Fréttablaðið - 02.03.2022, Page 22
Sambíóin fagna fjörutíu ára
afmæli í dag. Framkvæmdastjóri
Samfilm segir eitthvað sérstakt
við sálina í Álfabakkanum.
arnartomas@frettabladid.is
Það var þann 2. mars 1982 sem Bíóhöllin
í Mjóddinni var opnuð með pompi og
prakt. Árni Samúelsson eigandi sagði í
viðtali við Morgunblaðið að hann hefði
opnað öll sín fyrirtæki 2. mars og hefði
það gefist vel. Opnun Bíóhallarinnar
markaði upphaf Sambíóanna sem fagna
þar með fjörutíu ára afmæli sínu í dag.
„Þótt Álfabakkinn sé ansi gamall gefur
hann hinum bíóunum í bænum ekkert
eftir í samkeppni. Það er eitthvað við sál-
ina hérna sem sumum finnst vera eins
konar hjarta hérna í Mjóddinni,“ segir
Alfreð Ásberg Árnason, framkvæmda-
stjóri Sambíóanna, sem hefur fylgt fyrir-
tækinu frá upphafi og á einmitt afmæli í
dag ásamt Elísabetu tvíburasystur sinni.
Dagsetningin á opnun kvikmyndahúss-
ins var því engin tilviljun á sínum tíma.
Alfreð bendir á að í dag séu breyttir
tímar, bæði hvað varðar myndirnar
sjálfar og bíómenninguna.
„Ég var bara smápjakkur, fimmtán
ára gamall, þegar ég byrjaði að vinna í
bíóunum,“ segir Alfreð og bendir á að á
þeim tíma hafi verið mikið um áfengis-
drykkju í bíósölunum. „Það voru engir
pöbbar svo að fólk drakk oft í bíó og fór
svo niður á Hallærisplan. Það gat stund-
um verið erfitt að mæta í vinnuna svona
ungur og takast á við eldri krakka sem
voru drukknir. En þetta voru ógleyman-
legir tímar og bíóin helstu samkomu-
staðirnir þar sem pör kynntust og sam-
bönd urðu til.“
Endurteknar dómsdagsspár
Þótt bíóin séu í dag búin að skjóta traust-
um rótum í íslensku samfélagi voru ekki
allir sannfærðir á sínum tíma.
„Þegar pabbi opnaði í miðri vídeóvæð-
ingunni var tekið viðtal við hann á RÚV
þar sem hann var spurður hvort það
væri ekki óðs manns æði að opna kvik-
myndahús,“ segir Alfreð. „Það er alltaf
verið að spá fyrir um endalok bíóanna.“
Nú hafa bíóin lifað leigurnar af og
segir Alfreð að samfélagslega þörfin eigi
sinn þátt þar.
„Við sáum það í faraldrinum þegar
við fengum engar myndir erlendis frá
og fórum að sýna eldri myndir hvað það
voru margir að mæta. Það komu yfir tvö
þúsund gestir á The Shining og yfir þrjú
þúsund á Harry Potter-myndirnar. Fólki
finnst gaman að koma og sýna sig og sjá
aðra. Tilkoma samskiptamiðla veldur
því að fólk talar opinskátt um það helsta
sem er í gangi og þá verður mikilvægara
að sjá myndirnar sjálfur sem fyrst og
geta tekið þátt í umræðunni.“
Hjólin farin að snúast
Síðustu tvö ár hafa reynst kvikmynda-
unnendum ansi erfið en Alfreð segir
áhugann ekki standa á sér nú þegar tak-
mörkunum hefur verið aflétt.
„Þetta er búið að vera upp og niður
í faraldrinum. Það opnaðist smá glufa
með Bond og Leynilöggunni í október
sem endaði á að vera tekjuhæsti mán-
uður fyrirtækisins. Þetta tekur smá tíma
að vinna sig aftur inn en fer að gera það
þegar stóru myndirnar byrja að detta
inn.“
Alfreð segir að engin mikil hátíðar-
höld séu plönuð þar sem óvissa í kring-
um takmarkanirnar hafi verið svo mikil.
Þeim sem fylgi Sambíóunum á sam-
félagsmiðlum standi þó til boða að fá
fjörutíu prósenta afslátt með kóða.
En hvað er svo fram undan á árinu?
„Það er auðvitað fullt af stórum mynd-
um á leiðinni, og svo verða stórar breyt-
ingar í Kringlunni þar sem við ætlum
meðal annars að opna nýjan lúxussal.
Bíóin verða líka alltaf að vera í sífelldri
þróun og bjóða upp á nýjustu tækni og
gæði,“ segir Alfreð og þakkar um leið
starfsfólki Sambíóanna fyrir vel unnin
störf í fjörutíu ár. n
Það er alltaf verið að spá
fyrir um endalok bíó-
anna.
Alfreð Ásberg Árna-
son, framkvæmda-
stjóri SambíóannaÁstkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Hallgrímur Jónsson
frá Laxamýri,
verður jarðsunginn fimmtudaginn
3. mars í Laugarneskirkju kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir.
Sveinbjörg Hallgrímsdóttir
Ásgerður Hallgrímsdóttir
Ingunn Elín Hróbjartsdóttir
Jóna Hróbjartsdóttir
Elín Margrét Hallgrímsdóttir
Álfhildur Hallgrímsdóttir
Ástkær eiginkona mín, dóttir, systir,
mamma, tengdamamma og amma,
Margrét Hólm Magnúsdóttir
sjúkraliði,
lést í faðmi fjölskyldunnar
fimmtudaginn 24. febrúar.
Útförin fer fram í Akureyrarkirkju
mánudaginn 7. mars, kl. 13.
Gunnar Blöndal
Kristín Hólmgrímsdóttir
Guðrún Kristín Blöndal Sigurður Sveinn Sigurðsson
Anna Bryndís Blöndal Haraldur Líndal Pétursson
Magnús Blöndal Sylvía Kolbrá Hákonardóttir
Orri Blöndal Bergþóra H. Bergþórsdóttir
og ömmubörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Marey Stefanía
Björgvinsdóttir
lést 8. febrúar sl.
Útför fór fram í kyrrþey.
Þökkum hlýjar kveðjur.
Þórður Þorgrímsson
Björgvin H. Þórðarson
Þórný Þórðardóttir Brynjar Ólafsson
og afkomendur.
Auður Ingvarsdóttir
tannsmíðameistari,
Víðimel 60,
er látin.
Jarðsungið verður frá Neskirkju
mánudaginn 7. mars klukkan 13.
Rannveig Sigurðardóttir Hermann Þórisson
Freyr Hermannsson Helga Rún Runólfsdóttir
Nanna Hermannsdóttir Marinó Örn Ólafsson
Hlynur, Sóley, Auður Lilja og Móeiður Gyða
Ástkær móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
Jóhanna Andrésdóttir
Hæðargarði 33, Reykjavík,
sem lést 5. febrúar, verður jarðsungin
frá Fríkirkjunni í Reykjavík,
föstudaginn 4. mars kl. 11.
Einar Snorri Sigurjónsson Edda Hannesdóttir
Guðrún Birna Einarsdóttir Einar Garðarsson
Ragnar Einarsson Linda Benediktsdóttir
og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Guðmundur Theodór
Antonsson
málarameistari,
lést laugardaginn 19. febrúar.
Útför fer fram frá Lindakirkju
föstudaginn 4. mars kl. 13.00.
Aðalheiður Guðmundsdóttir Birgir Sigurðsson
Jón Viðar Guðmundsson
Þórunn Huld Ægisdóttir Jóhann Bjarnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Bíóveldi fagnar fjörutíu árum
Við opnun voru sex sýningarsalir í Bíóhöllinni og rúmaði hún alls 1.025 gesti. MYND/AÐSEND
Alfreð á
vaktinni í Bíó-
höllinni 1984.
MYND/AÐSEND
1476 Orrustan við Grandson þar sem Karl djarfi bíður
ósigur fyrir svissnesku ríkjunum.
1917 Nikulás 2. Rússakeisari segir af sér embætti.
1940 Togarinn Skutull frá Ísafirði verður fyrir árás þýskrar
herflugvélar við Bretland. Þetta er fyrsta árásin á
íslenskt skip í seinni heimsstyrjöldinni.
1956 Bandarísk herflutningaflugvél ferst með sautján
mönnum djúpt út af Reykjanesi.
1957 Heilsuverndarstöðin í Reykjavík er vígð eftir að
hafa verið sjö ár í byggingu. Fyrsta deild hennar hóf
starfsemi 1953.
1969 Fyrsta tilraunaflug Concorde-þotu fer fram í
Toulouse í
Frakklandi.
1978 Skemmti-
staðurinn
Hollywood
er opnaður í
Ármúla í
Reykjavík.
1993 Nick Leeson
er handtekinn
fyrir sinn þátt
í því að koll-
steypa Barings-
bankanum.
Merkisatburðir
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 2. mars 2022 MIÐVIKUDAGUR