Fréttablaðið - 02.03.2022, Qupperneq 21
Auglýsing um skipulagsmál
í Sveitarfélaginu Árborg
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar
eftirfarandi tillögur deiliskipulagsáætlanna.
1. Deiliskipulagsbeyting - Engjaland 2-4
Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum þann 16. febrúar
2022 að auglýsa deiliskipulagsbreytingu að Engjalandi 2 og
4 Selfossi. Breytingin felur í sér hækkun húsa um eina hæð
þannig að heimilt verði að byggja 4. hæða hús í stað 3. hæða á
lóðunum. Einnig er óskað eftir fjölgun íbúða á hvorri lóð um 2
íbúðir. Megin ástæða hækkunar er að gert verður ráð fyrir að
koma fyrir bílageymslum á hluta af 1. hæð húsanna.
2. Deiliskipulagsbreyting – Íþrótta- og útivistarsvæði
- Frístundamiðstöð
Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum þann 16. febrúar
2022 að auglýsa deiliskipulagsbreytingu á íþrótta- og útivis-
tarsæði Selfoss v. fyrirhugaðrar byggingar frístundamiðstöðvar.
Grunnhugmynd sveitarfélagsins er að búa til aðstöðu og umh-
verfi til að bæta frístundaþjónustu við íbúa og bjóða upp á enn
fjölbreyttari möguleika en standa nú til boða. Með byggingu
frístundamiðstöðvar verður til aðstaða fyrir frístundastarf án
aðgreiningar, þar sem mismunandi hópar barna og fullorðin-
na koma saman og veita hvort öðru stuðning og fræðslu.
Deiliskipulagsbreytingin gerir m.a. ráð fyrir að komið verði fyrir
byggingarreit undir byggingu nýrrar frístundamiðstöðvar ásamt
því að gera grein fyrir aðkomu að henni.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammmi til kynningar á
skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi. Að auki
er hægt að nálgast tillögurnar á heimasíðu Sveitarfélagsins
Árborgar á vefslóðinni www.arborg.is
Tillögurnar eru auglýstar með athugasemdafresti frá 02.03.2022
til og með 13.04.2022. Hverjum þeim sem telur sig eiga
hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir
við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til
13.04.2022.
Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu
skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið
skipulag@arborg.is
Virðingarfyllst,
Anton Kári Halldórsson
skipulagsfulltrúi
KR svæðið - Frostaskjól 2-6
Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 9. febrúar 2022 og borgarráðs Reykjavíkur þann 10. febrúar
2022 var samþykkt að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir KR svæðið. Í tillögunni felast markmið
um að bæta aðstöðu KR til íþrótta og félagsstarfsemi með byggingu íþrótta og þjónustubygginga. Auk
þess eru áform um að auka fjölbreytni svæðisins með byggingu íbúða á jöðrum lóðarinnar í samræmi við
markmið aðalskipulagsins. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010,
eru hér með auglýstar tillögur að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík.
Háaleitisbraut 1
Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 2. febrúar 2022 og borgarráðs Reykjavíkur þann 10. febrúar
2022 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Háaleitisbraut 1. Í breytingunni felst
að í stað skrifstofuhúsnæðis í suðaustur hluta lóðarinnar kemur nýtt íbúðarhús með 27 íbúðum. Íbúðir á
reitnum verða því samtals 74. Bíla- og hjólastæðakröfur breytast m.t.t. fjölda íbúða og núverandi byggingar,
Valhallar, en skilgreiningar per íbúð/fm. helst óbreytt, ásamt því að byggingarmagn eykst óverulega. Nánar
um tillöguna vísast til kynningargagna.
Geirsgata 9
Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 2. febrúar 2022 og borgarráðs Reykjavíkur þann 10. febrúar
2022 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Slippa- og Ellingsen reits vegna
lóðarinnar nr. 9 við Geirsgötu. Í breytingunni felst að skipulagssvæði Vesturbugtar er stækkað þannig að
Geirsgata 9 verði hluti af reit 8 á skipulagssvæðinu ásamt því að gert er ráð fyrir nýjum byggingarreit í anda
verbúðanna við Geirsgötu 3-7. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Vesturbæjarsundlaug
Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 2. febrúar 2022 og borgarráðs Reykjavíkur þann 10. febrúar
2022 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vesturbæjarlaugar. Í breytingunni felst
að lóðarmörk við Einimel 18-26 eru færð út sem nemur 3,1 m og minnkar lóð Vesturbæjarlaugar sem því
nemur. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Hlemmur, reitur 1.240, Umferðarskipulag
Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 26. janúar 2022 og borgarráðs Reykjavíkur þann 3. febrúar
2022 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hlemmur og nágrenni, deiliskipulag
stgr. 1.240, Hlemmur og nágrenni og Hlemmur, umferðarskipulag, sem samþykkt var 19. mars 2020 í
borgarráði og tók gildi við birtingu auglýsingar í B deild Stjórnartíðinda þann 7. apríl 2020. Í breytingunni
felst að greinargerð deiliskipulagsins er uppfærð í samræmi við þessa breytingartillögu og fyrri breytingu,
dags. 25. janúar 2021. Deiliskipulagið er samræmt við nýsamþykkt Aðalskipulag Reykjavíkur 2040.
Lóðarmörkum Laugavegs nr. 107 er breytt þannig að lóðin nær eingöngu utan um núverandi hús
(Hlemmur mathöll) ásamt byggingarreit A (viðbygging). Þremur nýjum lóðum er bætt inn á torgsvæðið,
tvær lóðir utan um byggingarreiti C og D auk þess að stofnuð er lóð fyrir dreifistöð rafveitu við Þverholt.
Byggingareitir C og D, þar með lóðir þeirra, færðir í sundur. Bætt er við byggingareitum fyrir sorpskýli
á borgarlandi og sérskilmálum um nýtingu. Byggingarreitur E fyrir djúpgáma er felldur út. Reitur undir
hjólaskýli, H, á norðurhluta Rauðarárstíg stækkaður. Skerpt er á sérskilmálum byggingareita og nú lóða
til að endurspegla frekar tillögu hönnuða Hlemmtorgs. Sérrými almenningssamgangna og hjólastígum
á Hverfisgötu er hliðrað lítillega til að koma lóðum betur fyrir. Breyttir skilmálar fyrir setsvæði og svið.
Reitur biðstöðvarsvæðis almenningssamgangna breytt í byggingareit og reitur stækkaður til austurs.
Bætt er við frekari upplýsingum um stöðu fornleifa á svæðinu. Byggingareit R+H við Þverholt breytt í
reit R2 fyrir veitumannvirki og tæknibúnað og ný lóð, Laugavegur nr. 122, stofnuð undir reitinn. Bætt er
við byggingareit fyrir almenningssalerni norðan við Hlemm, Laugaveg nr. 107. Bætt er við umfjöllun um
samræmi við frumdragaskýrslu Borgarlínu lotu 1. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar má einnig nálgast á skjá og tölvu í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð,
virka daga kl. 8:30 – 16:00 frá 2. mars 2022 til og með 13. apríl 2022. Einnig má sjá tillögurnar á vefnum,
www.reykjavik.is, skipulag í kynningu. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna
sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa
eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 13. apríl 2022. Vinsamlegast notið uppgefið
netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.
Reykjavík 2. mars 2022
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
Skrifstofa borgarstjóra
Skrifstofa borgarstjóra
Borgarverkfræðingu
Borgarverkfræðingur
Hagde ld
Hagdeild
Dagvist barna
Dagvist barna
Reykjavíkurborg
Umhverfis- og skipula ssvið
Auglýsing um tillögu að nýju deiliskipulagi og
tillögur að breyttu deiliskipulagi í Reykjavík
Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
er hér með auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi í Reykjavík.
Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, sími: 411 1111, www.reykjavik.is
Fyrirtæki
ársins 2021
hagvangur.is
intellecta.is
RÁÐNINGAR