Morgunblaðið - 15.01.2022, Page 2
Hertar sóttvarnaaðgerðir tóku gildi
á miðnætti. Þær fela meðal annars í
sér að einungis tíu manns verður
leyft að koma saman, og sagði Hall-
dór Benjamín Þorbergsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins, í samtali við mbl.is í gærkvöldi
að aðgerðirnar væru augljóslega
mjög íþyngjandi og myndu setja
strik í reikninginn hjá fjölda fyrir-
tækja. Hann væntir þess að stjórn-
völd kynni frekari stuðningsaðgerðir
fyrir fyrirtæki eftir helgi.
„Ljóst er að tíu manna samkomu-
bann og lokun fjölda fyrirtækja mun
þýða að ríkissjóður þarf að stíga
fram með trúverðugar efnahags-
aðgerðir sem stuðning við þau fyrir-
tæki sem er gert að loka eða þurfa
að þola verulega skerta starfsemi,“
sagði Halldór Benjamín.
Sagðist hann hafa lagt áherslu á
að komið yrði til móts við þau fyrir-
tæki sem yrðu verst úti í aðgerð-
unum. „Ég vænti þess að strax eftir
helgi verði nánari útfærsla birt á
þeim efnahagsaðgerðum sem sýnt
var á spilin með í dag. Enda má ís-
lenskt atvinnulíf engan tíma missa.“
Erfitt fyrir alla
Már Kristjánsson, yfirlæknir
smitsjúkdómadeildar á Landspítala
og formaður farsóttanefndar, sagð-
ist í gær vonast til að nýju sótt-
varnaaðgerðirnar myndu duga til
þess að ná daglegum smitfjölda nið-
ur og þar af leiðandi minnka álagið á
heilbrigðiskerfinu.
„Það eru allir með sting í hjartanu
yfir að þurfa gera þetta enda erfitt
fyrir alla,“ sagði Már í samtali við
mbl.is. Már telur að ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar um að herða sótt-
varnaaðgerðir enn frekar hafi verið
skynsamleg með tilliti til hagsmuna
spítalans og heilbrigðiskerfisins í
heild. Bindur hann vonir við að þær
verði til þess að verkefnið sem spít-
alinn hefur staðið frammi fyrir verði
viðráðanlegra.
Mönnun efld
Spurður út í stöðuna segir hann
spítalann halda sjó eins og er. Lítið
aðstreymi hafi verið á bráða-
móttökuna síðastliðna daga og það
hjálpi til við að draga úr álaginu.
„Svo hefur maður líka gengið und-
ir manns hönd. Starfsemi hefur víða
verið endurskipulögð, mönnun efld á
gjörgæsludeildum og dregið hefur
verið úr skurðstofu- og daggöngu-
deildarstarfsemi svo hægt sé að
endurraða inn á legudeildirnar.“
„Íslenskt at-
vinnulíf má eng-
an tíma missa“
- Ríkið komi með trúverðugar efna-
hagsaðgerðir - Skynsamlegt að herða
Már
Kristjánsson
Halldór Benjamín
Þorbergsson
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2022
ÍTALÍA 2022
ÚRVAL ÚTSÝN SÍMI 585-4000 | WWW.UU.IS
SKÍÐAFRÍ Á MADONNA
Nú eru örfá sæti laus í skíðaferðirnar okkar
í janúar og febrúar til Ítalíu. Í skíðaferðunum
okkar geta farþegar valið um tvenn
skíðasvæði, Madonna og Pinzolo. Kláfur
tengir svo bæði skíðasvæðin saman, svo
auðvelt er að nýta sér bæði skíðasvæðin á
meðan á ferðinni stendur
Þaulvanir skíðafararstjórar Úrval Útsýn þau
Dinna og Helgi taka vel á móti þér í fjallinu.
22. - 29. JANÚAR VERÐ FRÁ 146.500 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA’
29. JAN.- 05. FEB. VERÐ FRÁ 146.500 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
05. - 12. FEBRÚAR VERÐ FRÁ 136.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Mikil loðnuveiði síðustu dægur hefur
orðið til þess að vinnslan í landi ann-
ar ekki aflanum. Tvö loðnuskip á
vegum Síldarvinnslunnar sigldu í
gær með aflann, Beitir NK áleiðis til
Noregs með 3.000 tonn en síðdegis
var ekki ákveðið hvert Polar Amma-
sak sigldi. Loðnan er orðin hæf til
manneldis og hófst manneldisvinnsla
í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í
Neskaupstað í gær.
Afar góð loðnuveiði var í fyrradag
og skipin voru einnig að fá góð hol í
fyrrinótt, að því er fram kemur á vef
Síldarvinnslunnar. Vilhelm Þor-
steinsson EA landaði um 2.600 tonn-
um í Neskaupstað og fór hluti aflans
til manneldisvinnslu í fiskiðjuveri
Síldarvinnslunnar, að því er fram
kemur á vef Samherja. Fram til
þessa hafði öll loðnan farið til fram-
leiðslu á mjöli og lýsi. Loðnan sem
veiðist er að stækka og þess vegna
líkur á að meira fari til manneldis.
Löndun á frystingarloðnu úr Hákoni
hófst í gær og Bjarni Ólafsson AK
kemur í kjölfar hans. Barði NK fyllti
sig í fyrrakvöld og var á leið til Akra-
ness. Sömuleiðis var Polar Amaroq á
landleið eftir að hafa fyllt sig í tveim-
ur holum.
Fyrstu norsku loðnuskipin sigldu
áleiðis á loðnumiðin í gær.
Beitir NK og Polar Ammasak,
skip á vegum Síldarvinnslunnar,
voru á miðunum í gær og var talið
líklegt að þau myndu sigla með
aflann. Beitir hélt áleiðis til Noregs
með 3.000 tonn en ekki lá fyrir hvert
grænlenska skipið myndi sigla.
Gunnþór Ingvason, framkvæmda-
stjóri Síldarvinnslunnar, segir að
mikil veiði sé ástæða þess að siglt er
með aflann. Í jafn stórum vertíðum
og nú er vanti afkastagetu í landi til
að nýta loðnukvótann. Bendir hann á
að afkastagetan í landi sé um 12 þús-
und tonn á sólarhring en veiðigetan
geti farið upp í 50 þúsund tonn. Hins
vegar sé næg afkastageta í vinnslum
við Norður-Atlantshaf og sjálfsagt
að nýta hana.
Gunnþór segir alltaf jákvætt þeg-
ar loðnufrysting hefst. Hins vegar
taki tíma að stilla saman strengi í
fiskiðjuverinu í upphafi nýrrar ver-
tíðar. Hann segist gjarnan hefðu vilj-
að sjá stærri loðnu í frystiöskjunum
en það standi vonandi til bóta.
Skip sigla með loðnu til Noregs
- Vinnslan í landi hefur ekki við veið-
unum þegar vel gengur á miðunum
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Loðna Mokveiði hefur verið hjá loðnuskipunum og vinnslurnar í landi hafa
ekki undan. Biðröð er við sumar vinnslurnar og skip að sigla með aflann.
Þessi tignarlega álft beið fyrir utan Ráðhús Reykjavík-
ur í gær og heilsaði þar gestum og gangandi sem lögðu
leið sína í húsið, sem og þeim sem áttu bara leið hjá.
Lífið gekk enda sinn vanagang við Tjörnina þar sem
álftir og endur synda flesta daga í mestu makindum og
kynna sér mannlífið í miðborginni.
Morgunblaðið/Eggert
Álft í mestu
makindum
við Ráðhúsið
Fram undan er annasöm helgi í sýnatökum hjá Heilsugæslunni á höfuð-
borgarsvæðinu. Um eitt þúsund börn eru væntanleg í sýnatöku í dag.
Þetta segir Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar
hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, í samtali við mbl.is.
Í vikunni hefur fjöldi smita komið upp í grunnskólum og fjölmörg börn
því verið send í sóttkví eða smitgát. Því er ljóst að þau börn sem voru út-
sett fyrir smiti í vikunni byrja að mæta í sýnatöku á morgun. Að sögn
Ragnheiðar eru þau um eitt þúsund talsins. „Það verður mikið fjör hjá
okkur um helgina á Suðurlandsbrautinni,“ segir Ragnheiður.
Þúsund börn í sýnatöku í dag
NÓG AÐ GERA Á SUÐURLANDSBRAUTINNI UM HELGINA