir. Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra lét hafa það eftir sér fyrir skemmstu að neyðarástand ríkti hjá Útlendingastofnun sem gæti teppt aðstöðuna fyrir f lótta- mönnum frá Úkraínu. Guðmundur segir af og frá að flóttamenn sem eru hér fyrir standi í vegi fyrir þeim sem koma frá Úkra- ínu. „Það mun ekki gera það. Bara alls ekki,“ segir hann. „Varðandi Úkraínu þá er þetta bara eitt af því sem við erum að skoða, með hvaða hætti við munum standa að því að bjóða fólk velkomið. Aðalatriðið er það að fólk verður boðið velkomið og við ætlum að taka þátt í því að aðstoða við eina stærstu mannúðar- krísu sem Evrópa hefur upplifað á síðustu áratugum.“ Gat hann ekki svarað því hvort farsóttarhótelin, sem verið er að loka, fái það hlutverk að taka við flóttamönnum. Framkvæmdin yrði á vegum Útlendingastofnunar. Aðspurður hvort fólk sem komið hefur og sótt um hæli sé útilokað frá því að verða boðið segir Guð- mundur svo ekki vera. „Fólk getur alltaf komið hingað og sótt um alþjóðlega vernd. En síðan er þetta spurning um hvernig við útfærum það verkefni að taka á móti f lóttafólki frá Úkraínu vegna þess neyðarástands sem uppi er.“ ■ Útlendingastofnun ekki fyrirstaða FERÐAÞJÓNUSTA Greinendur telja að olíuverð um þessar mundir sé í hámarki vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Þeir spá því að verðið verði lægra í sumar. Ef svo fer væri það lán í óláni fyrir f lugfélög því umsvif í f lugi eru mun meiri á sumrin en á veturna. Aðstæður geta þó breyst hratt í stríði. Þetta segir Birgir Jóns- son, forstjóri Play. SJÁ SÍÐU 8 Spá að olíuverð lækki í sumar Birgir Jónsson, forstjóri Play Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, hefur smalað saman hópi tónlistarmanna til að syngja breytta útgáfu af laginu We shall overcome, fyrir Úkraínu. Þar á meðal eru Þorsteinn Einarsson, Ellen Kristjánsdóttir, KK og Ásgeir Trausti. „Mér finnst það sem er að gerast í Úkraínu ótrúlega dapurlegt. Ég hef áhyggjur af barnabörnunum mínum,“ segir Kári. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.