Fréttablaðið - 02.03.2022, Page 6
Þetta er gert svo að
Úkraína geti varið sig.
Lucie Samcova-Hall Allen, sendi-
herra Evrópusambandsins
Við erum ekkert að
gera þetta að gamni
okkar.
Gunnar Dofri
Ólafsson,
samskipta- og
þróunarstjóri
Sorpu
Það er algjörlega
sambærilegt við það
sem gerist til dæmis í
Neskaupstað
Guðmundur Ingi
Ásmundsson
forstjóri Lands-
nets
birnadrofn@frettabladid.is
ÚKRAÍNA Samstarfsnefnd háskóla-
stigsins á Íslandi, sem mynduð er af
rektorum allra íslensku háskólanna,
fordæmir harðlega innrás Rússa í
Úkraínu. Þetta kemur fram á vef
Háskóla Íslands.
Þar lýsir nefndin yfir samstöðu
með nemendum og starfsfólki úkra-
ínskra háskóla sem og öllum íbúum
landsins. „Íslenskir háskólar munu
fylgjast náið með framvindu mála
og bregðast við eftir því sem málin
þróast,“ segir í tilkynningunni.
Þar segir einnig að íslenskir
háskólar muni huga sérstaklega að
starfsfólki og nemendum sínum frá
Úkraínu og Rússlandi, og þeim sem
eiga þar skyldfólk og ástvini. ■
Íslenskir háskólar
styðja Úkraínu
Nefndin lýsir yfir stuðningi við nem-
endur og kennara úkraínskra skóla.
arib@frettabladid.is
ORKUMÁL G u ðmu ndu r I ng i
Ásmundsson, forstjóri Landsnets,
hafnar því að Landsnet uppfylli
ekki kröfur sem gerðar séu til raf-
magnsf lutninga til Vestmanna-
eyja, skerðingar undanfarinna
ára séu vegna truf lana á kerfinu
uppi á landi en ekki vegna bilana
í sæstrengjunum til Eyja.
Líkt og fram kom í blaðinu í gær
fundaði bæjarstjórn Vestmanna-
ey ja um raf mag nsleysið sem
varð í bænum í síðustu viku, þar
kom fram í bókun að staðan væri
óásættanleg. Það þyrfti sex mega-
vött til viðbótar í varaafl.
„Staðan í Vestmannaeyjum er
ekkert frábrugðin því sem gerist á
öðrum stöðum,“ segir Guðmundur.
Að meðaltali hafi verið skerðingar
á hluta af forgangsrafmagni í Vest-
mannaeyjum í þrjár klukkustundir
á ári síðustu fimm árin.
„Það er algjörlega sambærilegt
við það sem gerist til dæmis í Nes-
kaupstað. Skýringarnar á þessu
straumleysi eru ekki að sæstreng-
irnir hafi verið að truf la heldur
fyrst og fremst kerfið uppi á landi.“
Þess vegna er áherslan á að styrkja
kerfið þar.
Tveir sæstrengir f lytja rafmagn
til Vestmannaeyja. Vestmann-
eyjastrengur 1 er kominn til ára
sinna. Guðmundur segir að hann
hafi ekki bilað í áratugi en það sé
á langtímaáætlun Landsnets að
skipta um strenginn. Vestmann-
eyjastrengur 3 var tekinn í gagnið
árið 2013 og segir Guðmundur að
hann hafi einu sinni bilað, það hafi
að öllum líkindum verið vegna
framleiðslugalla.
Forgangsrafmagn í Vestmanna-
eyjum er í mesta lagi um ellefu
megavött. Bili Vestmanneyjastreng-
ur 3 er unnt að f lytja 8 megavött
með Vestmanneyjastreng 1 auk þess
sem núverandi varastöðvar eru með
5,5 megavött. Guðmundur segir að
ef svo ólíklega vildi til að þeir biluðu
báðir á sama tíma væru til færan-
legar stöðvar með tólf megavöttum
hjá Landsneti.
Guðmundur segir að staðan
breytist verulega til batnaðar í vor.
„Þá tökum við í notkun nýja spenni-
stöð rétt austan við Þjórsá. Þaðan
hefur verið lagður jarðstrengur
til Hellu og Hvolsvallar. Það bætir
afhendingaröryggið á Suðurlandi
verulega. Á næsta ári hefjast fram-
kvæmdir við jarðstreng frá Lækjar-
túni til tengistöðvar Vestmanna-
eyjastrengjanna í Rimakoti, þar
með verður komin á tvöföld teng-
ing til Vestmannaeyja. Þetta mun
tryggja Vestmanna eyingum meiri
af hendingaröryggi sem og Sunn-
lendingum öllum.“ ■
Staðan í Vestmannaeyjum ekkert verri en annars staðar
Sendiherra Evrópusam-
bandsins á Íslandi hefur
fylgst með fjöldafundum til
stuðnings Úkraínu og segist
finna vel fyrir stuðningi
Íslendinga. Hún segir þving-
unaraðgerðir sambandsins
gagnvart Rússum vera for-
dæmalausar.
jonthor@frettabladid.is
ÚKRAÍNA Lucie Samcová-Hall Allen,
sendiherra Evrópusambandsins á
Íslandi, er snortin yfir viðbrögðum
Íslendinga við innrás Rússa í Úkra-
ínu.
„Ég hef persónulega fundið
mikið fyrir þeim mikla stuðningi
og samstöðu sem ég hef séð á
Íslandi. Ég hef fylgst með báðum
fjöldafundunum. Og ekki bara það,
heldur hef ég verið í sambandi við
fólk sem spyr hvað sé hægt að gera
til að styrkja Úkraínu í sinni bar-
áttu,“ segir hún.
Sendiherrann segir aðgerðir ESB
tvíþættar. Annars vegar séu það
refsiaðgerðir gagnvart Rússum og
hins vegar hjálp til Úkraínu.
Refsiaðgerðirnar eru að miklu
leyti efnahagslegar og segir sendi-
herrann að markmiðið með þeim
sé að gera út um möguleika Pútíns
til að fjármagna stríðið. Hún tekur
samt fram að aðgerðirnar séu ekki
miðaðar að því að valda óbreyttum
rússneskum borgurum skaða,
heldur séu þær miðaðar að því að
veikja Kreml.
Aðgerðirnar ná meðal annars
yfir ákveðna rússneska einstakl-
inga, um það bil 650 talsins. Í þeim
hópi eru til dæmis Pútín, Sergei
Lavrov, utanríkisráðherra Rúss-
lands, ólígarkar og fólk sem er vel
tengt Kreml. Þá geta rússneskar
f lugvélar ekki f logið yfir yfirráða-
svæði Evrópusambandsins. Auk
þess er mikið um efnahagslegar
aðgerðir gagnvart rússneskum
bönkum og fyrirtækjum.
Aðgerðir til þess að hjálpa
Snortin yfir viðbrögðum Íslands
Fjárhagslegar þvinganir
gagnvart mismunandi geirum í rússnesku hagkerfi
Fjármögnun Orka
Flutningur Tækni
Varnir Vörur
Í gildi til: 31.07. 2022.
Endurnýjun: Á sex mánaða fresti.
Byggt á fyrirhugaðri framkvæmd Minsk-samkomulagsins.
Minsk-samkomulagið er áætlun til að stöðva stríðið í Austur-Úkraínu.
Samkomulagið var aldrei framkvæmt til fulls.
RússlandÚkraína
Úkraínu eru til að mynda fjárhags-
legar og hafa aðgerðapakkar upp á
hundruð milljóna evra verið sam-
þykktir.
En það sem er líklega stærsta
ákvörðunin er sú að svokallaður
evrópskur friðarpakki hefur verið
virkjaður í fyrsta skipti. Það verður
til þess að hernaðargögn eru send
frá aðildarríkjum ESB til Úkraínu.
„Þetta er gert svo að Úkraína geti
varið sig,“ segir Lucie Samcová um
aðgerðapakkann og tekur fram að
hann sé algjörlega fordæmalaus,
enda er um að ræða fyrsta stríð á
milli ríkja síðan Evrópusambandið
var stofnað í kjölfar seinni heims-
styrjaldarinnar.
„Evrópuverkefnið snerist um
að skapa frið. Og fyrir nokkrum
árum héldum við að ekki væri þörf
á aðgerðapakka sem myndi fjár-
magna hernaðargögn,“ segir hún
og bætir við að síðan hafi margt
breyst.
„Við sjáum öll að það sem er að
gerast í Úkraínu er án fordæma. Og
slíkar aðgerðir krefjast fordæma-
lausra viðbragða. Það er viðhorfið
á bak við öll viðbrögð aðildarríkja
ESB.“ ■
urduryrr@frettabladid.is
UMHVERFISMÁL Notkun glæru
pokanna hefur skilað tilskildum
árang r i, samk væmt Gunnar i
Dofra Ólafssyni hjá skrifstofu
framkvæmdastjóra Sorpu. For-
svarsmenn fyrirtækisins áætla að
breytingin skili sér í um 1.200 færri
tonnum í urðun á ári og segja það
varfærnislega áætlað.
Sorpa ákvað á þrítugsafmæli sínu,
26. apríl 2021, að ekki mætti lengur
koma með úrgang á endurvinnslu-
stöðvar í pokum sem ekki væri
hægt að sjá í gegnum. Þetta var gert
í þeirri von að draga mætti úr urðun
endurvinnanlegs úrgangs.
Fyrir breytinguna var um helm-
ingur alls úrgangs sem settur var
í urðunargám vitlaust f lokkaður.
Helmingurinn var efni sem átti
heima annars staðar, svo sem plast,
pappi, föt og raftæki.
„Okkar starfsfólk getur séð hvað
er í glæru pokunum og leiðbeint
fólki um hvað á að fara hvert,“ segir
Gunnar. Nú sé ekki lengur hægt að
fela sig bak við svörtu ruslapokana.
Enn er þó hægt að koma með
svarta ruslapoka en starfsfólk
endurvinnslustöðvanna rukkar nú
fimm hundruð krónur fyrir hvern
svartan ruslapoka sem fólk mætir
með rusl í. „Annars stendur því til
boða að tína upp úr pokanum og
setja á rétta staði með aðstoð starfs-
fólks,“ segir Gunnar.
„Við erum ekkert að gera þetta að
gamni okkar,“ segir Gunnar. „Við
höfum það verkefni að draga úr
urðun. Við höfum það verkefni að
styðja við innleiðingu á hringrásar-
hagkerfinu. Við höfum það verkefni
að bæta meðhöndlun úrgangs og
við sjáum að þetta er mjög góð og
öflug leið til þess og ég sé ekki betur
en að það sé ánægja með þetta.“ ■
Innleiðing glæru pokanna dragi mjög úr urðun
Allen segir Evrópuverkefnið snúast um að skapa frið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
arib@frettabladid.is
ÚKRAÍNA Borgarstjórn Reykjavíkur
sendi frá sér ályktun á fundi sínum
í gær þar sem innrás Rússa í Úkra-
ínu var harðlega fordæmd. Þá lýsir
borgin samstöðu og stuðningi við
fólkið í Úkraínu
Þá hyggst Eyþór Arnalds, oddviti
Sjálfstæðismanna í borgarstjórn,
leggja fram tillögu í skipulagsráði
þar sem nafnanefnd er falið að
breyta heiti Garðastrætis í Kænu-
garðsstræti.
Yrði með því minnt á tengsl
Íslands og Úkraínu, en Kænugarður
er íslenska heitið á Kyiv. ■
Borgarstjórn
fordæmir Rússa
Lýst er stuðningi við fólkið í Úkraínu.
6 Fréttir 2. mars 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ