Morgunblaðið - 15.01.2022, Page 4

Morgunblaðið - 15.01.2022, Page 4
10 Almennar fjöldatak- markanir fara úr 20 í 10 manns 2 Áfram 2metra nálægðar- mörk og óbreytt- ar reglur um grímu- skyldu 20 Áfram 20 manns að hámarki í rými á veitingastöðum og óbreyttur afgreiðslutími 50 Sviðslistir heimilar með allt að 50 áhorf- endum í hólfi Ekki lengur heimild til auk- ins fjölda með hraðprófum 50% Sund-, bað- staðir, líkams- ræktarstöðvar og skíðasvæði áframmeð 50% afköst 50 Íþróttakeppnir áfram heimilar með 50 þátttakendum en án áhorfenda 200 Hámarksfjöldi í verslunum er nú 200 manns í stað 500 Skemmtistaðir eru lokaðir, einnig krár og spilasalir Fjöldi innanlandssmita og innlagna á LSH með Covid-19 frá ársbyrjun 2021 Hertar takmarkanir innanlands 800 700 600 500 400 300 200 100 0 jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. 206 Heimild: Stjórnarráðið, LSH og covid.is 1.133 ný innanlandssmit greindust sl. sólarhring 9.671 ermeð virkt smit og í einangrun 11.061 einstaklingur er í sóttkví 154 LOKAÐ Fjöldi staðfestra smita innanlands Fjöldi innlagðra sjúklinga á LSHmeð Covid-19-smit 42 einstaklingar eru á sjúkrahúsi,þar af átta á gjörgæslu, fjórir í öndunarvél 44 einstaklingar eru látnir 88 virk smit greindust á landamærum 1.553 44 1.133 Gilda til og með 2. febrúarHarðari takmarkanir - Tíu mega koma saman - Skemmti- stöðum, krám og spilasölum lokað Guðni Einarsson gudni@mbl.is Aðgerðir voru hertar á miðnætti í þeirri viðleitni að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirunnar. Ríkis- stjórnin ræddi stöðu og horfur í Cov- id-19-faraldrinum á fundi sínum í gær. Tilkynnt var um hertar aðgerð- ir að fundinum loknum. Þær helstu eru að almennar sam- komutakmarkanir miðast við tíu manns að hámarki. Heimild til auk- ins fjölda fólks á viðburðum með hraðprófum féll brott. Hámarks- fjöldi í verslunum fór úr 500 í 200 manns og skemmtistöðum, krám, spilasölum og spilakössum lokað. Áfram gilda tveggja metra ná- lægðarmörk og reglur um grímu- skyldu eru óbreyttar. Sviðslistir eru heimilar með allt að fimmtíu áhorf- endum í hólfi. Sund- og baðstaðir, líkamsræktarstöðvar og skíðasvæði verða áfram opin með helmings af- köstum. Íþróttakeppnir verða áfram heimilar með 50 þátttakendum en án áhorfenda. Reglugerð sem inniheld- ur hinar hertu takmarkanir gildir til 2. febrúar nk. Í minnisblaði Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis til Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra kem- ur fram að markmið aðgerða nú ætti að vera að halda áfram uppbyggingu á heilbrigðis- og spítalakerfi landsins samhliða því að ná fjölda samfélags- legra smita niður í viðráðanlegan fjölda. Það er um 500 smit á dag ef reiknað er með að 0,2-0,3% greindra þurfi á spítalavist að halda. Þrátt fyrir harðari takmarkanir í desember hafi innanlandssmitum og smitum á landamærum í fyrstu farið fjölgandi. Einnig fjölgaði innlögnum á Landspítala. Smitin náðu hámarki 30. desember síðastliðinn þegar þau voru um 1.500 talsins. Eftir það tók þeim að fækka og hafa þau haldist nokkuð stöðug í kringum 1.100 á dag síðustu daga. Í fyrradag greindust 1.133 með kórónuveiruna innanlands og voru 49% í sóttkví við greiningu. Þá greindust 88 smitaðir á landamær- unum eða samtals 1.221. Á Landspítala lágu 42 sjúklingar í gærmorgun með Covid-19, sex voru á gjörgæslu og fjórir þeirra í önd- unarvél. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ráðstafanir kynntar F.v.: Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra, Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ræddu við fjölmiðla. 4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2022 Auglýst er eftir umsóknum um styrk sem tengdur er nafni Jóhannesar Nordals og veittur er af Seðlabanka Íslands. Tilgangur styrksins, sem veittur er árlega, er að styðja framtak sem miðar að því að varðveita menningarverðmæti sem núverandi kynslóð hefur fengið í arf. Styrkfjárhæðin nemur fjórum milljónum króna og verður henni úthlutað í maí 2022. Heimilt er að skipta fjárhæðinni á milli tveggja eða fleiri umsækjenda. Umsóknarfrestur er til og með 14. mars 2022. Sótt er um styrkinn í gegnum heimasíðu bankans: www.sedlabanki.is/menningarstyrkur. Nánari upplýsingar: Sigrún María Einarsdóttir á skrifstofu seðlabankastjóra. auglýsir eftir umsóknum um styrk tengdan nafni Jóhannesar Nordals S E Ð L A B A N K I Í S L A N D S Kalkofnsvegi 1 · 101 Reykjavík · 569 9600 · seðlabanki@sedlabanki . is Veitingastyrkir sem til stendur að veita fyrirtækjum í veitingarekstri sem hafa orðið fyrir sérstaklega miklum áhrifum af sóttvarnareglum og minnkandi umsvifum geta numið allt að tólf milljónum króna. Þetta er meðal aðgerða sem ráðherrar kynntu að loknum ríkisstjórnarfundi í gær vegna hertra sóttvarnareglna. Þessum fyrirtækjum getur staðið til boða að sækja um veitingastyrki vegna minni tekna frá desember sl. og út marsmánuð. Einnig er að því stefnt að fyrir- tæki í tilteknum flokkum veitinga- þjónustu, sem hafa orðið að sæta takmörkunum á afgreiðslutíma, fái að fresta staðgreiðslu skatta og greiðslu tryggingagjalds. Hægt verði að fresta allt að tveimur greiðslum á staðgreiðslu og trygg- ingagjaldi. Þá kemur fram í tilkynningu að enn fremur er unnið að framleng- ingu lokunarstyrkja í ljósi hertra takmarkana og minnt er á að í fjár- lögum ársins 2022 er veitt heimild fyrir greiðslu styrkja til íþrótta- og æskulýðsfélaga sem hafa orðið fyrir tekjutapi vegna viðburða sem fella þurfti niður vegna faraldursins. omfr@mbl.is Allt að 12 milljóna veitingastyrkir - Lokunarstyrkir - Gjalddögum frestað ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.