Fréttablaðið - 02.03.2022, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 02.03.2022, Blaðsíða 32
frettabladid.is 550 5000 RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is Láru G. Sigurðardóttur n Bakþankar Rúm hálf öld er liðin síðan John Lennon gaf út lagið Imagine þar sem hlustendur eru hvattir til að sjá fyrir sér mannkynið sameinast um frið. Síðar sendi hann frá sér lagið Give Peace a Chance í tilefni loka Víetnamstríðsins 1975. Nú standa 44 milljónir Úkra- ínubúa andspænis stríði. Hálf milljón er nú þegar á flótta. Þá skýtur skökku við að horfa á roskinn mann taka jafn afdrifa- ríkar ákvarðanir sem stríði fylgja – flestir róast með aldrinum. Eins hefði maður talið að nútíma sam- skiptafærni kæmi í veg fyrir stríð. Á meðan við getum talað saman í lifandi mynd milli heimsálfa og læknað sjúkdóma sem voru áður ólæknandi, þá grípa menn til vopna líkt og á miðöldum. Hermenn eru strengjabrúður valdsins og þeir sem standa uppi eftir stríðið eiga ekki alltaf afturkvæmt í samfélagið, því stríð rænir þá innri friði. Nýlegar rannsóknir sýna að um 250 þúsund hermenn úr Víetnamstríðinu þjást af áfallastreituröskun mörgum ára- tugum eftir að því lauk. Þá kveikir það von að horfa á viðbrögð ríkja heims, sem sýnir að meirihluti mannkyns kýs frið. Þjóðir bjóða aðstoð sína eða leggja á höft til að þvinga Pútín til að draga herlið sitt heim. Ísland hefur verið álitið frið- sælasta land í heimi síðan Global Peace Index var fyrst mældur árið 2008. Þá er táknrænt að Yoko Ono valdi Ísland fyrir Friðarsúluna sem var vígð árið áður en Ísland hreppti fyrst titilinn. Á súluna eru orðin Imagine Peace áletruð á 24 tungumálum, en að sjá fyrir sér frið er einmitt fyrsta skrefið í átt að friði. Ísland hefur í gegnum tíðina stuðlað að friði, samanber leiðtoga- fundinn í Höfða. Okkur er treyst fyrir Friðarsúlunni, en hvað erum við að gera núna til að stuðla að heimsfriði? n Heimsfriður Er þitt fyrirtæki tryggt fyrir netárásum? Hugsum í framtíð Vatnagörðum 14 104 Reykjavík litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is UMHVERFISVÆN PRENTUN islenskt.is Borðaðu hana í heilu lagi; skorna í helminga, langsum eða þversum, í sneiðar, stilka eða litla safaríka teninga. Vatnsmælirinn: Gúrka 96% íslenskt vatn Grúka Það er svo létt að breyta íslenskri gúrku í eitthvað alveg nýtt og ferskt.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.