Fréttablaðið - 02.03.2022, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 02.03.2022, Blaðsíða 20
Alþjóðablaksam- bandið ætlar að halda HM í Rússlandi í ágúst. Þeirri ákvörðun verður ekki breytt. 16 Íþróttir 2. mars 2022 MIÐVIKUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 2. mars 2022 MIÐVIKUDAGUR Íþróttasambönd hafa sagt skilið við Rússa í kjölfar stríðsbrölts þeirra yfir til nágranna sinna í Úkraínu. UEFA hefur fært úrslitaleik Meistaradeildarinnar frá Sankti Pétursborg og FIFA hefur útilokað Rússa frá HM í Katar. Meira að segja litla Ísland hefur mótmælt. benediktboas@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR Knattspyrnusamband Íslands hefur ákveðið að íslensk landslið muni ekki leika gegn lands- liðum frá Rússlandi og ekki spila í Hvíta-Rússlandi í leik sem átti að fara fram í apríl. KSÍ bættist þar með hóp landa sem hafa mótmælt stríðs- rekstri Rússa gegn Úkraínu. Rússneskt íþróttafólk hefur verið gert afturreka eftir að stríðið hófst í austri. Þannig mælti Alþjóðaólympíu nefndin með því að íþrótta menn frá Rússlandi og Hvíta- Rússlandi yrðu útilokaðir frá alþjóð- legum íþróttakeppnum. Rússneskir knattspyrnumenn munu ekki taka þátt í HM í Katar og afar ólíklegt er að rússneska kvennalandsliðið spili á EM í sumar á Englandi. UEFA tók úrslitaleik Meistara- deildarinnar af Sankti Pétursborg og færði hann til Parísar. Fastlega er búist við að Rússar og Hvítrússar fái ekki að taka þátt í Vetrarólympíuleikum fatlaðra sem hefjast í Beijing í vikunni. Þá tilkynnti Alþjóðaíshokkísam- bandið að HM ungmenna færi ekki fram í Síberíu eins og áætlanir gerðu ráð fyrir. Finnar vilja að sambandið gangi lengra og taki HM af Rúss- landi sem fara á fram í maí. Alþjóðarúgbýsambandið hefur bannað Rússum að taka frekar þátt fyrir HM í Frakklandi sem fram fer á næsta ári. Þar eru Rússar í fimmta sæti og konunum hefur verið bann- að að taka þátt á HM í Suður-Afríku sem fram fer síðar á þessu ári. Þá verður enginn Formúlu-kapp- akstur í Rússlandi og Alþjóðaskíða- sambandið hefur f lautað af eða fært fimm viðburði sem áttu að fara fram í Rússlandi. Alþjóðaskáksam- bandið hefur ákveðið að færa FIDE- skákþingið og undanúrslitunum í vatnapóló sem áttu að fara fram um helgina hefur verið slegið á frest. Það eru þó ekki allir að snúa baki við Rússum vegna stríðsins. Alþjóðablaksambandið ætlar að halda HM í Rússlandi í ágúst. Þeirri ákvörðun verður ekki breytt. Ekki í fyrsta sinn Rússar eru ekki fyrsta þjóðin sem fær rauða spjaldið frá fótbolta- samfélaginu. Þjóðverjar og Japanir fengu ekki að taka þátt í HM árið 1950 vegna framgöngu sinnar í heimsstyrjöldinni síðari. Rússar fá rautt spjald í heimi íþrótta Cafu dregur Ísland upp úr hattinum fyrir Heimsmeistaramótið í Rússlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Falleg stund á Goodison Park í Bítlaborginni. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Úr leik Íslands og Rússa í körfubolta. Tryggvi Snær í baráttu undir körfunni. Samstaða með Úkraínu var á Wem- bley á sunnudag. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY benediktboas@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR Þróttarar eru verulega ósáttir við Dag B. Eggertsson og borgarstjórn hans og skrifa ítarlega grein um það á vef sínum sem birtist í gær. Félagið telur það hafa verið svikið um loforð um uppbyggingu í Laugardalnum. Jón Arnór Stefáns- son, einn besti körfuboltamaður landsins, bætti um betur og skrifaði harðorðan pistil á fréttavefinn Vísi. Áköll eru um uppbyggingu í Laugardalnum en það er ekki bara Þróttur sem fer fram á slíkt. Laugar- dalshöllin sem hýsir landsleiki í körfu og handbolta er ónothæf og þá er hugað að uppbyggingu Laugar- dalsvallar sem hýsir karlalandsliðið í fótbolta. „Það kom því fulltrúum íþrótta- félaganna í Laugardal verulega á óvart að sjá tillögur borgarstjóra nýverið um uppbyggingu íþrótta- mannvirkja í dalnum þar sem bygging þjóðarhallar er fyrsti kostur en horfið frá byggingu íþróttahúss fyrir íþróttafélög og skóla sem þjóna eiga börnum og unglingum. Þessar tillögur ganga þvert gegn áherslu fyrrnefndrar viljayfirlýsingar og taka með engu móti tillit til brýnnar þarfar á nýju íþróttahúsi í hverfinu. Óhætt er að fullyrða að þessar nýju tillögur séu í andstöðu við skýran vilja íbúa hverfisins og geri samráð og samstarf fulltrúa borgarinnar og íþróttafélaganna undanfarin mörg ár að engu,“ segir í yfirlýsingu frá aðalstjórn Þróttar. Telur aðalstjórn Þróttar að sá hluti viljayfirlýsingarinnar sem fjallar um byggingu íþróttahúss sé fallinn um sjálfan sig, enda hafi borgin ekki staðið við nein þau tímamörk sem í yfirlýsingunni voru tilgreind. Jón Arnór benti á að Laugar- dalurinn, sem er stærsta uppbygg- ingarsvæðið í dag, væri eina borgar- hverfið þar sem íþróttahús vantar fyrir íþróttafélögin sem þar halda úti starfsemi. Hann spyr einfaldrar spurningar. „Stendur til að byggja fjölnota íþróttahús fyrir íþrótta- félögin í hverfinu, eða er Degi og félögum alveg sama um íþrótta- iðkendur hverfisfélaga Laugar- dalsins?“ skrifar Jón. ■ Jón Arnór og Þróttarar ósáttir við borgarstjóra Jón Arnór Stefánsson. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Suður-Afríka var útilokuð frá alþjóðlegri knattspyrnu til ársins 1990 vegna aðskilnaðarstefnu sinn- ar. Mexíkóar fengu ekki að taka þátt árið 1990 fyrir að hafa notað eldri leikmenn á HM ungmenna árinu áður og Chile fékk rauða spjaldið árið 1994 fyrir svindl. Þá þót t ist ma rk vörðu r inn Roberto Rojas meiða sig alvarlega þegar blys lenti skammt frá honum. Þegar myndbönd voru skoðuð kom í ljós að Rojas var með rakvélablöð í markmannshönskunum og skar sig í framan. ■ Ronaldo í leik. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY hoddi@frettabladid.is FÓTBOLTI Í gegnum tíðina hefur enginn efast um Cristiano Ronaldo sem knattspyrnumann en undan- farnar vikur hefur borið á því. Þann- ig er sagt frá því í enskum blöðum að Ralf Rangnick, knattspyrnustjóri Manchester United, sé byrjaður að efast um Ronaldo og hæfni hans til þess að leiða sóknarlínu liðsins. Ronaldo hefur skorað eitt mark í síðustu tíu leikjum sínum hjá Uni- ted en hefur samt sem áður haldið sæti sínu undir stjórn Rangnick. Staðarblaðið í Manchester fjallar um þetta og segir að þolinmæði þýska stjórans sé nánast á þrotum, vandamálið er hins vegar að United hefur fáa aðra kosti. Félagið ákvað að losa sig við Anthony Martial í janúar, Mason Greenwood er grun- aður um gróft of beldi gagnvart fyrrum unnustu sinni og þá er Edin- son Cavani oft á tíðum meiddur sem eykur álagið á 37 ára Ronaldo. ■ Efast um Ronaldo hoddi@frettabladid.is FÓTBOLTI Jurgen Klopp, stjóri Liver- pool, hefur lofað því að Harvey Elliott, leikmaður félagsins, muni ekki fagna með blysi aftur. Þessi 18 ára gamli piltur fékk blys hjá stuðn- ingsmanni Liverpool til að fagna sigri í deildarbikarnum á sunnudag. Enska knattspyrnusambandið hefur tekið Elliott á teppið fyrir að fagna sigri liðsins með þessum hætti. „Ég get lofað því að hann gerir þetta ekki aftur. Er þetta það versta sem við höfum séð gerast í heimi fótboltans? Nei,“ sagði hinn geðþekki þýski stjóri en Liverpool vann sigur á Chelsea í vítaspyrnu- keppni í úrslitaleiknum. ■ Elliott litli leggur blysið á hilluna Elliott og blysið. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.