Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.03.2022, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 02.03.2022, Qupperneq 30
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Ég hef örugglega verið í kringum fleiri Covid- sjúklinga en nokkur annar. 26 Lífið 2. mars 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ Gylfi Þór Þorsteinsson kveður brátt farsóttarhúsin eftir rúm tvö ár sem forstöðumaður á fordæmalausum tímum. odduraevar@frettabladid.is „Ég byrjaði nú bara á því að festast í bakinu í gær þannig að ég er búinn að vera heima í dag og í gær að vor- kenna sjálfum mér og get varla hreyft mig. Það segir manni kannski eitthvað um framhaldið,“ segir Gylfi Þór hlæjandi aðspurður hvað taki við hjá honum þegar farsóttarhúsa- tímabilinu lýkur. Síðustu farsóttarhúsunum verður lokað í Reykjavík eftir marsmánuð en Gylfi Þór hefur rekið þau frá fyrsta degi, síðan um miðbik ársins 2020. „Fyrstu þrjá mánuðina í starf- inu var lítið sofið, nema kannski einhverja tvo, þrjá tíma á nóttu,“ segir Gylfi Þór sem fyrst um sinn var eini starfsmaður farsóttarhúsa hér á landi, en síðar urðu þeir hundrað. „Hvað hefurðu langan tíma?“ spyr Gylfi hlæjandi á móti þegar hann er spurður hvað honum þyki eftirminnilegast eftir þetta skrítna tímabil í lífi sínu. Meint sprengja eftirminnilegust „Það var náttúrulega eftirminni- legt þegar við mættum og sögðum starfsfólki hótelsins að við værum að taka yfir hótelið og gera það að farsóttarhúsi,“ segir Gylfi Þór um Hótel Lind sem varð fyrsta far- sóttarhúsið. „Þá varð það mjög eftirminni- legt þegar fyrsti gesturinn, sem var hælisleitandi frá Afganistan, varð síðar starfsmaður hjá mér og er enn,“ segir Gylfi en eðli málsins samkvæmt var útlitið oft dökkt. „Fyrsti Covid-sjúklingurinn sem kom til okkar var ung ekkja sem misst hafði manninn sinn hér á Íslandi, sem var fyrsta andlátið hér á landi úr Covid. Þarna vissi náttúr- lega enginn neitt um þennan sjúk- dóm, annað en að hann væri hættu- legur.“ Þá sinntu húsin heimilislausum og jaðarsettum einstaklingum allt upp í tvær vikur í senn. Gylfi viður- kennir að það hafi ýmislegt gengið á á þessum tíma. „Við höfum sinnt af brotamönn- um sem komið hafa úr gæsluvarð- haldi Covid-sýktir og því haft lög- regluvakt á húsinu. Þá þurfti einu sinni að kalla út sprengjusveit því það fannst torkennilegur hlutur fyrir utan hótelið og sprengjusveit og hundar mættu á svæðið.“ Næsta starf vonandi eins „Ég hef tekið þátt í öllum sýnatök- um á fólki í húsinu. Ætli þetta séu ekki svona um fimmtán þúsund einstaklingar sem hafa komið til okkar og ég tók þátt í sýnatökum á þeim sem fóru í sóttkví, þannig að ég hef örugglega verið í kringum f leiri Covid-sjúklinga en nokkur annar,“ segir Gylfi Þór sem þrátt fyrir þetta hefur enn ekki smitast. „En það hlýtur nú að koma að því núna fyrst ég er hættur, eða að hætta,“ segir Gylfi hlæjandi. Hann kvíðir því ekki að segja skilið við þennan viðburðaríka kaf la ævi sinnar. „Ætli maður byrji ekki á því bara að fara í lagningu og bera á sig vel- lyktandi og fara svo að leita sér að vinnu,“ segir Gylfi Þór sem segist sleppa við tómleikatilfinningu við tilhugsunina um endalokin. „Verður maður ekki bara að vona að næsta starf verði spennandi líka og þá þarf maður ekki að upplifa neina tómleikatilfinningu,“ segir Gylfi Þór hlæjandi. n Úti er farsóttarævintýri Gylfi Þór Þorsteinsson kveður brátt farsóttarhúsin eftir rúmlega tveggja ára ævintýr. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN toti@frettabladid.is Skjálftamælar Partýbúðarinnar benda eindregið til þess að ösku- dagurinn verði með fjörugasta móti og Valgerður Gunnars- dóttir verslunarstjóri spáir því að Köngulóarmaðurinn muni sveif la sér víða auk þess sem uppblásnar risaeðlur eru líklegar til þess að brölta um í slabbinu. Þá er ljóst að grímubúningar hrotta og þol- enda sem kenndir eru v ið Net f l i x-þæt t- ina Squid G a m e Uppblásnar risaeðlur troða slabbið ríghalda enn í vinsældir sínar frá því í fyrra. „Ég held að þetta sé nú bara jafn- vel meira en í fyrra,“ sagði Valgerður þegar Fréttablaðið heyrði í henni í miðri biðröðinni í Partýbúðinni í gær þar sem börn og foreldrar voru með hressasta móti. „Squid Game er náttúrlega rosa mikið í gangi og allt þetta uppblásna dót, risaeðlur, g e i m f a r a r og svoleiðis er enn voða vinsælt en svo kemst maður ekki neitt,“ segir Valgerður og hlær dátt. Squid Game-búningar voru mjög eftirsóttir á síðasta ári en þá höfðu þættirnir nýlega slegið í gegn og framboðið af skornum skammti. Nú sé úrvalið hins vegar miklu meira. „Já, já, já. Aldeilis. Já, við fengum grímur og búninga. Búningarnir eru náttúrlega löngu búnir en grímurnar eru svo sem enn þá til. Og svo náttúr- lega er Spider-Man alveg rosalega vinsæll. Ég held sko bara að annar hver strákur verði Spider-Man.“ Valgerður bendir síðan á að hún fái ekki betur séð en að öskudagur- inn verði hvorki há- né lokapunktur gleðinnar. „Maður finnur líka að það er einhver partíhugur í fólki,“ heldur Valgerður áfram og bendir á ýmis jákvæð merki þess að landinn sé að losna úr viðjum veirunnar í miklu stuði sem sjáist til dæmis á því að stórar blöðru pantanir eru allt í einu byrjaðar að berast á ný og ásóknin í svokallaðar Hawaii- skreytingar sé mikil. n

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.