Morgunblaðið - 15.01.2022, Side 10

Morgunblaðið - 15.01.2022, Side 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2022 Fulltrúar launamanna í stjórn Birtu lífeyrissjóðs Valnefnd Birtu lífeyrissjóðs auglýsir eftir frambjóðendum til þess að taka sæti í stjórn sjóðsins kjörtímabilið 2022 til 2024. Samkvæmt samþykktum Birtu lífeyrissjóðs (gr. 5.10) hefur valnefnd m.a. þann yfirlýsta tilgang að tryggja að stjórn sjóðsins endurspegli fjölbreytni og breidd í hæfni, reynslu og þekkingu stjórnarmanna sem og að tryggja gagnsæi í málum um tilnefningu stjórnarmanna. Fulltrúaráð launamanna Birtu kýs tvo stjórnarmenn (karl og konu) til tveggja ára og einn varamann (konu) til tveggja ára í stjórn sjóðsins. Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda inn framboð á útfylltu framboðseyðublaði, sem er að finna á vefnum birta.is, á netfangið valnefnd@birta.is fyrir kl. 16:00 mánudaginn 31. janúar 2022. • vera launamenn sem greiða iðgjald í Birtu lífeyrissjóð. • ekki vera sjálfstætt starfandi atvinnurekendur/einyrkjar. • vera fjárhagslega sjálfstæðir og búa yfir nægilegri þekkingu og starfsreynslu skv. 31. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og 6. gr. reglna FME nr. 180/2013 og fullnægja að öðru leyti þeim kröfum sem gerðar eru um hæfi og hæfni stjórnarmanna skv. framangreindum lögum, reglum FME, samþykktum sjóðsins og starfsreglum valnefndar. • Skila inn útfylltu framboðseyðublaði með drengskaparyfirlýsingu um að þeir uppfylli skilyrði til slíkrar stjórnarsetu. ;22:- 0)0:-5 *..2<,506:- *1 ,+4(-0:-34'-5=& 7-:19/=,8!=*92:=5=$!#-2<,506*0: /6 ,4(=500 1) #00: ) "870*1 95-+:%5, ÞEIR SEM GEFA KOST Á SÉR SKULU Birta lífeyrissjóður I Sundagörðum 2 I 104 Reykjavík I 480 7000 I birta.is Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fellt niður gjaldþrotaskipti fyrir- tækisins Knoll og Tott ehf. Tilkynn- ing þessa efnis var birt í Lögbirt- ingablaðinu í gær. Eins og fram kom í frétt hér í blaðinu 30. desember sl. var bú Knoll og Tott ehf. tekið til gjaldþrota- skipta með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur uppkveðnum 15. des- ember 2021. Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur uppkveðnum 10. janúar 2022 var málið endurupptekið og réttaráhrif úrskurðar um töku bús Knoll og Tott ehf. til gjald- þrotaskipta felld niður. Knoll og Tott ehf. var stofnað árið 2017. Tilgangur félagsins er húsa- smíði og önnur verktakastarfsemi, eignarhald og útleiga fasteigna, lánastarfsemi og skyldur rekstur. Héraðsdómur afturkallar gjaldþrotaskipti Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Í byrjun hvers árs kemur alltaf tals- verður hópur fólks til okkar og leitar eftir þjónustu. Ég vona að þær tak- markanir sem við höfum nú þurft að setja í starfsem- inni lengi ekki biðlista úr hófi, heldur jafnist þetta út á nokkr- um vikum,“ segir Einar Her- mansson, formað- ur SÁÁ. Vegna sóttvarna eru nú á hverjum tíma 40 sjúklingar í stað 60 í áfengis- og vímuefnameðferð á Vogi. Sjúkrahús- inu er jafnframt skipt upp í fjögur aðskilin hóf, til að draga úr hættu á smitum. Á þrettándanum kom upp kórónuveirusmit á Vogi, en tekið var á málinu strax með aðgerðum sem dugðu til. Biðin eftir hjálpinni er alltaf sársaukafull Um 600 manns bíða þess nú að komast í meðferð á Vogi, en innlögn- um er forgangsraðað eftir því hve bráður vandi viðkomandi sjúklings er. Að jafnaði eru fimm til sex sjúk- lingar teknir inn og útskrifaðir á degi hverjum. „Bið eftir því að fá nauðsynlega hjálp í erfiðum veikind- um með allri þeirra þjáningu sem slíku fylgir er í eðli sínu sársaukafull. Ég vonast því til að starfsemin hér komist sem allra fyrst á eðlilegt ról,“ segir Einar. Að jafnaði leggjast um 2.200 manns inn á Vog, en sóttverjandi að- gerðir í fyrra réðu því að í fyrra voru innlagnirnar 1.862. Kórónuveirufar- aldurinn hefur annars leitt í ljós vanda og veikindi margra varðandi áfengis- og vímuefnanotkun. Neysla margra er sömuleiðis dulin, til dæm- is meðal kvenna sem eru komnar á eða yfir miðjan aldur. „Fólk virðist í talsverðum mæli vera heima að þjóra, margir þá til dæmis í einveru sem kemur til vegna veiruvarna. Ákveða svo að lokum að leita til okkar eftir aðstoð, um þetta höfum við séð mörg dæmi á allra síð- ustu misserum,“ segir formaður SÁÁ. Margir bíða eftir meðferð á Vogi - Margir í vímuvanda á tímum veiru Morgunblaðið/Eggert Vogur Í dag eru þar 40 sjúklingar í meðferð í húsi sem er hólfaskipt. Einar Hermannsson Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ríkissáttasemjari mun hitta samn- inganefndir Félags grunnskólakenn- ara og Sambands íslenskra sveitar- félaga í næstu viku. Samningavið- ræður hefjast líklega fljótlega í framhaldi af því. Sem kunnugt er felldu grunnskólakennarar kjara- samning sem gerður var 30. desem- ber sl. með nærri 3⁄4 hlutum atkvæða. Atkvæði voru greidd um samninginn 7.-13. janúar. Byggður á lífskjarasamningi „Grunnskólakennarar fengu sama samning og aðrir viðsemjend- ur okkar hafa fengið, það er á þess- um lífskjarasamningsgrunni,“ sagði Inga Rún Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjarasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga. „Samninganefnd grunnskólakennara féllst á samn- inginn og undirritaði. En svo kom þessi niðurstaða atkvæðagreiðsl- unnar sem kom mér verulega á óvart því samningurinn var kolfelld- ur. Það segir okkur að einhver gjá er á milli forystunnar og félags- manna, en hvers vegna veit ég ekki,“ sagði Inga Rún. En getur heimsfaraldurinn og ástandið sem hann hefur valdið m.a. í skólunum hafa haft áhrif? „Það er ekki gott að segja. Tíma- setningin var mjög erfið og ástandið í skólunum og þjóðfélaginu gríðar- lega þungt. Það var umræða í að- draganda atkvæðagreiðslunnar um hvenær ætti að byrja aftur skólahald vegna faraldursins. Hann mæðir þungt á kennurum eins og okkur öll- um,“ sagði Inga Rún. „En það verð- ur líka að halda því til haga að Covid- faraldurinn var ekki á samninga- borðinu. Menn verða að greina á milli kjarasamningsins og þess sem honum tilheyrir og svo ástandsins sem við tökumst öll á við utan Karp- hússins.“ Niðurstaðan var mjög skýr Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður Félags grunnskólakenn- ara, segir að niðurstaða atkvæða- greiðslu um kjarasamninginn hafi verið mjög skýr. Það hafi verið lýð- ræðislegur réttur félagsmanna að taka afstöðu til samningsins og virða beri niðurstöðuna. „Á bak við niðurstöðuna liggja alls konar ástæður þeirra sem kusu. At- kvæðagreiðslan var rafræn og hver einstaklingur tók afstöðu til þess sem lá á borðinu út frá sínum skoð- unum,“ sagði Þorgerður. Hún segir hægt að geta sér til um einhverjar ástæður þess hvernig kosningin fór, en það verði bara ágiskanir. En getur tímasetning atkvæða- greiðslunnar og áhrif faraldursins á sama tíma hafa haft áhrif? „Þetta getur hafa haft áhrif á báða bóga. Við erum í ótryggu ástandi en það er engin leið að draga þá ályktun að fólk hafi valið já eða nei vegna ástandsins,“ sagði Þorgerður. Hún taldi ekki hægt að taka neina aðra af- stöðu til niðurstöðunnar en þá að hún var mjög skýr. Félagsmenn hafi hafnað kjarasamningnum. „Nú þurfum við að bretta upp ermar og fara aftur í viðræður. Við munum leita lausna og lausnin mun felast í samtalinu,“ sagði Þorgerður. Fyrri kjarasamningur grunn- skólakennara við sveitarfélögin rann út 1. janúar sl. Þorgerður segir það vera yfirlýst markmið stjórnvalda að nýr kjarasamningar taki gildi þegar gildistíma fyrri samnings lýkur. Það hafi verið samið innan tímamarka þótt samningurinn hafi verið felldur. Hitta sáttasemjara í næstu viku - Ríkissáttasemjari kallar samninganefndir Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitar- félaga til fundar - Kjaraviðræður hefjast væntanlega í framhaldi af því - Samningurinn var kolfelldur Morgunblaðið/Hari Skrift Ekki fékkst mynd af undirritun samnings grunnskólakennara og sveitarfélaga því hún var gerð rafrænt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.