Fréttablaðið - 02.03.2022, Side 16

Fréttablaðið - 02.03.2022, Side 16
Rannsóknir Rúnars Vilhjálms- sonar, prófessors í félagsfræði við Heilbrigðissvið Háskóla Íslands, og rannsóknarhóps hans benda til þess að töluvert hafi dregið úr einelti meðal íslenskra grunn- skólanema á undanförnum árum og að Ísland sé meðal þeirra Evrópulanda þar sem einelti er hvað minnst. „Ástæða þess að ég hef ásamt samstarfsfólki mínu beint athygli að einelti meðal barna og ungmenna eru hin miklu og langvinnu áhrif sem einelti getur haft á líðan og lífshlaup einstaklinga. Áföll og erfiðleikar sem einstaklingar verða fyrir á ungum aldri hafa að jafnaði víð- tækari afleiðingar en sams konar mótlæti síðar á ævinni. Okkar von er að niðurstöður rannsóknanna muni auka skilning á útbreiðslu og ástæðum eineltis og styrkja um leið forvarnarstarf hér á landi.“ Auk Rúnars skipa rannsóknar- hópinn um einelti þau Guðrún Kristjánsdóttir, prófessor í hjúkr- unarfræði, og sænsku háskóla- kennararnir Pernilla Garmy pró- fessor og Erika Hansson dósent. Einelti tengt valdaójafnvægi Rúnar segir mikinn fjölda erlendra rannsókna hafa kannað umfang og mögulegar afleiðingar eineltis meðal skólabarna. „Einnig hafa verið gerðar athuganir á einelti í grunnskólum hér á landi. Ég og samstarfsfólk mitt vildum kanna þessi mál nánar með nýjum gögnum hérlendis, byggðum á landsúrtaki grunnskólanema í 6., 8. og 10. bekk.“ Hópurinn kannaði útbreiðslu eineltis í einstökum hópum grunnskólanema og einnig ýmis neikvæð tengsl eineltisins við líðan, heilsu og lyfjanotkun nemendanna. „Með einelti er átt við endurtekna ágenga hegðun sem beint er gegn einstaklingi og er ætlað að niðurlægja hann, ögra honum og ógna, eða skaða á annan hátt. Einelti tengist yfirleitt valdaójafnvægi þar sem gerandi tekur einhvern fyrir sem er minni máttar, og er gerandinn þá ýmist einn að verki eða í hópi gerenda. Ósjaldan fylgja einnig með vitni og óbeinir þátttakendur sem ýmist kynda undir eineltinu eða ljá því þegjandi samþykki.“ Staða grunnskólanna flókin Hann segir að á hverjum tíma megi áætla að milli 5 og 6 prósent íslenskra nemenda í efri bekkjum grunnskóla verði fyrir einelti. „En þetta eru þó ekki tölur sem við sættum okkur við. Ef miðað er við tölurnar gætu 1.200 til 1.400 nem- endur í 6. til 10. bekk sætt einelti á hverjum tíma. Í þessu efni ættum við að segja að hver nemandi Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. „Í þessu efni ættum við að segja að hver nemandi sem verður fyrir einelti sé einum nemanda of mikið,“ segir Rúnar Vilhjálmsson prófessor. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Þolendur eineltis greina oftar en aðrir frá þunglyndis- einkennum og meta heilsu sína og lífsánægju mun lakar en aðrir. Athygli vekur einnig mikil verkja- lyfjanotkun þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Starri Freyr Jónsson starri @frettabladid.is sem verður fyrir einelti sé einum nemanda of mikið.“ Staða grunnskólanna, þegar kemur að einelti og úrlausnum, sé þó nokkuð flókin. „Grunnskól- arnir eru í mótsagnarkenndri stöðu. Þeir eiga að vera miðstöð fræðslu og mótunar einstaklinga til sjálfstæðis og virkrar þátttöku í þessu samfélagi, en eru um leið helsti vettvangur þess eineltis sem fram fer í hópi barna og ungmenna í samfélaginu, eineltis sem brýtur einstaklinga niður og skerðir lífs- gæði þeirra og samfélagsþátttöku.“ Afleiðingar eineltis margvíslegar Rúnar segir athuganir hópsins sýna að piltar og stúlkur verði álíka oft þolendur eineltis. „Hins vegar verða yngri nemendurnir oftar fyrir einelti en elstu nemendurnir. Einn- ig kemur í ljós að nemendur í fjöl- skyldum með lakari efnahagslega stöðu verða frekar fyrir einelti en aðrir, og sömu sögu er að segja um nemendur sem búa með einstæðu foreldri eða stjúpforeldri saman- borið við nemendur sem búa með báðum kynforeldrum. Loks verða nemendur af erlendum uppruna frekar fyrir einelti en nemendur af innlendum uppruna.“ Rannsóknarhópurinn hefur einnig kannað tengsl eineltisins við mögulegar afleiðingar og segir Rúnar þau vera margvísleg. „Þol- endur eineltis greina oftar en aðrir frá þunglyndiseinkennum, fá oftar svimaköst, finna oftar til líkam- legra verkja, leita oftar til heil- brigðisþjónustunnar vegna áverka, eiga oftar í erfiðleikum með svefn á nóttunni og meta heilsu sína og lífsánægju mun lakar en aðrir. Athygli vekur einnig mikil verkja- lyfjanotkun þeirra.“ Góður árangur undanfarin ár Í forvarnar- og meðferðarstarfi gegn einelti og afleiðingum þess hafa Íslendingar náð verulegum árangri á undanförnum árum að sögn Rúnars. Nefnir hann þar meðal annars að íslenskir grunn- skólar hafa sett sér eineltisáætlanir sem ætlað er að fræða um einelti, stuðla að hlýju og alúð í samfélagi grunnskólans, setja ramma gegn ólíðandi hegðun, beita viðurlögum við brotum á hegðun og sýna myndugleik þar sem hinir full- orðnu eru góðar fyrirmyndir. „Þetta er í samræmi við 7. grein reglugerð- ar mennta- og menningarmála- ráðuneytisins nr. 1040 frá 2011, en þar segir að skólar skuli setja sér „aðgerðaáætlun gegn einelti með virkri viðbragðsáætlun til að takast á við eineltismál í skólanum.“ Mikilvægt lýðheilsuverkefni Áætlanir eru þó aldrei nóg, segir Rúnar. Þeim þarf að fylgja eftir með fræðslu, eftirliti, stuðningi og snemmbærum inngripum í samstarfi nemenda, kennara, for- eldra og skólahjúkrunarfræðinga. „Hér hafa félagasamtök og fag- fólk á þessu sviði utan skólanna reynst þeim vel og hafa hvatt þá og aðstoðað í eineltismálum. En betur má ef duga skal. Fylgja þarf eftir fræðslu til nemenda og foreldra og efla hana enn frekar. Greina þarf sem fyrst merki um einelti og afleiðingar þess í skól- unum. Einnig merki um einelti með rætur utan skólanna, þar á meðal neteinelti sem greinist oft síðar og er oft erfiðara viðfangs en einelti í raunheimum. Í þessum málum veltur mikið á góðu sam- starfi kennara, nemenda, for- eldra og heilsugæslu. Hafa verður í huga að vinna gegn einelti og afleiðingum þess meðal barna og ungmenna er eitt mikilvægasta lýðheilsuverkefni hvers sam- félags.“ Samstarfshópur Rúnars hefur þegar birt niðurstöður rannsókna á einelti í erlendum vísindaritum og á fræðaþingum, en hópurinn heldur áfram að rannsaka þetta viðfangsefni. n Í þessum málum veltur mikið á góðu samstarfi kennara, nemenda, foreldra og heilsu- gæslu. Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618 info@arcticstar.is - www.arcticstar.is SÆBJÚGNAHYLKI FYRIR HEILSUNA Þjáist af liðverkjum? Viðkvæmt ónæmiskerfi? - Of hár blóðþrýstingur? Arctic Star sæbjúgnahylki eru framleidd úr íslenskum sæbjúgum sem eru með: • Hátt próteininnihald og lágt fituinnihald • Fjölbreytar amínósýrur • Taurín • Chondroitin súlfat • Peptíð • Vítamín og steinefni. ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA, Framleiðandi er Arctic Star ehf. Allar nánari upplýsingar fast á www.arcticstar.is Arctic Star Sæbjúgnahylki Varan fæst í flestum apótekum, heilsubúðum, Hagkaupum, Fjarðakaup og Heimkaup.is 2 kynningarblað A L LT 2. mars 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.