Fréttablaðið - 02.03.2022, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 02.03.2022, Blaðsíða 13
Oft þarf eitthvað alveg sérstakt að gerast eða koma til, eitthvað, sem rífur okkur upp úr svefni vana og siða – upp úr dásvefni daglegrar rútínu – til að við áttum okkur á eðli hluta og stöðu mála okkar sjálfra og þess umhverfis, sem við lifum í. Stundum er talað um, og það með réttu, að auga gestsins sé glöggt. Gesturinn kemur að umhverfi og atburðum með öðrum hætti, með annarri tilf inningu og sýn, en heimamenn, sem oftast eru njörv- aðir í viðjum vanans. Blinda er barn vanans. Á undanförnum vikum hefur mikið verið fjallað um blóðmera- hald hér á Íslandi, en það byggist, eins og flestir vita nú, á því, að blóð er tekið af fylfullum merum, 5 lítrar í einu, 8 sinnum hvert haust, en hver blóðtaka virðist jafngilda allt að 20% af blóðmagni hryssu, og það vikulega. Þetta hefur verið gert hér, vita- skuld með fullri vitund þeirra, sem fyrir blóðtökunni standa og hana framkvæma, líka þeirra stjórnvalda, sem eiga að hafa krítískt eftirlit með svona starfsemi, þrátt fyrir það, að f lestir eða allir fræði- og vísinda- menn á þessu sviði telji, að mest megi taka 10% af blóði hryssu á 30 daga fresti, og þrátt fyrir það, að blóðtaka af fylfullum merum eða mjólkandi merum sé stranglega bönnuð í Þýzkalandi, reyndar í öllum 27 löndum ESB, svo og í Sviss, vegna þess viðkvæma ástands, sem dýrin eru þá í. Hér á Íslandi er blóð tekið af hryssum, sem mest eru bæði; fyl- fullar og mjólkandi! Við þetta bætist svo of beldi og meiðingar, sem oft þarf að beita dýrin, til að ná þeim í blóðtöku- bás og negla þær þar, og svo þeir áverkar, sem dýrunum eru reglulega veittir, vikulega um 8 vikna skeið, með hálfs sentímetra breiðri blóð- tökunál, sem rekin er inn í slagæð dýrsins, og það af eiðsvörðum „dýralæknum“. Þetta er búið að vera í gangi hér, í um 40 ár, hefur blasað við á tugum bæja, og MAST hefur átt að hafa eftirlit með þessu – að dýravelferð væri tryggð – en nánast enginn hefur tekið eftir þessu, gert eitt- hvað með þetta, ekki einu sinni MAST, sem fremur hefur borið blak af starfseminni, en hitt; þetta hefur einfaldlega viðgengist af gömlum og „góðum“ vana. Svo koma gestir, erlend dýra- verndunarsamtök, og vekja okkur upp af svefni andvaraleysis og afskiptaleysis, svefni vana og blindu daglegrar rútínu. Og, hvað gerist þá? Mörgum bregður nú loks í brún; hver fjand- inn hefur verið að gerast hér!? Í 40 ár!? Og MAST, sem átti að vita allt um málið og stýra því og kontróll- era, biður erlendu dýraverndunar- samtökin að senda sé rannsóknar- gögn og niðurstöður, til að þau geti kynnt sér málið! Eftir 13 ára eftirlit. Í raun og veru snýst þessi hug- leiðing mín ekki bara um okkur, mannfólkið, heldur, miklu fremur, um dýrin og okkur. Samlífið. Hestar, blóðmerar, eru auð- vitað spendýr, en mannfólkið er líka spendýr. Þó ótrúlegt kunni að virðast, eru taldar vera um 5.500 tegundir spendýra á jörðinni. Þessi spendýr eru ólík að formi, gerð og stærð, en eru í grundvall- aratriðum öll eins sköpuð; gerð og byggð. Þá virðist það loks liggja fyrir að við erum að éta okkur sjálf Öll spendýr, ekki bara spendýrið maðurinn, f inna fyrir andlegri og líkamlegri vanlíðan og þján- ingu, óttast og hræðast, kveljast af meiðslum og áverkum, eins og við, kvíða reyndar líka fyrir, hryggjast, syrgja, hlakka til og gleðjast, allt meira og minna eins og við. Tilraunir eru gerðar á músum, rottum, kanínum og hundum – oftast reyndar með hræðilegu kvalræði fyrir dýrin, sem sjaldnast lifa tilraunir af – og er árangur og niðurstöður síðan notaðar fyrir lyfjaþróun og nýjar lækningalausnir fyrir mannfólkið. Þetta sýnir auðvitað og sannar náin tengsl og feikileg líkindi allra spendýra, manna meðtalinna. Nýjasta dæmið um það, hversu lík öll spendýr og menn eru, er ígræðsla hjarta úr svíni í mann, sem virkar. Í 57 ára gamlan Bandaríkjamann, sem var með lífshættulegan hjarta- sjúkdóm, var í byrjun ársins grætt hjarta úr svíni, sem reyndar hafði verið eitthvað aðlagað, með gena- breytingum, og lif ir maðurinn enn, þegar þetta er skrifað. Hjarta- ígræðsla úr svíni í mann virkar! Áður hafði það gerzt, að hjarta- lokur úr svínum höfðu verið grædd- ar í menn, til að laga eða lækna hjartagalla, húð af svínum grædd á brunasár manna, og í einu tilfelli hafði nýra verið grætt í mann. Þetta sýnir og sannar að við, spen- dýrin, erum í grunninn öll sköpuð eins, nema, hvað maðurinn er auð- vitað gráðugri, grimmari og mis- kunnarlausari, en önnur spendýr. Og, hann einn drepur án þarfar, sér til skemmtunar og gleði, af lægstu hvötum; drápslosta. Önnur spendýr, rándýr, drepa af þörf. Punkturinn er: Liggur það ekki loks fyrir, að við, menn og önnur spendýr, erum ein stór og marg- breytileg fjölskylda, þannig, að þegar við erum að halda, slátra og éta önnur spendýr, erum við, í raun, að éta okkur sjálf!? n Ole Anton Bieltvedt stofnandi Jarðarvina MIÐVIKUDAGUR 2. mars 2022 Skoðun 13FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.