Morgunblaðið - 15.01.2022, Side 11

Morgunblaðið - 15.01.2022, Side 11
Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri „Með fyrirhugaðri stækkun hafnarmannvirkja á Torfunefi verður til land á mjög dýrmætum stað í bænum, sem opnar ýmsa möguleika sem verða án vafa aðdráttarafl fyrir íbúa, nærsveit- armenn og ferðamenn,“ segir Sig- ríður María Róbertsdóttir, verk- efnastjóri hjá Hafnasamlagi Norðurlands. Lengi hefur staðið til að ráðast í endurbyggingu Torfu- nefsbryggju sem er í miðbæ Ak- ureyrar og er það verkefni nú í sjónmáli. Hafnasamlag Norðurlands í sam- vinnu við Akureyrarbæ og Arki- tektafélag Íslands hefur auglýst hugmyndasamkeppni um skipulag Torfunefs en öll samkeppnisgögn er að finna á vef félagsins. Sam- keppnin stendur til loka marsmán- aðar og niðurstaða verður kynnt 27. apríl næstkomandi. Vaxandi aðsókn inn á svæðið Fyrirhugað er að reisa stálþils- bryggju töluvert utar en núverandi þil er, stækka uppland bryggj- unnar og auka þannig nýting- armöguleika þessa svæðis en það verður um 0,9 hektarar og er aust- an Glerárgötu. Sigríður María seg- ir að ásókn inn á þetta svæði fari vaxandi, æ fleiri minni skemmti- ferðaskip komi til Akureyrar og hafnsækin þjónusta hefur aukist mjög í bænum á liðnum árum. Sigríður María segir megin- markmið verk- efnisins að byggja upp lág- reist og lifandi hafnarhverfi með fjölbreyttri starfsemi á Torf- unefi, í hjarta Akureyrar. „Í húsnæði sem byggt verður upp á svæðinu verður fjölbreyttur rekstur og starfsemi, ferðaþjónusta, veitinga- rekstur, verslanir, sýningarrými, vinnustofur eða skrifstofurými svo eitthvað sé nefnt,“ segir hún. Undanfarin ár hefur hvalaskoð- unarfyrirtæki haft aðstöðu innan svæðisins og er gert ráð fyrir að lít- il skemmtiferðaskip, hvalaskoð- unarbátar og önnur hafnsækin ferðaþjónusta nýti Torfunefið áfram. „Sú þjónusta passar sérlega vel með þeirri uppbyggingu sem fram undan er á svæðinu og mun án efa auka upplifun gesta.“ Uppbygging í lok næsta árs Uppfylling við höfnina er þegar hafin, en Sigríður María segir að stefnt sé að því að reka nýtt þil nið- ur við Torfunefsbryggju næsta haust. Vorið 2023 er ráðgert að steypa kantinn og að því loknu verður þekjan gerð klár. „Í lok næsta árs eða byrjun árs 2024 verður komið að uppbyggingu á nýju hafnarhverfi.“ Stækkun við Torfunefsbryggju - Opin samkeppni meðal arkitekta um endurbyggingu Torfunefssvæðisins á Akureyri - Verðmætt land í hjarta bæjarins - Hafnsækin þjónusta hefur aukist Teikning/Hafnasamlag Norðurlands Torfunef Með stækkun hafnarmannvirkja við Torfunef verður til nýtt land. Ljósmynd/Hafnasamlag Norðurlands Akureyri Efnt hefur verið til hugmyndasamkeppni um skipulag Torfunefs. Sigríður María Róbertsdóttir „Mál er varða samræmt námsmat í grunnskólum eru í vinnslu í ráðu- neytinu. Ráðgert er að tilkynna skólasamfélaginu um fyrirkomulag og næstu skref í því verkefni á næstu vikum,“ sagði í svari mennta- málaráðuneytisins við fyrirspurn Morgunblaðsins um tímasetningu og fyrirkomulag samræmdra prófa í vetur. M.a. var spurt hvort áhersla yrði lögð á skrifleg próf vegna þess að rafræn próf gáfust ekki vel. Stjórnendur grunnskóla bíða enn upplýsinga um fyrirkomulag sam- ræmdu prófanna. Nokkur óánægja er í þeirra röðum vegna seinagangs í að veita þær upplýsingar, sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins. Arnór Guðmundsson, forstjóri Menntamálastofnunar, segir að unn- ið hafi verið að þróun á Matsferli, nýju námsmatstæki sem metur stöðu nemenda jafnt og þétt auk stærri matsprófa. Mögulega verður einnig prófað í fleiri greinum en áð- ur í samræmdum prófum. Í undir- búningi er að bjóða út nýtt rafrænt prófakerfi í stað eldra kerfis sem ekki virkaði. Prófum sem áttu að vera í haust í 4. og 7. bekk var frest- að til vors og einnig stóð til að próf í 9. bekk yrði í mars. „Það er til skoðunar í ráðuneytinu hvernig tilhögun á þessum prófum verður í ár. Við bíðum eftir svörum um það,“ sagði Arnór. gudni@mbl.is Morgunblaðið/Eyþór Samræmd próf Óvissa er um fram- kvæmd prófanna. Mynd úr safni. Óvissa um samræmdu prófin - Málið í vinnslu í ráðuneytinu FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2022 Skipholti 29b • S. 551 4422 Vetrar- yfirhafnir Stór- útsala 30-70% afsláttur LAXDAL er í leiðinni • laxdal.is Meiri verðlækkun! 40-60% afsláttur af fatnaði og skóm Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Sendu um allt land! hjahrafnhildi.is „Því miður hefur þetta reynst okk- ur svolítið erfitt. Við höfum sett okkar reyndasta fólk í að taka á móti börnum og erum sífellt að þjálfa fleiri svo hægt sé að gera þetta eins vel og hægt er,“ segir Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgar- svæðisins. Umboðsmaður barna hefur ný- verið gert athugasemdir við fram- kvæmd sýnatöku hjá börnum, bæði á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og hjá Heilsugæslu höfuðborgar- svæðisins á Suðurlandsbraut. Ósk- ar kveðst í samtali við Morgun- blaðið hafa svarað bréfi Salvarar Nordal, umboðsmanns barna, og fagnar þeim athugasemdum og ábendingum sem berast svo bæta megi aðstöðuna. „Við reynum að hafa þetta eins barnvænt og unnt er en ofboðs- legur fjöldi gerir okkur erfitt fyrir. Auðvitað þarf að sinna börnum með öðrum hætti en fullorðnum og við reiknum með að allt að fimm sinn- um lengri tíma þurfi í sýnatöku fyr- ir börnin. Stundum koma fleiri börn en reiknað var með og þá er meiri hasar en ella,“ segir Óskar sem býst við strembnum degi í dag þegar um eitt þúsund börn undir átta ára aldri losna úr sóttkví. „Í næstu viku getum við átt von á upp undir tvö þúsund börnum einhverja daga.“ hdm@mbl.is Upp undir tvö þús- und börn dag hvern Óskar Reykdalsson Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.